Fréttablaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 28
„Mig hefur alltaf langað til að sjá norðurljósin,“ segir Karen Vigneault. Fréttablaðið/Eyþór Howka, mamuyuth miñay?“ Svona heilsar Karen Vign­e ault af Kumeya­þjóðflokki indjána á eigin tungumáli. Hún er stödd í snoturri íbúð Guð­ rúnar Drafnar Emilsdóttur í Vestur­ bænum. Hún hefur lagt á sig langt ferðalag frá verndarsvæðinu sem hún býr á í San Diego til Íslands til að heimsækja eitt „barna“ sinna. Guðrún komst að því fyrir stuttu að hún er af Otoe­ þjóðflokki indjána sem á sér vernd­ arsvæði við Red Rock í Noble­sýslu í Oklahoma og naut liðsinnis Karenar sem hefur í seinni tíð helgað sig því að aðstoða ættleidd en uppkomin börn indjána að finna uppruna sinn. leitar „týndu barnanna“ „Ég leita týndu barnanna okkar og hjálpa þeim að tengjast menn­ ingu sinni og uppruna,“ segir Karen frá. Hún er glöð í bragði, með síðar fléttur og lætur tímamismuninn ekki mikið á sig fá. „Hún vaknaði bara mjög hress og fór í Melabúðina,“ segir Guðrún frá og brosir við. Á borðstofuborðinu er fjöldi minjagripa, bóka og ljósmynda. Karen hefur komið færandi hendi. Við borðið situr Emil Már Einarsson, systursonur Guðrúnar, sem dvelur einnig hjá henni. Það er honum að þakka að Guðrún náði sambandi við Karen. „Mig hefur alltaf langað til þess að sjá norðurljósin hér á Íslandi. Ég átti nýlega sextugsafmæli og á svipuðum tíma hafði Emil samband við mig. Ekkert er hendingu háð og nú er ég hér,“ segir Karen. Þegar ég sagði vinum mínum frá Íslendingnum sem reyndist vera indjáni og því að mig langaði að sjá norðurljósin gáfu vinir mínir mér flugpunktana sína svo ég þurfti ekki að greiða nema litla upphæð fyrir ferðalagið hingað,“ segir hún og brosir breitt. Leitin að uppruna Guðrúnar á sér langan aðdraganda. Blóðfaðir hennar kom til Íslands árið 1966. Hann dvaldi skamma hríð á landinu en átti í sambandi við blóðmóður Guðrúnar. Guðrún fæddist árið 1967 og var gefin foreldrum sínum til ætt­ leiðingar. Hún hefur búið alla sína barnæsku í Vesturbænum og býr nú skammt frá æskuheimili sínu. Hún vissi það eitt að faðir hennar hét Henry Jackson og var í bandaríska hernum. leitaði á fermingartölvunni Emil var aðeins táningur þegar hann byrjaði að leita blóðföður Guðrúnar. „Ég fékk tölvu í fermingargjöf. Ég spurði Guðrúnu hvort ég mætti athuga hvort ég fyndi eitthvað. Ég spurði hana hvað það væri sem hún vissi í raun og veru,“ segir Emil frá. „Okkur vantaði hins vegar millinafn hans og vegna þess að hann var í hernum þá voru hindranir í veg­ inum. Að komast yfir herskjöl var erfitt. Það var auðvitað alveg hægt en var kannski ekki verkefni fyrir fjórtán ára strák,“ segir Emil. Emil fór til Danmerkur í verk­ fræðinám. Nú býr hann þar og starfar. Stuttu fyrir fimmtugsafmæli Guðrúnar í sumar ákvað hann að hefja leitina á ný. „Ég áttaði mig á því að ég gæti lík­ lega komist yfir betri upplýsingar. Mig vantaði enn millinafnið og það var ákveðin hindrun. En ég fann Karen og las greinar um þessa merkilegu konu og hvernig hún hefur fundið fjölmörg svokölluð týnd börn indjána. Ég sendi henni tölvupóst seint í vor og þá fór boltinn að rúlla. Enda er hún alveg ótrúleg,“ segir Emil frá. Á hálfsystur í arizona „Eitt leiddi af öðru,“ segir Karen frá og bætir við að þegar upplýsingar um uppruna Guðrúnar voru stað­ festar með DNA­prófi þá hafi hlut­ irnir gerst hratt. Hún hafi rætt við fólk í sínum þjóðflokki, Otoe­þjóð­ flokkinum í Oklahoma. Þá hafi blaðakona hjá Voice of America skrifað grein um leitina. Mjög fljót­ lega fann Guðrún hálfsystur sína, Kimberley, í Tucson í Arizona. Karen tók að sér að hringja í hana. „Stundum er erfitt að hringja svona símtöl. En í þetta skiptið var það auðvelt. Kimberley var himin­ lifandi yfir því að hafa eignast systur. Það er engin erfið saga. Guðrún átti hamingjuríka æsku hér á Íslandi og skorti ekkert og því eru upplýsingar um uppruna