Fréttablaðið - 29.09.2018, Page 94

Fréttablaðið - 29.09.2018, Page 94
E inskær tilviljun réð því að kafarinn Þorgeir Jónsson fann lík Vai­dasar Jucevic ius örfáum dögum eftir að Jónas Ingi Ragnarsson, Grétar Sigurðarson og Tomas Malakaus­ kas komu Vaidasi fyrir í sjónum við netagerðina í höfninni í Neskaup­ stað. „Mér brá hrikalega og get varla lýst því hvernig mér leið,“ sagði Þorgeir í viðtali við Fréttablaðið á sínum tíma en hann hafði stungið sér á kaf þann 11. febrúar 2004 til þess að kanna óveðursskemmdir á netagerðarbryggjunni. Skemmdir sem ekki stóð til að gera við fyrr en síðar á árinu, jafnvel því næsta. Lögregla brást skjótt við og bönd­ in bárust fljótt að þremenningunum enda höfðu þeir varla haft ráðrúm til þess að fela slóð sína þar sem áætlanir þeirra gerðu ekki ráð fyrir að líkið fyndist jafn fljótt og raun bar vitni. Vaidas kom til Íslands frá Litháen í febrúarbyrjun. Innvortis var hann með 61 pakkningu af metamfeta­ míni, 223,67 grömm, sem hann hafði gleypt áður en hann lagði af stað. Lést eftir fjóra daga „Líkmennirnir“ svokölluðu áttu að taka á móti honum og eftir að hafa Jónas, Grétar og Tomas við aðalmeðferð líkfundarmálsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ef kafarinn Þorgeir Jónsson hefði ekki farið að kanna skemmdir á bryggjustólpum hefði lík Vaidasar ekki fundist jafn fljótt og raun bar vitni og varla komist upp um þremenningana svo hratt og örugglega. Ótrúleg óheppni í sögulegu sakamáli Ótrúleg atburða- rás fór af stað eftir að kafari fann fyrir algera tilviljun lík í höfninni í Neskaup- stað. Fjölmiðlar fóru í kjölfarið hamförum í einu furðulegasta sakamáli síðari tíma. Kvikmyndin Undir halastjörnu byggir á líkfundarmálinu sem skýst nú aftur á yfir- borðið í aðdraganda frumsýningarinnar. Þórarinn Þórarinsson thorarinn@frettabladid.is Skáldaleyfi undir halastjörnu Leikstjórinn Ari Alexander Ergis Magnússon byggir glæpamyndina Undir halastjörnu á líkfundarmál- inu í Neskaupstað. Myndin fjallar um tvo Litháa sem koma hingað til lands með drauma um gull og græna skóga. „Ég tek mér alveg skáldaleyfi,“ segir Ari Alexander við Frétta- blaðið. „Ég reyni að einbeita mér að mannlega þættinum og þótt ég sé ekki að réttlæta neinar gjörðir þá eru þessir menn sem lenda í svona aðstæðum líka fólk.“ Ari segist vera orðinn leiður á svart- hvítum veru- leika dæmi- gerðra glæpamynda þar sem skilin milli góðra og illra eru miklu skýrari en í lífinu sjálfu. „Ég fylgdist auðvitað með þessu máli eins og öll þjóðin á sínum tíma en það sem vakti áhuga minn og kveikti í mér er að þegar allt er komið í steik þá flýja menn heim til mömmu. Hvað gerir Grétar, þessi stóri, rosalegi náungi þegar hann lendir í vand- ræðum? Hann hleypur heim til mömmu. Þetta er áhugavert. Ég segi kannski ekki fal- legt en samt er ákveðin fegurð fólgin í þessu.“ Ari Alexander segir málið minna um margt á Fargo Coen-bræðra. farist á mis í Leifsstöð komu þeir sér fyrir í íbúð í Furugrund í Kópavogi og biðu þess að Vaidas skilaði efn­ unum af sér. Skömmu síðar veiktist Vaidas herfilega þegar fíkniefnapakkn­ ingarnar stífluðu mjógirni hans og gengu ekki niður. Fjórum dögum eftir að hann lenti í Keflavík var hann látinn. Krufning leiddi síðar í ljós að yfirgnæfandi líkur væru á að Vai­ das hefði lifað ef honum hefði verið komið undir læknishendur. Lík­ mennirnir báru því hins vegar við að þeir hefðu óttast hefndaraðgerðir GRÉTAR STAKK SÍÐAN LÍKIÐ FIMM SINNUM, Í HÁLS, BRJÓST OG MAGA, TIL ÞESS AÐ HLEYPA ÚR ÞVÍ LOFTI. HNÍFNUM FLEYGÐI HANN Í HÖFNINA OG ÞEIR JÓNAS FLEYGÐU LÍKINU SÖMU LEIÐ. rússnesk/litháískrar mafíu ef þeir leystu ekki vandamálið sjálfir. Brunað í fáti í Neskaupstað Fát kom á þremenningana þegar Vaidas dó. Í ráðaleysi óku þeir þvert yfir landið í tvo sólarhringa með líkið í skottinu á meðan þeir veltu fyrir sér ólíkum leiðum til þess að losa sig við það. Jónas er sagður hafa stungið upp á því að koma líkinu fyrir í hraun­ sprungu en Malakauskas vildi grafa það, sem reyndist ómögulegt vegna þess hversu mikið frost var í jörðu. Grétar, sem á ættir að rekja til Neskaupstaðar, stakk þá upp á því að þeir færu með líkið þangað. Þar væri löggæsla í lágmarki og staðurinn fremur afskekktur. Hann væri auk þess hvort eð er á leiðinni þangað að heimsækja móður sína. Áður en þeir lögðu af stað út úr bænum komu þeir við í BYKO þar sem þeir keyptu tólf fermetra teppisstranga og límband sem þeir notuðu til að búa um líkið. Á áfangastað bökkuðu þeir Paj­ ero­bílaleigubílnum niður að höfn, veltu jarðneskum leifum Vaidasar úr teppinu og þyngdu það með keðjum og öðru lauslegu sem þeir fundu við höfnina. Grétar stakk síðan líkið fimm sinnum, í háls, brjóst og maga, til þess að hleypa úr því lofti. Hnífnum fleygði hann í höfnina og þeir Jónas fleygðu líkinu síðan sömu leið. Gripnir níu dögum síðar Grétar og Malakauskas viður­ kenndu þessar aðfarir við yfir­ heyrslur en Jónas sagðist ekki hafa orðið var við að lík hafi verið í bílnum enda hafi ferðin eingöngu verið skemmtiferð og heimsókn til ættingja Grétars. Níu dögum eftir að líkið fannst voru þremenningarnir handteknir og síðar dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi hver fyrir innflutning á fíkniefnum, fyrir að koma Vaidasi ekki til aðstoðar í neyð og fyrir illa meðferð á líki hans. Jónas komst síðan aftur í fréttir 2010 þegar hann var dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir aðkomu að upp­ setningu einnar fullkomnustu amfetamínverksmiðju sem fundist hefur á Íslandi og þótt víðar væri leitað. 2 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :1 9 F B 1 2 8 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 F 2 -C E B 4 2 0 F 2 -C D 7 8 2 0 F 2 -C C 3 C 2 0 F 2 -C B 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 2 8 s _ 2 8 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.