Fréttablaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 28
„Mig hefur alltaf langað til að sjá norðurljósin,“ segir Karen Vigneault. Fréttablaðið/Eyþór
Howka, mamuyuth miñay?“ Svona heilsar Karen Vigne ault af Kumeyaþjóðflokki indjána á eigin tungumáli.
Hún er stödd í snoturri íbúð Guð
rúnar Drafnar Emilsdóttur í Vestur
bænum.
Hún hefur lagt á sig langt ferðalag
frá verndarsvæðinu sem hún býr á í
San Diego til Íslands til að heimsækja
eitt „barna“ sinna. Guðrún komst að
því fyrir stuttu að hún er af Otoe
þjóðflokki indjána sem á sér vernd
arsvæði við Red Rock í Noblesýslu í
Oklahoma og naut liðsinnis Karenar
sem hefur í seinni tíð helgað sig því
að aðstoða ættleidd en uppkomin
börn indjána að finna uppruna sinn.
leitar „týndu barnanna“
„Ég leita týndu barnanna okkar
og hjálpa þeim að tengjast menn
ingu sinni og uppruna,“ segir Karen
frá. Hún er glöð í bragði, með síðar
fléttur og lætur tímamismuninn ekki
mikið á sig fá.
„Hún vaknaði bara mjög hress og
fór í Melabúðina,“ segir Guðrún frá
og brosir við.
Á borðstofuborðinu er fjöldi
minjagripa, bóka og ljósmynda.
Karen hefur komið færandi hendi.
Við borðið situr Emil Már Einarsson,
systursonur Guðrúnar, sem dvelur
einnig hjá henni. Það er honum að
þakka að Guðrún náði sambandi við
Karen.
„Mig hefur alltaf langað til þess að
sjá norðurljósin hér á Íslandi. Ég átti
nýlega sextugsafmæli og á svipuðum
tíma hafði Emil samband við mig.
Ekkert er hendingu háð og nú er ég
hér,“ segir Karen.
Þegar ég sagði vinum mínum frá
Íslendingnum sem reyndist vera
indjáni og því að mig langaði að sjá
norðurljósin gáfu vinir mínir mér
flugpunktana sína svo ég þurfti ekki
að greiða nema litla upphæð fyrir
ferðalagið hingað,“ segir hún og
brosir breitt.
Leitin að uppruna Guðrúnar á
sér langan aðdraganda. Blóðfaðir
hennar kom til Íslands árið 1966.
Hann dvaldi skamma hríð á landinu
en átti í sambandi við blóðmóður
Guðrúnar.
Guðrún fæddist árið 1967 og
var gefin foreldrum sínum til ætt
leiðingar. Hún hefur búið alla sína
barnæsku í Vesturbænum og býr nú
skammt frá æskuheimili sínu. Hún
vissi það eitt að faðir hennar hét
Henry Jackson og var í bandaríska
hernum.
leitaði á fermingartölvunni
Emil var aðeins táningur þegar hann
byrjaði að leita blóðföður Guðrúnar.
„Ég fékk tölvu í fermingargjöf. Ég
spurði Guðrúnu hvort ég mætti
athuga hvort ég fyndi eitthvað. Ég
spurði hana hvað það væri sem hún
vissi í raun og veru,“ segir Emil frá.
„Okkur vantaði hins vegar millinafn
hans og vegna þess að hann var í
hernum þá voru hindranir í veg
inum. Að komast yfir herskjöl var
erfitt. Það var auðvitað alveg hægt
en var kannski ekki verkefni fyrir
fjórtán ára strák,“ segir Emil.
Emil fór til Danmerkur í verk
fræðinám. Nú býr hann þar og
starfar. Stuttu fyrir fimmtugsafmæli
Guðrúnar í sumar ákvað hann að
hefja leitina á ný.
„Ég áttaði mig á því að ég gæti lík
lega komist yfir betri upplýsingar.
Mig vantaði enn millinafnið og
það var ákveðin hindrun. En ég
fann Karen og las greinar um þessa
merkilegu konu og hvernig hún
hefur fundið fjölmörg svokölluð
týnd börn indjána. Ég sendi henni
tölvupóst seint í vor og þá fór boltinn
að rúlla. Enda er hún alveg ótrúleg,“
segir Emil frá.
Á hálfsystur í arizona
„Eitt leiddi af öðru,“ segir Karen frá
og bætir við að þegar upplýsingar
um uppruna Guðrúnar voru stað
festar með DNAprófi þá hafi hlut
irnir gerst hratt. Hún hafi rætt við
fólk í sínum þjóðflokki, Otoeþjóð
flokkinum í Oklahoma. Þá hafi
blaðakona hjá Voice of America
skrifað grein um leitina. Mjög fljót
lega fann Guðrún hálfsystur sína,
Kimberley, í Tucson í Arizona. Karen
tók að sér að hringja í hana.
„Stundum er erfitt að hringja
svona símtöl. En í þetta skiptið var
það auðvelt. Kimberley var himin
lifandi yfir því að hafa eignast systur.
