Morgunblaðið - 22.06.2018, Side 25
Mér eru sérstaklega minn-
isstæðar stórhátíðir, þegar hún
hafði lokið við frágang eftir
veisluhöld handa fjölskyldu
sinni fór hún til vinnu sinnar á
Sjúkrahús Selfoss, þar sem hún
hafði tekið vakt í stað einhvers
annars sem hún taldi að hefði
meiri þörf fyrir frí þá hátíðina.
Unnur hugsaði meira um
aðra en sjálfa sig og taldi ekki
eftir sér að sinna öðrum í fjöl-
skyldunni eða einhverjum sem
átti undir högg að sækja, hvort
sem er fátæk börn eða konur
úti í heimi. Unnur tók einnig
þátt í félagsskap sem hafði það
að markmiði að hjálpa bág-
stöddum.
Unni varð tíðrætt um órétt-
læti þessa heims og hún var
mikil baráttukona réttlætis og
jafnréttis og hafði hún mikil
áhrif á dætur sínar sem og
dætradætur.
Unnur var frekar hlédræg og
var ekki að trana sér fram eða
hafa hátt um það sem hún hafði
gert eða áorkað. Fyrir henni
var umbunin að vita að hún
gerði sitt besta.
Í mínum huga er ekki spurn-
ing að heimurinn væri mun
betri ef fleiri væru jafn um-
hyggjusamir og hún Unnur
heitin, tengdamóðir mín.
Guð varðveiti minningu
hennar því hún er mikilvæg
fyrirmynd komandi kynslóða.
Hermann Kristjánsson.
Á leið okkar á lífsgöngunni
verðum við samferða fólki af
hinum ólíkustu gerðum. Unnur
vinkona mín sem kvödd er í dag
var ein af þeim perlum sem
gott var að kynnast og eiga
samleið með.
Ég kynntist henni fyrst í
Zontaklúbbi Selfoss þar sem
hún hafði starfað lengi og verið
í forystu okkar í baráttu fyrir
betri kjörum kvenna á heims-
vísu. Unnur var einbeitt og
skarpskyggn í störfum sínum,
lagði alltaf gott til málanna og
óþreytandi að vinna að málefn-
um okkar. Í slíkum hópi mynd-
ast vinátta og samstaða og átt-
um við Zontasystur, eins og við
kölluðum okkur, margar
ánægjustundir við leik og störf
og er mér minnisstæð ferð okk-
ar á heimsþing Zonta í Gauta-
borg þar sem Unnur naut sín
vel. Eftir að við hættum störf-
um fyrir alþjóðasamtökin binda
okkur sterk bönd sem ekki
slitna.
Unnur var falleg kona, hafði
einstaklega prúðmannlega
framkomu og stafaði af henni
rósemd og alúð.
Það var gott að koma á hlý-
lega heimilið þeirra Guðjóns og
í fallega garðinn hennar.
Unnur hafði góða frásagnar-
gáfu og skopskyn og var fróð-
legt og skemmtilegt að heyra
hana segja frá ýmsum atvikum
frá fyrri tíð.
Við áttum oft löng símtöl þar
sem við ræddum heimsmálin,
forlögin og hvað lífið getur tek-
ið á sig hinar ólíklegustu mynd-
ir, gleðilegar, sorglegar og allt
þar á milli.
Það var alltaf gefandi að
spjalla við Unni og ég fékk allt-
af fallegar kveðjur og bless-
unaróskir í lokin.
Á síðustu árum bilaði heilsa
Unnar og var það henni þung-
bært en hún naut góðrar hjúkr-
unar á Ási, fjölskyldan umvafði
hana og hún kvaddi þessa jarð-
vist í faðmi hennar á sumardegi
í liðinni viku.
Ég veit að ég mæli fyrir
munn okkar í vinkvennahópn-
um þegar ég sendi ykkur í fjöl-
skyldunni innilegar samúðar-
kveðjur. Unnur er kvödd með
virðingu og kærri þökk fyrir
samfylgdina.
Jósefína
Friðriksdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2018
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Smáauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Hluthafafundur Síldarvinnslunnar hf.
verður haldinn miðvikudaginn 11. júlí 2018 á
skrifstofu félagsins að Hafnarbraut 6,
Neskaupstað, kl. 11:00.
