Morgunblaðið - 22.06.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 22.06.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2018 Ný sending – frábært úrval Flottir í fötum Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími 551-3033 gallabuxur Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Reykjavíkurborg mun að óbreyttu geta veitt framkvæmdaleyfi vegna milljarðauppbyggingar í Borgartúni 24. Hagsmunaaðilar hafa þó mögu- leika á að leggja fram kæru í málinu til úrskurðarnefndar auðlinda- og umhverfismála. Fjárfestar hyggjast byggja allt að 65 íbúðir og atvinnuhúsnæði á lóð- inni Borgartúni 24. Miðað við fast- eignaverð á svæðinu yrði söluverð- mæti íbúðanna 3-4 milljarðar. Borgarstjórn Reykjavíkur sam- þykkti í febrúar breytt deiliskipulag lóðarinnar Borgartúns 24. Hafði lög- maður húsfélags Mánatúns 7-17 þá komið á framfæri mótmælum til skipulagsfulltrúa. Fyrirhugaðar skipulagsbreytingar væru í and- stöðu við lög og brytu gegn lögvörð- um hagsmunum íbúa Mánatúns. Skipulagsstofnun gerði í apríl at- hugasemdir við breytingar á deili- skipulaginu. Taldi stofnunin að eins „umfangsmiklar breytingar og ráð- gerðar eru á lóð Borgartúns 24, bor- ið saman við núverandi byggða- mynstur á reitnum og gildandi deiliskipulag reitsins, kalli á heildar- endurskoðun deiliskipulags götu- reitsins“. Af því tilefni sagði Einar Páll Svavarsson, fulltrúi íbúa í Mánatúni 7-17, við Morgunblaðið að borgin hlyti að hætta við áformin. Borgartún 24 er hluti af hugmynd- um um þéttingu byggðar í Borgar- túni 18-24 og Nóatúni 4. Aðeins einn vildi breyta Borgarráð samþykkti hið breytta deiliskipulag Borgartúns 24 fyrr í þessum mánuði. Með fylgdi svarbréf skipulagsfulltrúa. Þar kom meðal annars fram að niðurstaða viðræðna milli borgarinnar og lóðareigenda hefði verið sú að „einungis eigendur á Borgartúni 24 voru … tilbúnir til þess að breyta skipulagi á sinni lóð“. Þær upplýsingar fengust hjá Skipulagsstofnun að deiliskipulags- breytingin hefði þegar tekið gildi með birtingu í Stjórnartíðindum. Eftir það hefðu hagsmunaaðilar mánuð til að kæra skipulagið. Bent var á að samkvæmt lögum bæri Skipulagsstofnun að koma at- hugasemdum á framfæri um form eða efni ef hún teldi ástæðu til. Sveit- arstjórn ætti á móti að taka afstöðu til þessarar athugasemdar og bregð- ast við ef formgallar væru og rök- styðja ef hún væri ekki sammála um efnisgalla. Það hefði borgin gert. Í sjálfu sér væri ekki lagaskylda að senda breytinguna aftur til yfirferð- ar Skipulagsstofnunar. Þótt slíkt væri oft gert hefði borgin uppfyllt lagaskyldu um að bregðast við at- hugasemdum stofnunarinnar. Því hefði borgin heimild til að láta skipulagið taka gildi án nýrrar yfir- ferðar hjá stofnuninni. Málið væri því úr höndum Skipulagsstofnunar. Með birtingu í Stjórnartíðindum hefði breytt deiliskipulag tekið gildi. Þar með væri hægt að veita bygging- arleyfi á grundvelli hennar. Grænt ljós á háhýsaröð  Reykjavíkurborg mun að óbreyttu geta veitt framkvæmdaleyfi í Borgartúni 24  Háhýsabyggð var mótmælt  Skipulagsstofnun hyggst ekki aðhafast frekar Teikning/Yrki arkitektar Drög að nýbyggingum Nú er einnar til þriggja hæða atvinnu- og skrifstofu- húsnæði í Borgartúni 24. Áformað er að reisa allt að sjö hæða byggingu. Miðnæturhlaup Suzuki fór fram í tuttugasta og sjöunda sinn í gærkvöldi á sumarsólstöðum. Hlaupið var af stað um níuleytið frá Engjavegi í Laugardal og hlaupnir ýmist 21, 10 eða 5 kíló- metrar þar til komið var í mark í trjágöngunum