Fréttablaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 94
E inskær tilviljun réð því að kafarinn Þorgeir Jónsson fann lík Vaidasar Jucevic ius örfáum dögum eftir að Jónas Ingi Ragnarsson, Grétar
Sigurðarson og Tomas Malakaus
kas komu Vaidasi fyrir í sjónum við
netagerðina í höfninni í Neskaup
stað.
„Mér brá hrikalega og get varla
lýst því hvernig mér leið,“ sagði
Þorgeir í viðtali við Fréttablaðið á
sínum tíma en hann hafði stungið
sér á kaf þann 11. febrúar 2004 til
þess að kanna óveðursskemmdir á
netagerðarbryggjunni. Skemmdir
sem ekki stóð til að gera við fyrr en
síðar á árinu, jafnvel því næsta.
Lögregla brást skjótt við og bönd
in bárust fljótt að þremenningunum
enda höfðu þeir varla haft ráðrúm
til þess að fela slóð sína þar sem
áætlanir þeirra gerðu ekki ráð fyrir
að líkið fyndist jafn fljótt og raun
bar vitni.
Vaidas kom til Íslands frá Litháen
í febrúarbyrjun. Innvortis var hann
með 61 pakkningu af metamfeta
míni, 223,67 grömm, sem hann hafði
gleypt áður en hann lagði af stað.
Lést eftir fjóra daga
„Líkmennirnir“ svokölluðu áttu að
taka á móti honum og eftir að hafa
Jónas, Grétar og Tomas við aðalmeðferð líkfundarmálsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ef kafarinn Þorgeir Jónsson hefði ekki farið að kanna skemmdir á bryggjustólpum hefði lík Vaidasar ekki fundist jafn fljótt og raun bar vitni og varla komist upp um þremenningana svo hratt og örugglega.
Ótrúleg
óheppni
í sögulegu
sakamáli
Ótrúleg atburða-
rás fór af stað eftir
að kafari fann fyrir
algera tilviljun lík í
höfninni í Neskaup-
stað. Fjölmiðlar fóru
í kjölfarið hamförum
í einu furðulegasta
sakamáli síðari tíma.
Kvikmyndin Undir
halastjörnu byggir á
líkfundarmálinu sem
skýst nú aftur á yfir-
borðið í aðdraganda
frumsýningarinnar.
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn@frettabladid.is
Skáldaleyfi undir halastjörnu
Leikstjórinn Ari Alexander Ergis
Magnússon byggir glæpamyndina
Undir halastjörnu á líkfundarmál-
inu í Neskaupstað. Myndin fjallar
um tvo Litháa sem koma hingað
til lands með drauma um gull og
græna skóga.
„Ég tek mér alveg skáldaleyfi,“
segir Ari Alexander við Frétta-
blaðið. „Ég reyni að einbeita
mér að mannlega
þættinum og þótt ég
sé ekki að réttlæta
neinar gjörðir þá eru
þessir menn sem lenda
í svona aðstæðum líka
fólk.“
Ari segist vera
orðinn leiður á
svart-
hvítum
veru-
leika
dæmi-
gerðra
glæpamynda þar sem skilin milli
góðra og illra eru miklu skýrari en í
lífinu sjálfu.
„Ég fylgdist auðvitað með þessu
máli eins og öll þjóðin á sínum
tíma en það sem vakti áhuga
minn og kveikti í mér er að þegar
allt er komið í steik þá flýja menn
heim til mömmu.
Hvað gerir Grétar, þessi
stóri, rosalegi náungi þegar
hann lendir í vand-
ræðum? Hann hleypur
heim til mömmu.
Þetta er áhugavert. Ég
segi kannski ekki fal-
legt en samt er ákveðin
fegurð fólgin í þessu.“
Ari Alexander
segir málið
minna um
margt á Fargo
Coen-bræðra.
farist á mis í Leifsstöð komu þeir sér
fyrir í íbúð í Furugrund í Kópavogi
og biðu þess að Vaidas skilaði efn
unum af sér.
Skömmu síðar veiktist Vaidas
herfilega þegar fíkniefnapakkn
ingarnar stífluðu mjógirni hans og
gengu ekki niður. Fjórum dögum
eftir að hann lenti í Keflavík var
hann látinn.
Krufning leiddi síðar í ljós að
yfirgnæfandi líkur væru á að Vai
das hefði lifað ef honum hefði verið
komið undir læknishendur. Lík
mennirnir báru því hins vegar við
að þeir hefðu óttast hefndaraðgerðir
GRÉTAR STAKK SÍÐAN
LÍKIÐ FIMM SINNUM,
Í HÁLS, BRJÓST OG
MAGA, TIL ÞESS AÐ
HLEYPA ÚR ÞVÍ LOFTI.
HNÍFNUM FLEYGÐI
HANN Í HÖFNINA OG
ÞEIR JÓNAS FLEYGÐU
LÍKINU SÖMU LEIÐ.
rússnesk/litháískrar mafíu ef þeir
leystu ekki vandamálið sjálfir.
Brunað í fáti í Neskaupstað
Fát kom á þremenningana þegar
Vaidas dó. Í ráðaleysi óku þeir þvert
yfir landið í tvo sólarhringa með
líkið í skottinu á meðan þeir veltu
fyrir sér ólíkum leiðum til þess að
losa sig við það.
Jónas er sagður hafa stungið upp
á því að koma líkinu fyrir í hraun
sprungu en Malakauskas vildi
grafa það, sem reyndist ómögulegt
vegna þess hversu mikið frost var í
jörðu. Grétar, sem á ættir að rekja
til Neskaupstaðar, stakk þá upp á
því að þeir færu með líkið þangað.
Þar væri löggæsla í lágmarki og
staðurinn fremur afskekktur. Hann
væri auk þess hvort eð er á leiðinni
þangað að heimsækja móður sína.
Áður en þeir lögðu af stað út
úr bænum komu þeir við í BYKO
þar sem þeir keyptu tólf fermetra
teppisstranga og límband sem þeir
notuðu til að búa um líkið.
Á áfangastað bökkuðu þeir Paj
erobílaleigubílnum niður að höfn,
veltu jarðneskum leifum Vaidasar
úr teppinu og þyngdu það með
keðjum og öðru lauslegu sem þeir
fundu við höfnina. Grétar stakk
síðan líkið fimm sinnum, í háls,
brjóst og maga, til þess að hleypa
úr því lofti. Hnífnum fleygði hann í
höfnina og þeir Jónas fleygðu líkinu
síðan sömu leið.
Gripnir níu dögum síðar
Grétar og Malakauskas viður
kenndu þessar aðfarir við yfir
heyrslur en Jónas sagðist ekki hafa
orðið var við að lík hafi verið í
bílnum enda hafi ferðin eingöngu
verið skemmtiferð og heimsókn til
ættingja Grétars.
Níu dögum eftir að líkið fannst
voru þremenningarnir handteknir
og síðar dæmdir í tveggja og hálfs
árs fangelsi hver fyrir innflutning á
fíkniefnum, fyrir að koma Vaidasi
ekki til aðstoðar í neyð og fyrir illa
meðferð á líki hans.
Jónas komst síðan aftur í fréttir
2010 þegar hann var dæmdur í tíu
ára fangelsi fyrir aðkomu að upp
setningu einnar fullkomnustu
amfetamínverksmiðju sem fundist
hefur á Íslandi og þótt víðar væri
leitað.
2 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
9
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
F
2
-C
E
B
4
2
0
F
2
-C
D
7
8
2
0
F
2
-C
C
3
C
2
0
F
2
-C
B
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K