Fréttablaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 38
Sigurður Árnason, sérfræðingur hjá
Byggðastofnun, vann ítarlega skýrslu
um áhrif fiskeldis á byggðarlög.
Fiskeldi getur reynst lyftistöng fyrir byggðarlög, en það er erfitt að spá nákvæmlega um hvernig það hefur áhrif. NORDICPHOTOS/GETTY
Sigurður Árnason er sér-fræðingur hjá Byggðastofnun sem vann ítarlega skýrslu sem
kallast „Byggðaleg áhrif fiskeldis“.
Þar fjallar hann um hvernig fiskeldi
getur haft áhrif á byggðir og gerir
grein fyrir þeim áskorunum og
tækifærum sem því fylgja.
„Á svæðunum þar sem fiskeldi
er að koma inn hefur oft og tíðum
verið fólksfækkun og hnignun til
margra ára, sérstaklega á Vest-
fjörðum,“ segir Sigurður. „Komi inn
ný atvinnugrein sem skýtur fleiri
stoðum undir byggð og afkomu
fólks, hvort sem það er fiskeldi eða
önnur starfsemi, sérstaklega ef hún
er á stórum skala, er það líklegt til
að snúa þeirri þróun við. Það verði
þá uppbygging, fólksfjölgun og
annað slíkt.
En þetta fer algjörlega eftir því á
hvaða skala þetta verður og hvort
eldisfyrirtækin fái öll leyfin sem
þau sækjast eftir, eða einhvern
hluta af þeim,“ segir Sigurður. „Svo
snýst þetta líka að stórum hluta um
hvernig fjármögnun er á þessu. Það
er dýrt að koma upp fiski í kvíunum
og þetta er fjárfrekt áður en þetta
byrjar að gefa einhverjar tekjur.“
Getur styrkt alls kyns starf-
semi
„Ef við gefum okkur að þetta verði
á stórum skala þarf að gera ráð
fyrir umtalsverðri fólksfjölgun á
svæðunum til að mæta vinnuafls-
þörfinni. Það leiðir væntanlega
líka til þess það þurfi að byggja
upp innviði eins og skóla, leikskóla
og alls konar þjónustustarfsemi,“
segir Sigurður. „Þetta styrkir líka
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Útgefandi:
Torg ehf
Veffang:
frettabladid.is
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumaður auglýsinga:
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429
þjónustustarfsemi ýmissa aðila, til
dæmis iðnaðarmanna, flutningabíl-
stjóra og annarra sem koma til með
að vinna við eða í kringum eldið.
Sveitarfélögin þurfa líka væntan-
lega að skipuleggja lóðir fyrir
alla þessa nýju íbúa, þó það verði
samt líka eitthvað um að fólk selji
fasteignir sínar á þessum svæðum ef
fasteignaverð fer upp. Ég hugsa að
það hafi til dæmis gerst í einhverj-
um mæli fyrir austan í kringum
álversframkvæmdirnar þar,“ segir
Sigurður. „Þetta breytir náttúrulega
heilmiklu, að fara úr þessum sam-
drætti sem hefur verið ráðandi, yfir í
verulegan vöxt.
Svo skiptir miklu máli í þessu
hvað á að ganga langt í vinnslunni
á hverjum stað. Hvort það eigi bara
að slátra og pakka, eða fara út í
framleiðslu á tilbúinni matvöru.
Það getur skipt heilmiklu máli upp
á hvað verða til mörg störf í þessu og
hver tæknivæðingin verður,“ segir
Sigurður. „Ef þetta verður á mjög
stórum skala verður jafnvel kannski
farið út í framleiðslu á umbúðum og
fóðri líka, sem skapar ennþá fleiri
störf. En þetta er eitthvað sem við
vitum ekki og getum ekki vitað fyrir
fram. Það ræðst bara hvort eftir-
spurnin kallar á þetta síðar meir og
hvernig þróunin verður.“
Staðan ólík eftir stöðum
Í skýrslunni sinni skiptir Sigurður
svæðunum þar sem heimilt er að
stunda fiskeldi í þrjú aðalsvæði,
sunnanverða Vestfirði, norðanverða
Vestfirði og Austurland. Hann segir
að staðan sé ólík á þessum svæðum.
