Morgunblaðið - 22.06.2018, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 2. J Ú N Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 145. tölublað 106. árgangur
LÖNG TÓNLEIKA-
FERÐ OG SÓLÓ-
PLATA Á LEIÐINNI GRÁSLEPPAN GEFUR VEL
GERSEMAR ÚR
GEYMSLUM TIL
SÝNIS Í HAFNARFIRÐI
TVEIR MILLJARÐAR 18 HAFNARBORG 30ÓLAFUR ARNALDS 33
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Icelandair mun ekki segja upp flug-
mönnum fyrir veturinn líkt og gert
hefur verið um áratugi. 64 flugmenn
voru sérstaklega ráðnir til starfa fyr-
ir sumarið, sem er metfjöldi, en að
þeim meðtöldum munu um 500 flug-
menn starfa hjá félaginu í vetur.
Ástæðan er umfangsmeiri verk-
efni t.d. aukið framboð í leiðakerfi
árstíðasveiflu í rekstrinum og mark-
visst hafi verið unnið að því um ára-
bil. „Einn liður var fjárfesting í nýj-
um flugvélum, Boeing 737MAX, sem
henta okkar leiðakerfi afar vel. Með
vetraráætlun okkar fyrir næsta vet-
ur stígum við mikilvæg skref og á
næsta ári tökum við sex nýjar flug-
vélar í notkun,“ segir hann.
„Mér finnst afar jákvætt að þessar
breytingar hafa það í för með sér að
félagið þarf ekki að segja upp flug-
mönnum fyrir þennan vetur eins og
það hefur þurft að gera undanfarna
áratugi vegna árstíðasveiflunnar í
rekstrinum. Við horfum til framtíðar
og erum í góðri stöðu til að bregðast
við óskum viðskiptavina okkar um
góða og hagkvæma þjónustu í flugi,“
segir Björgólfur.
Icelandair flýgur til 33 áfanga-
staða í vetur, en þeir voru 27 síðasta
vetur. Tíðnin verður einnig aukin til
margra áfangastaðanna.
flugfélagsins. Þá munu milli 110 og
120 flugmannanna, samhliða öðrum
störfum, fá þjálfun á nýjar Boeing
737MAX-flugvélar sem félagið hefur
fest kaup á. Sex vélar verða afhentar
Icelandair á næsta ári og teknar í
notkun frá janúar fram í apríl.
Tekist að minnka árstíðasveiflu
Björgólfur Jóhannesson, forstjóri
Icelandair, segir það hafa verið
keppikefli hjá félaginu að minnka
Segja flugmönnum ekki upp
64 flugmenn sem ráðnir voru fyrir sumarið halda áfram hjá Icelandair í vetur
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fær gott tæki-
færi til að stíga stórt skref í átt að sextán liða úrslitum
heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu þegar það
mætir Nígeríu í Volgograd klukkan 15 í dag. Eftir stór-
sigur Króata á Argentínumönnum í gær liggur fyrir að
annaðhvort Ísland eða Nígería verður í öðru sæti D-
riðils að leik loknum og í góðri stöðu til að komast
áfram í keppninni.
Um þrjú þúsund Íslendingar verða á leiknum í dag
og í þeirra hópi er Evgenía Mikaelsdóttir sem er komin
til Volgograd í fyrsta skipti en þar féll afi hennar í síð-
ari heimsstyrjöldinni. Hún fékk endanlega staðfest í
gær að borin hefðu verið kennsl á hann en nafn hans er
að finna í hvelfingu við stærstu styttu í Evrópu, Móð-
urlandið kallar, sem er steinsnar frá knattspyrnuvell-
inum í borginni. »4,6 og Íþróttir
Gríðarleg spenna
fyrir leikinn í dag
Morgunblaðið/Eggert
Stuðningur Fjöldi Íslendinga var mættur til Volgograd í gær og fylgdist með útsendingu frá leik Króata og Argentínu. Gríðarleg spenna er í D-riðlinum á HM í Rússlandi.
Landsliðið Strákarnir tóku létta æfingu í Volgograd í gær.
Um 2.400 manns störfuðu hjá
starfsmannaleigum á fyrstu fimm
mánuðum ársins. Þetta er fjölgun
um 40% frá síðasta ári og um fimm-
föld fjölgun frá árinu 2016. At-
vinnulausum erlendum ríkisborg-
urum hefur einnig fjölgað úr 963 í
1.396 milli ára. Þetta er hæsta at-
vinnuleysistíðni í þessum hópi frá
byrjun ársins 2014. Vinnumála-
stofnun gaf út 119 atvinnuleyfi
vegna skorts á vinnuafli árið 2016
og Gísli Davíð Kristjánsson, sér-
fræðingur hennar, segir skort vera
á starfsmönnum á Íslandi. »10
Atvinnulausum út-
lendingum fjölgar