Morgunblaðið - 22.06.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2018
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tæplega 2.400 einstaklingar voru
starfandi á vegum starfsmannaleiga
fyrstu fimm mánuði ársins. Það er
um 40% aukning milli ára. Þá er
fjöldinn um fimmfalt meiri en 2016.
Gísli Davíð Kristjánsson, sérfræð-
ingur hjá Vinnumálastofnun, segir
flest störfin í mannvirkjagerð. Þá
hafi þó nokkuð margir starfsmenn
verið ráðnir á dekkjaverkstæði.
Til upprifjunar er starfsmanna-
leiga í lögum skilgreind sem þjón-
ustufyrirtæki sem leigir út starfs-
menn til notendafyrirtækja gegn
gjaldi. Starfsmennirnir eru undir
verkstjórn notandans.
Hins vegar fækkaði útsendum
starfsmönnum hjá þjónustufyrir-
tækjum úr 695 í 637 í maí milli ára,
eða um 8,3%. Útsendir starfsmenn
eru þeir sem koma á vegum fyrir-
tækja í Evrópu og vinna að
ákveðnum verkefnum, yfirleitt um
skemmri tíma.
Gísli Davíð segir fjölda starfs-
manna hjá þjónustufyrirtækjum
mikið ráðast af stærri verkefnum
eins og uppbyggingu á Bakka og
byggingu kísilvers í Helguvík. Þess-
um verkefnum sé nær lokið.
Skortsleyfum fjölgar enn
Vinnumálastofnun gaf út 119 at-
vinnuleyfi árið 2016 vegna skorts á
vinnuafli, svonefnd skortsleyfi. Til
samanburðar voru gefin út 229 slík
leyfi í fyrra, sem var 92% aukning.
Til samanburðar voru veitt 98 slík
leyfi frá janúar til maí í ár.
„Þessar tölur benda til að umsókn-
um um skortsleyfi sé enn að fjölga,“
segir Gísli Davíð og tekur fram að
margt geti breyst á árinu.
Skortur á húsnæði á sumum svæð-
um á landsbyggðinni eigi þátt í slík-
um leyfum, sem og leyfi til mat-
reiðslumanna.
„Allar þessar tölur benda til
skorts á starfsfólki á Íslandi. Það er
eftirspurn eftir starfsfólki sem virð-
ist ekki vera á innlendum vinnu-
markaði. Stór hluti starfsmanna á
starfsmannaleigum kemur frá öðr-
um löndum. Um tveir af hverjum
þremur nýskráðum starfsmönnum
hjá starfsmannaleigum í maí voru í
mannvirkjagerð. Það virðist vera
búið að hreinsa upp innlendan vinnu-
markað í þessu efni. Að það sé búið
að ráða alla sem hafa áhuga eða
þekkingu og getu á þessu sviði,“
segir Gísli Davíð.
Ekki jafn margir síðan 2014
Alls voru 4.456 einstaklingar á at-
vinnuleysisskrá hjá Vinnumálastofn-
un í lok maí. Til samanburðar voru
3.856 á skránni í lok maí í fyrra.
Atvinnuleysið mældist 1,9% í maí í
fyrra en 2,2% í maí í ár. Þar af voru
2.893 íslenskir ríkisborgarar án
vinnu í lok maí 2017 en 3.060 í lok maí
í ár. Þá fjölgaði atvinnulausum er-
lendum ríkisborgurum úr 963 í lok
maí í fyrra í 1.396 í maí í ár. Hafa
ekki svo margir í þeim hópi verið án
vinnu síðan í febrúar 2014.
Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá
Vinnumálastofnun, segir atvinnu-
leysistölur almennt benda til að
hægt hafi á nýráðningum, einkum í
ferðaþjónustu. „Það er alltaf svo að
þegar hægir á hagkerfinu standa út-
lendingar verr að vígi. Þá út af
tungumálakunnáttu og slíkum þátt-
um. Þeir missa þá frekar vinnuna en
Íslendingarnir, til dæmis í ferða-
þjónustu. Það getur verið skýringin.
Annað atriði er að útlendingum
fjölgaði gríðarlega hratt á landinu í
fyrra og á vinnumarkaði líka. Það
var eitt mesta innflutningsár útlend-
inga í sögunni. Því vaknar sú spurn-
ing hvort þeir hafi verið farnir að
bítast um sömu vinnuna. Að hingað
hafi e.t.v. komið of margir útlend-
ingar,“ segir Karl um þessa þróun.
Alls fluttu 7.900 fleiri erlendir
ríkisborgarar til Íslands í fyrra en
frá landinu. Það er metfjöldi en fyrra
metárið, 2006, voru aðfluttir erlendir
ríkisborgarar umfram brottflutta
5.535. Á fyrsta fjórðungi í ár var
þessi tala komin í rúmlega 1.700.