hennar bara góð en nauðsynleg viðbót,“ segir Karen. Hamingjusöm í æsku En Guðrún, hvernig leið þér sem barni? Vissir þú af þessum óvanalega uppruna? „Ég vissi að blóðfaðir minn var af indjánaættum. En ég spáði aldrei í það. Ég var bara ósköp venjulegur íslenskur krakki. Ég ólst reyndar bara upp hér í næstu götu. Ég var gefin beint af fæðingar­ deildinni. Blóðmóðir mín var komin sex mánuði á leið þegar hún ákvað að fara þessa leið. Það voru fleiri pör sem höfðu sóst eftir því að fá barn. Hún hitti foreldra mína nokkrum sinnum og valdi þá úr. Ég var hepp­ in að enda hjá þeim og átti góða æsku og unglingsár,“ segir Guðrún og bætir við að auðvitað hafi ekki verið margt fólk með dökkan húðlit á Íslandi í þá daga. „Mér leið aldrei eins og ég væri ekki ein af hópnum. Ég var í góðum bekk í Melaskóla, eignaðist góða vini sem ég á enn í dag,“ segir Guðrún. Uppruni er ekki bara útlit „Ég sá strax að hún væri af frum­ byggjum komin. Sá mynd af henni sem barni og það var bara ekki vafi í mínum huga,“ segir Karen. „En ég má til með að nefna að uppruni snýst ekki um það hvernig fólk lítur út, það hefur meira með tilfinningar fólks að gera. Hvernig fólki líður, hvað það gerir. Margt sem Guðrún gerir sé ég að er svona í anda hennar fólks. Hún beitir innsæi sínu mikið til að mynda. En þetta getur hún ekki vitað að hafi nokkra merkingu nema með því að hitta sitt fólk,“ segir Karen. „Það er eitt að segja henni Guðrúnu frá ættbálki hennar og annað fyrir hana að upplifa. Næsta skref er að fara og hitta hennar fólk af Otoe­þjóðflokki,“ segir hún. Fara til bandaríkjanna Það er langt síðan Guðrún tengdist fjölskyldu blóðmóður sinnar. Hún var tuttugu og fimm ára gömul. „Ég var alltaf spenntari fyrir þessum dularfulla uppruna mínum í föðurætt. En kannski það hafi bara verið of fjarlægt til þess að ég hafi orðið mjög upptekin af því. En bróð­ ir minn í móðurætt fann mig þegar ég var 25 ára. Hann vissi ekki að ég væri til. Það var í fyrsta skipti sem ég fór að hugsa meira út í þessa hluti. Ég hef átt yndislegar stundir með þessu fólki. Bróðir minn er í dag í sambandi við mig nánast daglega og ég fer reglulega að heimsækja systur mína. Þau komu, öll fjölskyldan, í fimmtugsafmælið mitt. Það hefur aldrei verið neitt vandamál. Bara ævintýri og nú halda þau áfram og ég kynnist föðurfjölskyldunni,“ segir Guðrún. „Ég hef aldrei leitað. Þetta kom allt til mín,“ segir Guð­ rún og horfir ástúðlega á Emil. „Þetta ævintýri er allt Emil að þakka, ég er honum svo þakklát, hann gerir allt fyrir mig. Og nú kemur hann með mér til Bandaríkjanna og verður með mér á ferðalagi að heimsækja þjóðflokkinn og systur mína,“ segir hún. Fær líklega réttindi indjána Guðrún og Emil fara í nóvember til Bandaríkjanna á slóðir forfeðra hennar. „Við förum fyrst á verndar­ svæði Otoe­þjóðflokksins og ég bið um inngöngu,“ segir Guðrún og segist kvíða því að verða ekki sam­ þykkt. Karen hughreystir hana og segir ferlið munu ganga vel. „Hún fær með því réttindi indjána í Bandaríkjunum,“ útskýrir Karen. „Hún gæti þannig eignast land, Ég á að finna þessi týndu börn Indjáninn Karen Vigneault er komin hingað til lands til að hitta Guðrúnu Emilsdóttur, sem komst að því í sumar að hún er af Otoe- þjóðflokki indjána. Karen segir það skyldu sína að færa indjánum sem hafa fjarlægst uppruna sinn þá gjöf að kynnast menningu sinni. ↣ Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Henry, blóðfaðir Guðrúnar, á mynd sem komst í eigu hennar nýlega. 2 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r28 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 2 9 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :1 9 F B 1 2 8 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 F 2 -9 D 5 4 2 0 F 2 -9 C 1 8 2 0 F 2 -9 A D C 2 0 F 2 -9 9 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 8 s _ 2 8 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.