Morgunblaðið - 01.06.2018, Síða 58

Morgunblaðið - 01.06.2018, Síða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 Teitur Gissurarson teitur@mbl.is R eynir Sigurðsson hóf sjó- mennsku fimmtán ára. Hann fór í Vélskólann átján ára og starfaði sem vélstjóri um árabil. Reyn- ir er einn af þeim sem sigldu Arnari HU1 frá Japan til Skagastrandar ár- ið 1973 en í ár eru liðin 45 ár síðan „Japanstogararnir“ tíu komu til landsins. Ferðalagið tók um tvo mánuði en siglt var frá Japan til Ís- lands með viðkomu á mörgum fram- andi stöðum. Arnar HU1 var síðasti Japanstogarinn sem kom til landsins en 1973 keyptu íslenskir útgerðar- menn tíu skuttogara frá skipasmíða- stöð í ríki sólarinnar. Reynir settist niður með blaðamanni og sagði frá ferðalaginu, siglingunni og áhrif- unum sem kaupin höfðu á heimabæ- inn Skagaströnd. Frá Skagaströnd til Muroran Hinn 11. ágúst 1973 lögðu sjö sjóar- ar frá Skagaströnd upp í ferðalag til Japans til að sækja skuttogara fyrir heimabæinn. „Margir hverjir voru að fara í flugvél í fyrsta skipti og höfðu aldrei farið til útlanda,“ segir Reynir Sigurðsson, fyrrverandi vél- stjóri, og bendir á að sumir hafi ver- ið örlítið órólegir í sinni fyrstu flug- ferð. Eftir tveggja daga ferðalag með viðkomu í New York og Fairbanks í Alaska lentu sjóararnir í Tókýó þar sem ýmislegt forvitnilegt beið þeirra. „Við vorum í nokkra daga í Tókýó. Á hótelinu voru litasjónvörp og útvörp í öllum herbergjum og svo skoðuðum við nokkur búdda- musteri,“ segir Reynir en þess má geta að Sjónvarpið á Íslandi hóf ekki litaútsendingar úr upptökusal fyrr en árið 1977. Eftir nokkra daga í Tókýó lögðu sjómennirnir sjö af stað til Muroran, en Muroran er á Hokk- aido-eyju í Norður-Japan. „Ferðin þangað tók tvo sólarhringa,“ segir Reynir en í Muroran var skipa- smíðastöðin þar sem togarinn Arnar var smíðaður. Þar biðu þeirra þrír Íslendingar og var þá áhöfnin full- mönnuð, tíu manns. „Við vorum þar í nokkra daga. Þar fórum við í prufu- siglingu og lærðum á bátinn,“ segir Reynir en auk þess að venjast skip- inu þurftu sjóararnir að venjast menningu innfæddra. „Það var þannig að við þurftum alltaf að þvo okkur með handsturtu áður en við fórum ofan í baðkarið. Þá kom hót- elstýran, sem við kölluðum Mömmu San, og skoðaði hvort við værum nógu hreinir til að fara ofan í,“ segir Reynir hlæjandi. Hinn 22. ágúst var skipið form- lega afhent og íslenskur fáni dreginn að húni. „Það var smáveisla og Bolli Magnússon skipatæknifræðingur hélt ræðu,“ segir Reynir, en Bolli hafði séð um smíði allra Japanstog- aranna. „Við reyndar græddum svakalega á því að hafa fengið síð- asta togarann,“ segir Reynir sposk- ur á svip. Spurður nánar út í þetta svarar hann: „Sagan segir að í fyrsta togaranum hafi allar kojur verið 160 sentímetrar á lengd og vaskarnir í sextíu sentímetra hæð! Það var sem betur fer búið að laga þetta allt í síð- asta togaranum,“ segir Reynir en undirstrikar þó brosandi að hann hafi aldrei fengið þessa sögu stað- festa. Vikulegar kvöldvökur Reynir og félagar leystu festar í Japan seint í ágúst og héldu af stað heim á leið. Við tók 52 daga sigling en fyrsti áfangastaður var Havaíeyj- ar í miðju Kyrrahafinu. „Það voru oft fjörutíu gráður á daginn,“ segir Reynir en á löngum heitum dögum lágu skipverjarnir gjarnan í sólbaði á dekkinu. „Þess á milli fylgdumst við með fuglum og fiskum en mönn- um leiddist stundum,“ segir Reynir og bætir við að oft hafi verið haldnar kvöldvökur á skipinu til að stytta stundirnar. „Við vorum með kvöld- vökur allavega vikulega. Það voru margir fínir söngvarar og gítarleik- arar um borð og svo urðu til ansi fín- ir sögumenn og hagyrðingar á leið- inni.“ Reynir, sem hefur alla tíð verið mikill söngvari og gítarleikari, lék sér einnig við að taka upp tónlist á leiðinni. „Við vorum með nokkur segulbandstæki,“ segir Reynir en ásamt því að hafa keypt segulbands- tæki fyrir vini og vandamenn voru keyptir gítarar og annað dót til að flytja heim til Íslands. „Svo spilaði ég og söng „Bláu augun þín“ inn á segulbandið og söng svo raddir inn á næsta tæki,“ segir Reynir og bætir við: „Þá var ég bara kominn með stúdíó í miðju Kyrrahafi.“ Einungis tveimur dögum var eytt í höfuðborg Havaí, Honolulu, en þar var eldsneyti og vatni bætt á skipið. Skipverjarnir eyddu dögunum á baðströndum og í sjónum við þær en Reynir minnist þess að í Honolulu hafi verið mikið líf og fjör. „Gat ekki séð hænu á vappi í mörg ár á eftir“ Frá Havaí var haldið í átt að Mið- Ameríku, en siglingin til Panama tók Frá Skagaströnd til Japans og aftur 45 ár eru frá komu Japanstogaranna til Íslands. Kyrrahafið og Atlantshafið voru bæði tekin í einni og sömu ferðinni. Frægir Frétt sem birtist í Tímanum stuttu eftir brottför til Japan. Reynir sést standa lengst til vinstri með höndina utan um Árna bróður sinn. Ljósmynd/Úr einkasafni Heitt Á kyrrahafinu var fór hitinn oft yfir 40 gráður. Þá var tíminn nýttur í að sóla sig en þeir sem áttu ekki skýlur notuðu skó til að hylja viðkvæmustu svæðin. Athöfn Bolli Magnússon heldur ræðu við afhendingu togarans í Japan. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Víðförull Reynir hefur marga fjöruna sopið á ferðum sínum um heiminn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.