„Þetta er líklega komið aðeins
meira af stað á Vestfjörðum
sunnanverðum en á þeim norðan-
verðum,“ segir Sigurður. „Á
undanförnum árum hefur til dæmis
orðið umbreyting á Bíldudal, sem
má segja að hafi verið hnignandi
sjávarþorp. Núna eru þar tvær
stoðir, laxeldið hjá Arnarlaxi og
kalkþörungaverksmiðjan. Þar hafa
orðið miklar breytingar og það er
dæmi um hvernig þessir hlutir geta
gerst. Þróunin er hins vegar styttra
á veg komin á norðanverðum Vest-
fjörðum.
Fyrir austan höfum við tvö
fyrirtæki, Laxa og Fiskeldi Aust-
fjarða. Þau eru í samstarfi við
fiskvinnslufyrirtækið Búlandstind
á Djúpavogi og eiga í því fyrirtæki.
Þau ætla að vera með sameiginlega
vinnslu á laxi á Djúpavogi,“ segir
Sigurður. „Það hentar ágætlega,
þar sem Vísir í Grindavík ákvað að
hætta með fiskvinnslu á Djúpavogi
fyrir nokkrum árum.
Ef þessar áætlanir ganga eftir að
öllu eða miklu leyti þarf að fara
í framkvæmdir á Djúpavogi sem
snúa að húsnæði og innviðum
á staðnum,“ segir Sigurður. „Þar
gætum við séð þorp umbreytast
úr hefðbundnu sjávarþorpi yfir í
meiri fiskeldistengda starfsemi.“
Erfitt að meta áhrifin fyrir
fram
„Það er mjög erfitt að segja hvar
fiskeldi á eftir að hafa mest áhrif á
byggðir. Það fer eiginlega algjör-
lega eftir því hvernig leyfismálin
fara og hvað fyrirtækjunum finnst
hagkvæmt að gera,“ segir Sigurður.
„Djúpavogssvæðið og norðan- og
sunnanverðir Vestfirðir eru líklegir
til að verða fyrir mestum áhrifum,
en þetta er eitthvað sem við vitum
ekki.
Það er samt mikilvægt að reyna
að meta áhrif fiskeldis á byggðarlög
fyrir fram vegna þess að sveitar-
félögin þurfa að gera áætlanir og
byggja upp eftir þörfum,“ segir
Sigurður. „Ef það er farið úr sam-
drætti í uppbyggingu gæti til dæmis
þurft að bæta við starfsfólki í skipu-
lags- og byggingarmálum og breyta
aðalskipulagi og deiliskipulagi. Svo
gætu verið einhverjir þjónustuað-
ilar sem hefðu áhuga á auka við
starfsemi sína á svæðinu, því þeir
sjá fram á vöxt sem þeir vilja sinna.
Það er erfitt að segja hvernig
hlutirnir eiga eftir að þróast. Ef
af þessari uppbyggingu verður,
sem er nú kannski líklegt, þá er
bara vonandi að þetta gerist á
ákveðinn en seigfljótandi hátt, en
ekki með einhverjum hvelli,“ segir
Sigurður. „Þá verður auðveldara
fyrir samfélögin að taka við þessari
breytingu.“
Ef við gefum okkur
að þetta verði á
stórum skala þarf að gera
ráð fyrir umtalsverðri
fólksfjölgun á svæðunum
til að mæta vinnuafls-
þörfinni. Það leiðir
væntanlega líka til þess
það þurfi að byggja upp
innviði eins og skóla,
leikskóla og alls konar
þjónustustarfsemi.”
Sigurður Árnason.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RFISKELDI
2
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
9
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
F
2
-E
7
6
4
2
0
F
2
-E
6
2
8
2
0
F
2
-E
4
E
C
2
0
F
2
-E
3
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K