Fréttablaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 96
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
Þann níunda apríl árið 1940 var Danmörk her-tekin af Þjóðverjum. Þótt kóngur og ríkis-stjórn ættu að heita við völd að nafninu til
næstu misserin, laut landið í raun
þýskri stjórn. Vegna stríðsins og her-
setunnar rofnuðu því tengsl Dana
við yfirráðasvæði sín í fjarlægum
löndum.
Sendiráð Dana víða um heiminn
voru jafnframt sett í skringilega
stöðu. Þau héldu áfram starfsemi
sinni þrátt fyrir lítil samskipti við
yfirboðara sína í heimalandinu og
lentu að sumu leyti í þeirri stöðu að
reka sína eigin pólitík. Þannig fór
danski sendiherrann í Washington
langt út fyrir formlegt starfsvið sitt
með ýmsum samningum við banda-
rísk stjórnvöld.
En hver átti að borga brúsann?
Hvernig var hægt að fjármagna
dönsku utanríkisþjónustuna á
stríðsárunum þegar engir peningar
bárust frá Kaupmannahöfn? Þar
kom til sögunnar fágæt en verðmæt
bergtegund frá Grænlandi.
Krýolít er jarðefni sem danski
jarðfræðingurinn Peder Christian
Abilgaard uppgötvaði í Ivittuut árið
1799 og lýsti í vísindaritgerð sama
ár. Ivittuut er á Suðvestur-Græn-
landi, sunnan Arsukfjarðar. Svæðið
ætti að vekja sérstakan áhuga
Íslendinga því þar hafa fundist tals-
verðar minjar um búsetu norrænna
manna á miðöldum. Það er því talið
ein þriggja stærstu byggðanna og
hefur hlotið heitið Miðbyggð hjá
fornleifafræðingum, en öfugt við
samfélögin í Eystribyggð og Vestri-
byggð eru engar ritheimildir til um
byggðina í Ivittuut.
Hið nýja jarðefni var fannhvítt á
litinn og hlaut fræðiheitið krýolít
sem var samansett úr grísku orð-
unum fyrir snjó og stein. Það vakti
sérstaka athygli vísindamanna að
ljósbrot þessa nýja efnis var nánast
eins og ljósbrot vatns og urðu krý-
olítsteinarnir því nánast ósýnilegir
í vatni.
Krýolít inniheldur talsvert af
natríum og árið 1852 tókst efna-
fræðingum að þróa aðferð til að nýta
það við vinnslu á vítissóda, sem var
eftirsótt hráefni í ýmiss konar fram-
leiðslu. Í kjölfarið var ráðist í stór-
fellda námavinnslu í Ivittuut. Áður
höfðu námafyrirtæki raunar gert
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson skrifar
um fágætt jarðefni.
EFNISFLUTNINGAR
VORU SÖMULEIÐIS
STÓRHÆTTULEGIR.
misheppnaðar tilraunir til að
vinna silfur á svæðinu.
Innreið nútímans
Vinnslan á krýolítinu
var ótal erfiðleikum háð.
Aðstæður verkamannanna
voru hörmulegar og fyrstu
árin létust fjölmargir þeirra
úr skyrbjúg. Efnisflutningar
voru sömuleiðis stórhættulegir og
fórust mörg flutningaskipanna á
leiðinni. Engu að síður var vinnslan
svo arðbær að danska námafélagið
hafði ekki undan eftirspurn. Með
tímanum tókst að bæta vinnuað-
stæður og auka framleiðsluna, til
dæmis með því að flytja efnið á
litlum járnbrautarvögnum í stað-
inn fyrir hjólbörur eða körfur sem
verkamennirnir báru á bakinu.
Til að greiða fyrir flutningunum
festu eigendur námunnar árið 1864
kaup á heimskautafleyinu Fox,
sem smíðað hafði verið nokkrum
árum fyrr og kom mikið við sögu
í hinum svokallaða Fox-leiðangri
1860-61. Leiðangurinn, sem fjallað
hefur verið um á þessum vettvangi,
miðaði að því að finna leið til að
tengja Ameríku og Evrópu með rit-
síma um norðurslóðir. Upp úr 1870
tóku námamenn svo sprengiefni í
sína þjónustu, en fram að því höfðu
hamar og meitill verið helstu tólin
við vinnsluna.
Á sjöunda áratug nítjándu aldar
tókst að þróa hagkvæmar aðferðir
til að vinna sóda úr sjávarsalti og
glataði grænlenska krýolítið þá
hluta af mikilvægi sínu. Í staðinn
var farið að nota það í auknum mæli
við framleiðslu á hvítleitu gleri og
við emaleringu á hvers kyns bús-
áhöldum. Eftir 1880 kom svo í ljós
að krýolít gæti komið að góðum
notum við álvinnslu. Álframleiðsla
óx jafnt og þétt, einkum í Banda-
ríkjunum. Krýolít varð eftirsóttara
og verðmætara á ný og fór sífellt
stærri hluti efnisins úr grænlensku
námunni vestur á bóginn.