40% fjölgun ráðninga
Aukin umsvif starfsmannaleiga Mannvirkjageirinn sagður kalla á starfsfólk
Skortsleyfum fjölgar einnig Atvinnulausum erlendum ríkisborgurum fjölgar
Atvinnuleysi íslenskra og erlendra ríkisborgara
Fjöldi atvinnulausra frá janúar 2012 til maí 2018 Atvinnulausir í lok maí 2018
Atvinnulausir erlendir ríkisborgarar í maímánuðiErlendir starfsmenn í maímánuði 2016-2018
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0
1.800
1.500
1.200
900
600
300
0
Hjá starfsmannaleigum
Hjá þjónustufyrirtækjum
2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Heimild: Vinnumálastofnun
2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Alls
4.456
1.396
963
877
1.042
1.290
1.439
1.731
Íslenskir ríkisborgarar
Erlendir ríkisborgarar
Íslenskir ríkisborgarar
Erlendir ríkisborgarar
Pólskir ríkisborgarar
Atvinnulausir alls
330
695
637
485
1.715
2.395
2016
2017
2018
Alls
815
Alls
2.410
Alls
3.032
3.060
1.396
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Óvenju margir varadómarar hafa
verið kallaðir til starfa í Hæstarétti
Íslands að undanförnu. Þorsteinn A.
Jónsson, skrifstofustjóri réttarins,
segir að um síðustu áramót hafi
Hæstiréttur átt eftir að dæma í 270
einkamálum sem áfrýjað var fyrir
áramót. Rétturinn taldi nauðsynlegt
að hraða meðferð þessara mála. Tek-
in var ákvörðun um að í málum sem
dæmd yrðu af þremur dómurum
dæmdu tveir fastir hæstaréttardóm-
arar og einn varadómari. Þorsteinn
segir að mest hafi verið um mál sem
dæmd voru af þremur dómurum frá
síðustu áramótum. Því hafi verið kall-
aður til einn varadómari í hverju
máli.
37 einstaklingar hafa verið kallaðir
til sem varadómarar. Þeim má skipta
í fjóra meginhópa. Það eru fyrrver-
andi hæstaréttardómarar, landsrétt-
ardómarar, héraðsdómarar og pró-
fessorar við lagadeildir Háskóla
Íslands og Háskólans í Reykjavík.
Auk þess er einn eða tveir sem falla
ekki undir fyrrtalda hópa. Þorsteinn
segir að flestir, ef ekki allir, varadóm-
ararnir hafi verið kallaðir til oftar en
einu sinni.
Sama fyrirkomulag í haust
Síðasta málið sem flutt var fyrir
réttarhlé í Hæstarétti var flutt í gær-
morgun. Þorsteinn segir að þau 64
mál sem eftir standa af þeim 270 mál-
um sem áfrýjað var fyrir áramótin
verði dæmd í haust. Þá verður sama
fyrirkomulag haft varðandi mál sem
dæmd eru af þremur dómurum. Hins
vegar munu fastir dómarar Hæsta-
réttar dæma í málum sem dæmd eru
af fimm dómurum, nema um sé að
ræða vanhæfi eða lögmæt forföll sem
valda því að ekki sé hægt að manna
dóminn með föstum dómurum. Svo
háttar til í tveimur til þremur málum
sem eftir er að dæma í.
Margir
vara-
dómarar
Hæstiréttur brást
við málafjöldanum
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Rétta
þjálfunin
sem veitir vellíðan!
Haustkortið á sérstökum
sumarafslætti 43.900 kr.
Tilboð gildir dagana 20. - 29. júní!
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
kistufell.com
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313
Hópur sjálfboðaliða heldur í hreins-
unarferð á Hornstrandir frá Ísa-
firði í dag. Þetta er í fimmta skipti
sem farið er af stað í slíka hreinsun
og í ár verða fjörur Bolungarvíkur
á Ströndum hreinsaðar af rusli. Að-
sókn var mjög góð í ár líkt og fyrri
ár, að sögn Gauta Geirssonar,
skipuleggjanda hreinsunarinnar,
og ljóst að færri komust að en vildu.
Í ár er 40 manna hópur sem leggur
í þennan leiðangur og mun hóp-
urinn gista tvær nætur á Ströndum
áður en haldið er heim á sunnudag.
Landhelgisgæslan er einn sam-
starfsaðila hreinsunarinnar og mun
varðskip hennar sjá um að ferja
ruslið í land.
Sjálfboðaliðar hreinsa rusl á Hornströndum