Morgunblaðið - 22.06.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 22.06.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2018 Fyrsti borgarstjórnarfundur ný-kjörinnar borgarstjórnar var haldinn á þriðjudag og var um margt sérstakur. Þar komu meðal annars fram ásakanir frá fulltrúum minni- hlutaflokkanna um trúnaðarbrest og leka, sem tæplega er farsælt í upp- hafi kjörtímabils. Ekki er síður umhugs- unarvert það sem fram kom hjá Vigdísi Hauksdóttur, fulltrúa Miðflokksins, og Kol- brúnu Baldursdóttur, fulltrúa Flokks fólks- ins, eftir fundinn.    Vigdís sagðist „orð-laus yfir þeim ávirðingum og árás- um sem nýkjörinn borgarfulltrúi Sósíal- ista, Sanna Magda- lena fær yfir sig úr öllum áttum – ég bara næ þessu ekki. Það var með miklu stolti sem ég greip til varna fyrir hana á borgarstjórnarfundinum eftir að bæði Dagur og Lív voru búin að hæða hana og spotta úr pontu borgarstjórnar. Það er bæði ljótt og subbulegt að fólk sem hefur reynslu á þessum vettvangi ráðist að ný- kjörnum borgarfulltrúa á hennar fyrsta fundi“.    Kolbrún tjáði sig á svipuðum nót-um: „Á mínum fyrsta borg- arstjórnarfundi 19. júní sem stóð yfir í 9 tíma kom það mér mjög á óvart hvernig sumir höguðu sér og leyfðu sér að tala til annarra borgarfulltrúa í stjórnarandstöðu. Það mátti heyra fliss eins og verið væri að hæða og spotta okkur í stjórnarandstöðunni. Í tvígang taldi ég mig knúna til að fara í pontu og krefjast þess að fólk hag- aði sér vel, sýndi kurteisi, virðingu og væri málefnalegt enda get ég ekki liðið að sitja þögul við þessar að- stæður.“    Ætli þetta sé fyrirboði þess semkoma skal hjá hinum nýja gamla meirihluta? Fliss, háð og spott? STAKSTEINAR Kolbrún Baldursdóttir Vigdís Hauksdóttir Veður víða um heim 21.6., kl. 18.00 Reykjavík 11 alskýjað Bolungarvík 13 alskýjað Akureyri 14 alskýjað Nuuk 6 rigning Þórshöfn 12 heiðskírt Ósló 15 skýjað Kaupmannahöfn 15 léttskýjað Stokkhólmur 12 skýjað Helsinki 15 skýjað Lúxemborg 18 heiðskírt Brussel 14 léttskýjað Dublin 17 heiðskírt Glasgow 16 heiðskírt London 18 heiðskírt París 19 heiðskírt Amsterdam 14 skúrir Hamborg 11 skúrir Berlín 17 léttskýjað Vín 32 skýjað Moskva 24 heiðskírt Algarve 23 léttskýjað Madríd 32 heiðskírt Barcelona 29 heiðskírt Mallorca 30 léttskýjað Róm 25 þrumuveður Aþena 29 léttskýjað Winnipeg 27 alskýjað Montreal 15 léttskýjað New York 23 skýjað Chicago 19 rigning Orlando 29 þrumuveður Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 22. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:56 24:05 ÍSAFJÖRÐUR 1:35 25:35 SIGLUFJÖRÐUR 1:18 25:18 DJÚPIVOGUR 2:10 23:49 Dagur Hoe Sigurjónsson hefur verið dæmdur í 17 ára fangelsi, sekur um manndráp og manndrápstilraun. Hann var ákærður fyrir að hafa orðið Albananum Kelvin Sula að bana með hnífstungu á Austurvelli aðfaranótt 3. desember sl. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þá var Dagur einnig ákærður fyrir manndrápstilraun, en hann réðst einnig á Elio Hasani. Sá var útskrif- aður af sjúkrahúsi fljótlega eftir árás- ina. Dagur neitaði sök við þingfest- ingu málsins og bar við minnisleysi við aðalmeðferð þess. Sagði hann að mennirnir tveir hefðu veist að honum og veitt honum höfuðhögg. Eftir höf- uðhöggið kveðst hann ekki muna hvað gerðist. Verjandi Dags sagði vankanta á rannsókn málsins og skort á rann- sóknar- og sönnunargögnum eiga að leiða til sýknu hans. Aftur á móti sagði saksóknari engan vafa ríkja um