við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hlaupið og sprett undir björtum næturhimni Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Guðmundur Kristjánsson, fráfar- andi stjórnarformaður HB Granda, hefur verið ráðinn forstjóri félags- ins, en meirihluti stjórnarinnar ákvað í gær að ganga til samninga við Vilhjálm Vilhjálmsson, forstjóra, um starfslok hans hjá félaginu. Tók hann við sem forstjóri HB Granda árið 2012 þegar Eggert Benedikt Guðmundsson lét af störfum. Magnús Gústafsson, fyrrverandi aðalræðismaður Íslands í New York og forstjóri Coldwater Seafood og Hampiðjunnar, er nýr stjórnarfor- maður í stað Guðmundar og Rann- veig Rist, forstjóri Rio Tinto á Ís- landi, verður áfram varaformaður. Lætur af störfum hjá Brimi Guðmundur mun samhliða láta af störfum sem forstjóri Brims hf., en félagið, sem er í eigu Guðmundar, festi þann 18. apríl sl. kaup á 34% hlut í HB Granda af félögum í eigu Kristjáns Loftssonar. Í framhaldinu tók Guðmundur sæti stjórnarfor- manns í félaginu. Magnús var kjör- inn nýr inn í stjórn á aðalfundi 4. maí sl. og hafði stuðning Guðmundar, að því er fram kom í Morgunblaðinu. Þær Rannveig Rist og Anna G. Sverrisdóttir voru sjálfkjörnar til stjórnarsetu vegna lagafyrirmæla um kynjakvóta, en þær sátu áður í stjórninni. Rannveig kom fyrst inn í stjórn með stuðningi Kristjáns Loftssonar og Anna á grundvelli stuðnings Lífeyrissjóðs verslunar- manna. Eggert Benedikt Guð- mundsson, fyrrv. forstjóri HB Granda og N1, kom nýr inn í stjórn að undirlagi lífeyrissjóða sem eiga allstóran hlut í HB Granda. Hvorki Guðmundur né Vilhjálmur gáfu kost á viðtali í gær og þeir stjórnarmenn sem náðist til vildu ekki tjá sig um forstjóraskiptin. Guðmundur Kristjánsson Vilhjálmur Vilhjálmsson Skipt um mann í brúnni  Guðmundur nýr forstjóri HB Granda Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Víða um land skein sólin samfellt í margar klukkustundir á miðviku- dag, en alls óvíst er hvenær lands- menn geta næst átt von á slíkum glaðningi. Útlit er fyrir að lægðir gangi hver af annarri yfir landið á næstunni. Spurð hvort lægðagangi fari ekki að linna með breytingum á veðri sunnan- og vestanlands segir Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur og hópstjóri veðurþjónustu á Veð- urstofunni, að ekki sé útlit fyrir breytingar næstu viku til tíu daga. Hún tekur þó fram að safnspár séu ekki allar sammála um fjölda lægða, en safnspár eru lang- tímaspár með ýmsum möguleikum þar sem reynt er að greina óvissu í spánum. „Stóra myndin er sú sama; það eru viðvarandi suðvestanáttir og lægðabraut hér yfir landið. Lengra fram í tímann eru merki um breytingar, en ekki mjög áreið- anlegar.“ Einar Sveinbjörnsson veður- fræðingur sagði í gær að fram til mánaðamóta mætti sjá sex lægðir í veðurspánum með úrkomuskilum. Það hefði vætu í för með sér á sunnan- og vestanverðu landinu, en um helgina er spáð fínu veðri aust- anlands þar sem hitinn fer í 20 stig dag eftir dag, með sólskini annað veifið að minnsta kosti. Næturfrost á Þingvöllum Á höfuðborgarsvæðinu er líklegt að hitastig verði á næstunni um og lítið eitt yfir tíu stig þegar hlýjast verður að deginum. Í fyrrinótt mældist næturfrost á Staðarhóli, Grímsstöðum á Fjöllum og Þing- völlum, þar sem hitastig fór í mínus 2,2 gráður, sem má rekja til þess hversu heiðskírt var daginn áður. Lægðagangur næstu daga  Ekki líkur á breyttu veðri  Viðvarandi sunnanáttir Vætutíð Áfram mun rigna í júní. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.