Það er engin erfið saga. Guðrún átti
hamingjuríka æsku hér á Íslandi og
skorti ekkert og því eru upplýsingar
um uppruna hennar bara góð en
nauðsynleg viðbót,“ segir Karen.
Hamingjusöm í æsku
En Guðrún, hvernig leið þér sem
barni? Vissir þú af þessum óvanalega
uppruna?
„Ég vissi að blóðfaðir minn var af
indjánaættum. En ég spáði aldrei í
það. Ég var bara ósköp venjulegur
íslenskur krakki. Ég ólst reyndar
bara upp hér í næstu götu.
Ég var gefin beint af fæðingar
deildinni. Blóðmóðir mín var komin
sex mánuði á leið þegar hún ákvað
að fara þessa leið. Það voru fleiri pör
sem höfðu sóst eftir því að fá barn.
Hún hitti foreldra mína nokkrum
sinnum og valdi þá úr. Ég var hepp
in að enda hjá þeim og átti góða
æsku og unglingsár,“ segir Guðrún
og bætir við að auðvitað hafi ekki
verið margt fólk með dökkan húðlit
á Íslandi í þá daga. „Mér leið aldrei
eins og ég væri ekki ein af hópnum.
Ég var í góðum bekk í Melaskóla,
eignaðist góða vini sem ég á enn í
dag,“ segir Guðrún.
Uppruni er ekki bara útlit
„Ég sá strax að hún væri af frum
byggjum komin. Sá mynd af henni
sem barni og það var bara ekki vafi
í mínum huga,“ segir Karen. „En
ég má til með að nefna að uppruni
snýst ekki um það hvernig fólk lítur
út, það hefur meira með tilfinningar
fólks að gera. Hvernig fólki líður,
hvað það gerir. Margt sem Guðrún
gerir sé ég að er svona í anda hennar
fólks. Hún beitir innsæi sínu mikið
til að mynda. En þetta getur hún ekki
vitað að hafi nokkra merkingu nema
með því að hitta sitt fólk,“ segir
Karen. „Það er eitt að segja henni
Guðrúnu frá ættbálki hennar og
annað fyrir hana að upplifa. Næsta
skref er að fara og hitta hennar fólk
af Otoeþjóðflokki,“ segir hún.
Fara til bandaríkjanna
Það er langt síðan Guðrún tengdist
fjölskyldu blóðmóður sinnar. Hún
var tuttugu og fimm ára gömul.
„Ég var alltaf spenntari fyrir
þessum dularfulla uppruna mínum
í föðurætt. En kannski það hafi bara
verið of fjarlægt til þess að ég hafi
orðið mjög upptekin af því. En bróð
ir minn í móðurætt fann mig þegar
ég var 25 ára. Hann vissi ekki að ég
væri til. Það var í fyrsta skipti sem ég
fór að hugsa meira út í þessa hluti.
Ég hef átt yndislegar stundir með
þessu fólki. Bróðir minn er í dag í
sambandi við mig nánast daglega og
ég fer reglulega að heimsækja systur
mína. Þau komu, öll fjölskyldan, í
fimmtugsafmælið mitt. Það hefur
aldrei verið neitt vandamál. Bara
ævintýri og nú halda þau áfram
og ég kynnist föðurfjölskyldunni,“
segir Guðrún. „Ég hef aldrei leitað.
Þetta kom allt til mín,“ segir Guð
rún og horfir ástúðlega á Emil. „Þetta
ævintýri er allt Emil að þakka, ég er
honum svo þakklát, hann gerir allt
fyrir mig. Og nú kemur hann með
mér til Bandaríkjanna og verður
með mér á ferðalagi að heimsækja
þjóðflokkinn og systur mína,“ segir
hún.
Fær líklega réttindi indjána
Guðrún og Emil fara í nóvember
til Bandaríkjanna á slóðir forfeðra
hennar. „Við förum fyrst á verndar
svæði Otoeþjóðflokksins og ég bið
um inngöngu,“ segir Guðrún og
segist kvíða því að verða ekki sam
þykkt. Karen hughreystir hana og
segir ferlið munu ganga vel.
„Hún fær með því réttindi indjána
í Bandaríkjunum,“ útskýrir Karen.
„Hún gæti þannig eignast land,
Ég á að finna þessi
týndu börn
Indjáninn Karen Vigneault er komin hingað til lands til að hitta
Guðrúnu Emilsdóttur, sem komst að því í sumar að hún er af Otoe-
þjóðflokki indjána. Karen segir það skyldu sína að færa indjánum
sem hafa fjarlægst uppruna sinn þá gjöf að kynnast menningu sinni.
↣
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Henry, blóðfaðir Guðrúnar, á mynd
sem komst í eigu hennar nýlega.
2 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r28 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
F
2
-9
D
5
4
2
0
F
2
-9
C
1
8
2
0
F
2
-9
A
D
C
2
0
F
2
-9
9
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K