Sem fyrr segir var krýolítvinnslan
á Grænlandi í höndum einkaaðila,
en þeir greiddu danska ríkinu fast
gjald fyrir hvert unnið tonn og
síðar einnig hlutfall af hagnaði fyrir-
tækisins. Verksmiðjan byggði upp
sitt eigið þorp með ýmsum nútíma-
þægindum á borð við rafveitu og
loftskeytastöð. Grænlendingar
sjálfir nutu hins vegar á engan hátt
góðs af starfseminni, fremur en af
öðrum sambærilegum fyrirtækjum
Dana í landinu á nýlendutímanum.
Á þriðja áratugnum voru miklar
breytingar gerðar á námarekstr-
inum með stórfelldri tæknivæð-
ingu. Framleiðslugetan fór upp í
50 þúsund tonn af óunnu krýolíti
á ári og sem fyrr var það vaxandi
áliðnaðurinn sem tók til sín megnið
af framleiðslunni, ekki síst til flug-
vélaframleiðslu þar sem krafan um
létta málma var sérstaklega sterk.
Bitbein hervelda
Það voru einmitt hagsmunir flug-
vélaframleiðenda og þörfin fyrir
krýolít sem höfðu mikið að segja
um áhuga Bandaríkjamanna á
Grænlandi þegar heimsstyrjöldin
síðari braust út. Danska stjórnin í
Nuuk tók yfir rekstur námunnar og
seldi alla framleiðsluna til Banda-
ríkjanna og Kanada. Hagnaðurinn
af þeirri sölu stóð undir rekstri hins
opinbera á Grænlandi öll stríðsárin,
sem og kostnaðinum við dönsku
sendiráðin víða um lönd eins og
áður hefur komið fram.
Í öryggisskyni var settur banda-
rískur hervörður við námasvæðið
mestöll stríðsárin,
þótt talið væri
ólíklegt að Þjóð-
verjar gætu með
n o k k r u m ó t i
ráðist á Ivittuut.
Þýskir kafbátar
reyndu þó eftir
fremsta megni að
ráðast á krýolít-
flutningaskipin
og fórust nokkur
skip á stríðsárunum,
ýmist vegna tundur-
skeytaárása eða af ókunnum
orsökum.
Þótt stríðinu lyki dró ekki úr
eftirspurn eftir áli og hélt krýolít-
vinnslan í Ivittuut áfram að krafti út
fimmta og sjötta áratuginn. En þar
með var draumurinn úti. Krýolítið
í námunni var á þrotum. Árið 1962
var efnistöku hætt og næstu árin
látið nægja að vinna úr efni sem
þegar hafði verið mokað út. Þær
birgðir dugðu í rúman áratug.
Ný tækni sem gerði það mögulegt
að vinna efnið úr bergi með tiltölu-
lega lágu hlutfalli af krýolíti þýddi
að á níunda áratugnum var hægt að
endurnýta talsvert af efni sem áður
hafði verið notað í hafnargarða og
vegagerð á svæðinu, en árið 1987
var meira að segja þetta efni á þrot-
um og námunni í Ivittuut var lokað
eftir 133 ára vinnslu.
Rannsóknir jarðvísindamanna á
níunda áratugnum leiddu í ljós að
eitthvað örlítið meira af krýolíti
mætti finna djúpt undir námunni,
en vinnsla þess var ekki talin standa
undir kostnaði. Krýolít hefur sömu-
leiðis fundist á fáeinum öðrum
stöðum í heiminum, svo sem í Rúss-
landi og Suður-Afríku, en aðeins í
litlum mæli. Því má segja að krýolít
sé eina jarðefnið sem vitað er til að
hafi gengið til þurrðar vegna ásókn-
ar mannsins. Aðrar vinnsluaðferðir
eru því viðhafðar við þá iðnfram-
leiðslu sem grænlenska krýolítið var
áður nýtt til, en auk álvinnslunnar
var efnið meðal annars notað í skor-
dýraeitur og við flugeldagerð, til að
framkalla gulan lit.
Tæknisagnfræðingar geta í dag
brotið heilann um hversu mikil
áhrif krýolítnáman í Ivittuut hafi í
raun haft á mannkynssöguna. Skipti
hún sköpum fyrir þróun áliðnaðar-
ins á upphafsskeiði hans, eins og
sumir telja? Ef sú er raunin verður
mikilvægi hennar seint ofmetið.
Aðrir telja að án grænlenska krýol-
ítsins hefðu efnafræðingar einfald-
lega fundið aðrar leiðir að sama
marki.
Hvora kenninguna sem við
aðhyllumst er krýolít flestum
gleymt nú um stundir. Sýnishorn
af efninu má þó finna á jarðfræði-
söfnum og á Grænlandi hafa lengi
verið áform um að breyta gamla
námasvæðinu í jarðfræðisýningu
fyrir ferðamenn.
Líklega á danski rithöfundurinn
Peter Høeg þó stærstan þátt í vitn-
eskju almennings um þetta sér-
kennilega jarðefni. Árið 1992 sendi
hann frá sér spennusöguna Lesið í
snjóinn (Frøken Smillas fornemm-
else for sne) sem gerist á Grænlandi
og þar sem illir stjórnendur krýolít-
námu gegna veigamiklu hlutverki.
Grænlenska
undragrjótið
hvíta
Bandarískt herskip árið 1924, námusvæðið í Ivittuut í baksýn.
2 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
9
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
F
2
-B
A
F
4
2
0
F
2
-B
9
B
8
2
0
F
2
-B
8
7
C
2
0
F
2
-B
7
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K