sekt Dags og fór fram á 18 ára fang- elsisrefsingu. Auk fangelsisvistarinnar er Degi gert að greiða rúmar fimm milljónir króna í sakarkostnað. Þá ber honum að greiða móður Sula miskabætur að fjárhæð rúmlega fjórar milljónir króna og föður Sula rúmlega þrjár milljónir. Þá ber honum að greiða Hasani 1,5 milljónir í miskabætur. Dagur Hoe dæmdur í 17 ára fangelsi  Sakfelldur fyrir hnífstungu á Aust- urvelli og tilraun til manndráps Morgunblaðið/Árni Sæberg Dæmdur Dagur Hoe Sigurjónsson, t.h., mætir hér í héraðsdóm. Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstarétt- ardómari, var í Héraðsdómi Reykjaness í gær sýknaður af kröfu Bene- dikts Bogasonar hæstarétt- ardómara í meiðyrðamáli sem sá síðarnefndi höfðaði í fyrra. Benedikt fór fram á að ummæli sem Jón Steinar við- hafði um hann í ritinu „Með lognið í fangið – Um afglöp Hæstaréttar eftir hrun“ yrðu dæmd dauð og ómerk. Benedikt byggði málsókn sína á því að ummælin „dómsmorð“ væru ærumeiðandi aðdróttanir eins og þau birtast í kafla bókarinnar um mál Baldurs Guðlaugssonar. Byggði hann á því að leggja yrði til grundvallar tilvitnaða skilgreiningu J.B. Hort, sem stefndi vísar til í riti sínu, á því hvað felst í hugtak- inu „dómsmorð“. Benedikt fór fram á að fá greidd- ar tvær milljónir króna úr hendi Jóns. Málskostnaður féll niður fyrir héraðsdómi. Jón Steinar Gunnlaugsson Jón Steinar sýknaður  Ummæli um „dómsmorð“ standa Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt kaupsýslumanninum Sigmari Vilhjálmssyni og fyrirtækinu Sjarmi og Garmi ehf. í vil í málsókn gegn Stemmu hf. Sigmar hafði stefnt Stemmu vegna deilna hans við Skúla Gunnar Sigfússon um ferðaþjónustuverkefni á Hvolsvelli. Hvatinn að lögsókninni var höfn- un Skúla á tilboði Íslandshótela í lóðirnar upp á 50 milljónir króna. Þess í stað var tilboð Fox ehf. og Þingvangs um kaup á annarri lóð- inni og kauprétt á hinni upp á 40 milljónir samþykkt. Ákvörðunin hefur nú verið ógilt og Stemmu gert að greiða Sigmari 4 milljónir í bætur. Sigmar Vilhjálms- son fær sínu fram- gengt í héraðsdómi Landsréttur sneri í gær við úr- skurði héraðsdóms í máli Atla Helgasonar. Atli hafði lagt fram kröfu um að öðlast málflutnings- réttindi á ný eftir að hann var svipt- ur þeim í kjölfar fangelsisdóms sem hann hlaut fyrir morð árið 2001. Héraðsdómur hafði áður tekið kröfu Atla til greina en með ákvörðun Landsréttar er nú ljóst að Atli mun ekki hljóta réttindin á ný. Í niðurstöðu Landsréttar var vísað til þess að bú Atla hefði verið tekið til gjaldþrotaskipta árið 2001 og að lögum samkvæmt megi því ekki veita honum réttindin. Atli fær ekki mál- flutningsréttindi Mótmælafundur var haldinn á Aust- urvelli í gær fyrir mannúðlegri stefnu í málefnum flóttamanna og innflytjenda á heimsvísu. Eftir ræðuhöld var gengið að bandaríska sendiráðinu, en kveikjan að fundinum voru aðgerðir Banda- ríkjamanna á landamærum Mexíkó þar sem börn hafa verið skilin frá foreldrum sínum eftir að ákveðið var að draga fyrir rétt alla fullorðna sem kæmu til landsins með ólögmætum hætti. Snæbjörn Brynjarsson var fundarstjóri og ræðumenn voru Anna Lúðvíksdóttir, Prodhi Man- isha, Nicole Leigh Mosty, Dóra Magnúsdóttir, Elísabet Jökulsdóttir og Þórunn Ólafsdóttir. Morgunblaðið/Valli Mótmæli Þórunn Ólafsdóttir flutti ávarp á Austurvelli ásamt fleirum. Mótmæltu slæmri meðferð barna  Gengu að bandaríska sendiráðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.