Dagskrá:
1. Staðfesting ákvörðunar aðalfundar um
kjör endurskoðenda
2. Önnur mál, löglega fram borin
Stjórn Síldarvinnslunnar hf.
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Svarfaðarbraut 16, Dalvíkurbyggð, fnr. 215-5294, þingl. eig. Vigdís
Sævaldsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., miðvikudaginn 27.
júní nk. kl. 14:20.
Eiðsvallagata 20, Akureyri, , fnr. 214-5765, þingl. eig. Klara Sólrún
Hjartardóttir og Sigurður Óli Jónsson, gerðarbeiðendur Sella tann-
læknar ehf og Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 26. júní nk. kl. 10:15.
Fannagil 28, Akureyri, fnr. 227-4147, þingl. eig. Axel Gunnar Vatnsdal
og Margrét Baldvinsdóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og
Íbúðalánasjóður og Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Akureyrar-
kaupstaður, þriðjudaginn 26. júní nk. kl. 11:00.
Miðfjarðarnes 1, Langanesbyggð, ásamt rekstrartækjum, fnr. 156367,
þingl. eig. Krzysztof Krawczyk og Sigríður Ósk Indriðadóttir, gerðar-
beiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og Byggðastofnun, miðviku-
daginn 27. júní nk. kl. 13:00.
Kirkjuvegur 18, Fjallabyggð, fnr. 215-4192, þingl. eig. Agnar Baldur
Steinarsson, gerðarbeiðendur Vörður tryggingar hf. og Fjallabyggð,
fimmtudaginn 28. júní nk. kl. 10:00.
Smáravegur 9, Dalvíkurbyggð, 50% eignarhluti, fnr. 215-5229, þingl.
eig. Magdalena Ýr Hólmfríðardóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn
hf., miðvikudaginn 27. júní nk. kl. 14:00.
Vallartún 6, Akureyri, fnr. 228-2743, þingl. eig. Sigríður Jóhannes-
dóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Akureyrarkaupstaður,
þriðjudaginn 26. júní nk. kl. 10:35.
Staðarhóll lóð, Eyjafjarðarsveit, fnr. 232-2228, þingl. eig. Ess Garðars-
son Fc ehf., gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
þriðjudaginn 26. júní nk. kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
21. júní 2018
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
B gata 9, Reykjavík, fnr. 229-4581, þingl. eig. þb. Band ehf, gerðar-
beiðandi Reykjavíkurborg, þriðjudaginn 26. júní nk. kl. 10:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
21. júní 2018
Tilkynningar
!
!! "# $ %
#
& &' ( "
) $ *" &
"
+
,,,
"
! -
.
-
$ %
# !/01
) 2
# %) 0/3
4 " $ &
5
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17.
Opið fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl.
15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9.10. Vöfflukaffi kl. 14.15-15.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Opið kaffihús kl. 14.30.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns-
húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að
panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu
er selt frá kl. 14-15.30. Félag eldri borgara í Garðabæ, sími 565-6627,
skrifstofa opin miðvikudaga kl. 13.30-15.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10.
Gerðuberg Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa, kl. 9-12 glervinnustofa
(sumarfrí), kl. 10-12 prjónakaffi, kl. 10-10 leikfimi gönguhóps, kl. 10.30
gönguhópur um hverfið, kl. 13-16 bókband með leiðbeinanda, kl. 13-
15 kóræfing (sumarfrí), kl. 12.20-13.30 qigong (sumarfrí).
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30. Stólaleikfimi kl. 13 og eftirmiðdagskaffi kl.
14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50. Við hringborðið kl.
8.50, botsía kl. 10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá kl. 9-16, síð-
degiskaffi kl. 14-15. Allir velkomnir óháð aldri, nánari upplýsingar í
Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, leikfimi í salnum
Skólabraut kl. 13.30, spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eyðismýri kl.
13.30. Minnum á skráningu í sumarferðina. Skráning stendur til 2. júlí
og ferðin verður farin 11. júlí. Skráningablöð liggja frammi á Skóla-
braut og Eyðismýri. Ferðin er háð þátttöku, lágmarks þátttaka er 30
manns.
Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-14. Upp úr kl. 10 er boðið
upp á kaffi og gaman að koma í spjall og kíkja í blöðin. Ganga kl. 10.
Hádegisverður kl. 11.30-12.15. Framhaldssaga kl. 13. Allir eru hjartan-
lega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu í síma 568-2586.
Stangarhylur 4. Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23. Hljómsveit
hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir.
Félagsstarf eldri borgara
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Fasteignir
Til sölu La Marína á Spáni
25 mín. frá Alicante flugvelli. Gott
einbýlishús, stutt í alla þjónustu,
strönd og golfvellir á svæðinu.
38 millj. ísl. kr.
Upplýsingar í síma 7742501.
eyvindur@simnet.is
Veiði
HM er tíminn
S. 892 8655 • heimavik.is
Tilboð á silunganetum
Nr. 1 Ísland 1-? -10% afsláttur
Nr. 2 Ísland 1-? -15% afsláttur
Nr. 3 Ísland 2-? -20% afsláttur
Nr. 4 Ísland - Keypt 3 net
-20% afsláttur og við borgum
flutning.
Að auki með öllum tilboðum:
Vettlingar í aðgerðina - bólfæri
- netpokar fyrir þyngingu og
eitthvað meira skemmtilegt.
Þekking • Reynsla • Gæði
Heimavík ehf
Tveir góðir úr nýju netunum
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Húsnæði undir hárgreiðslustofu
til leigu, staðsett í Félagsmiðstöð hjá
Þjónustuíbúðum eldri borgara. Allar
nánari upplýsingar veitir Drífa í síma
411-9450 eða á netfangið
drifa.baldursdottir@reykjavik.is
Atvinnuhúsnæði
best þegar þú hlúðir að mömmu
þegar hún var veik og þegar
hún handleggsbrotnaði í nóv-
ember þá hugsaðir þú svo vel
um hana og heimilið þó þú vær-
ir sjálfur sárkvalinn og aldrei
kvartaðirðu. Enda voru það ófá
skipti sem ég leitaði til þín í
lífsins erfiðleikum til að fá
huggun. Alltaf varstu til staðar
og með svörin.
Ég hugsa með miklum hlý-
hug til starfsfólksins á gjör-
gæslunni á Landspítalanum við
Hringbraut. Gjörgæslan var
orðin eins og annað heimili okk-
ar og starfsfólkið á svo mikið
hrós skilið. Þau hugsuðu um þig
í 76 daga og komu þér í gegn-
um ótrúlegustu veikindi sem
herjuðu á þig. Þú varst kominn
svo langt þegar þú gast útskrif-
ast af gjörgæslunni og farið á
lungnadeildina í Fossvogi en
það var eins og allt færi niður á
við og þú náðir ekki að vera þar
í tvær vikur þangað til þú lést.
Þú fórst svo skyndilega að við
náðum ekki að koma til þín og
vera með þér þegar þú kvaddir.
Það felst þó huggun í því að
hugsa að þú þurfir ekki að þjást
lengur.
Ég veit að afi og Gunna syst-
ir þín hugsa vel um þig þangað
til við hittumst á ný.
Ég kveð þig, minn faðir, nú komin
er stund
sem kveið ég svo fyrir að lifa.
En þú ert nú horfinn á feðranna fund
með fögnuði tekið á himneskri
grund.
Í söknuði sit ég og skrifa.
Þín lundin var sköpuð af
gimsteinagerð
og gæska úr hjartanu sprottin.
Mig langar að þakka þér farsæla ferð
með friðsælli gleði ég kveðja
þig verð.
Nú geymir þig dýrðlegur Drottinn.
(Birgitta H. Halldórsdóttir)
Pabbi, ég elska þig.
Þín dóttir,
Sandra.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einn-
ig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu
ekki lengri en 3.000 slög. Ekki
er unnt að senda lengri grein.
Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að
senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja viðhengi
við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar
koma fram upplýsingar um
hvar og hvenær sá sem fjallað
er um fæddist, hvar og hvenær
hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram.
Þar mega einnig koma fram
upplýsingar um foreldra, systk-
ini, maka og börn.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa not-
uð með minningargrein nema
beðið sé um annað. vita.
Minningargreinar