Morgunblaðið - 22.06.2018, Page 27

Morgunblaðið - 22.06.2018, Page 27
flestum störfum hjúkrunarfræðings sem hægt er að gegna á skurðstof- unni og verið í hjartaskurðaðgerðum svo gott sem frá upphafi hjarta- skurðlækninga á Íslandi 1986.“ Frá 2015 hefur Elín Ýrr gegnt starfi deilarstjóra á dauðhreinsunar- deild Landspítalans og er einnig í hlutastarfi á skurðstofunni. „Það er venjan að skurðhjúkrunarfræðingur sjái um dauðhreinsunardeildina en á henni eru öll verkfærði dauð- hreinsuð og pakkað inn. Spítalar, heilsugæslur og einkafyrirtæki úti í bæ senda okkur verkfærin og við sjáum um að þau séu í lagi fyrir næstu aðgerð.“ Elín Ýrr var í kjaranefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga nánast frá útskrift og sat síðan í stjórn fé- lagsins frá 2000 til 2009. „Ég var líka mikið í kjarabaráttu fyrir skurðhjúkrunarfræðinga á Landspítalanum. Þetta er mikil ætt- arfylgja að standa í kjarabarátt- umálum, bróðir minn var í kjarab- áttumálum, amma mín og báðir afar mínir. En núna er ég algjörlega frelsuð frá þessu. Áhugamál mín eru fjölskylda og vinir, lestur glæpasagna, handa- vinna og gönguferðir, og nú síðast golf. Ég byrjaði í golfi síðasta sumar og finnst það mjög skemmtilegt.“ Fjölskylda Eiginmaður Elínar Ýrar var Kristján M. Baldursson, f. 6.12. 1955, d. 24.6. 2016, landfræðingur og framkvæmdastjóri. Foreldrar hans voru hjónin Baldur Kristjánsson, f. 15.9. 1928, d. 29.1. 1998, skipstjóri, og Herdís Katrín Magnúsdóttir, f. 22.8. 1932, d. 15.4. 1997, verkakona og húsmóðir. Þau bjuggu í Hafnar- firði. Börn Elínar Ýrar og Kristjáns: 1) Anna Rut, f. 16.8. 1987, lögfræð- ingur, bús. í Reykjavík. 2) Ásta Ýrr, f. 16.8. 1987, gjörgæsluhjúkrunar- fræðingur, bús. í Reykjavík, í sam- búð með Kára Logasyni skipaverk- fræðingi. Þau eiga fjögur börn: Katrínu Huld, f. 13.5. 2010, tví- burana Þóru Ýri og Freyju Rut, f. 21.6. 2013, og Kristján Loga, f. 1.6. 2018; 3) Herdís, f. 27.4. 1992, hjúkr- unarnemi, bús. í Reykjavík, í sam- búð með Pétri Andra Dam stjórn- málafræðingi. Þau eiga soninn Frosta Hrafn, f. 25.10. 2014. 4) Hall- dór, f. 27.4. 1992, myndlistarnemi, bús. í Svíþjóð, unnusta hans er Ásdís Nína Magnúsdóttir heimspekingur. Systkin: Páll, f. 4.8. 1950, jarðeðl- isfræðingur, bús. í Reykjavík; Ásta, f. 6.3. 1955, skrifstofumaður, bús. í Reykjavík; Ólöf Eir, f. 4.9. 1969, skrifstofumaður, bús. í Reykjavík; bróðir samfeðra Ólafur, f. 27.11. 1947, líffræðingur og kennari, bús. í Reykjavík. Foreldrar: Hjónin Halldór B. Stefánsson, f. 3.3. 1927, d. 25.2. 2009, skrifstofumaður, og Hallgerður Pálsdóttir, f. 5.10. 1927, d. 24.5. 2017, verslunarmaður. Þau bjuggu í Reykjavík. „Það sem er kannski svolítið sér- stakt við þessa fjölskyldu er að í henni eru þrjú tvíburapör; ég á tvenna og svo á ég tvíbura- barnabörn.“ Elín Ýrr Halldórsdóttir Halldóra Magnúsdóttir húsfreyja í Enni Björn Gunnlaugsson b. og smiður í Enni í Viðvíkursveit, Skag. Elín Björnsdóttir afgreiðslukona í Rvík Páll Þóroddsson afgreiðslumaður í Rvík Hallgerður Pálsdóttir verslunarmaður í Rvík Hallgerður Pálsdóttir húsfr. í Lónsgerði og víðar Þóroddur Símonarson sjómaður í Lónsgerði og víðar í Eyjafirði Edda Ýrr Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur bús. í Garðabæ Gunnlaugur Björnsson kennari á Hólum í Hjaltadal Ásta Halldórs- dóttir skrif- stofumaður í Rvík Guðfinnur Þorgeirsson útgerðarmaður í Vestmannaeyjum Magnús Björnsson ríkisbókari í Rvík Gunnar Axel Axels- son viðskiptafr. hjá Hagstofunni og fv. bæjarfulltrúi í Hafnarf. Björn Gunnlaugsson hreppstjóri og oddviti í Viðvíkursveit Helga Birna Gunnars- dóttir þroska- þjálfi í Hafnarfirði Elísabet Jónsdóttir húsfr. í Hafnarfirði Guðlaug Halldórsdóttir húsfr. í Hafnarnesi Una Jónsdóttir grasa- og skáldkona í Vestmannaeyjum Þorgeir Eiríksson formaður í Vestmannaeyjum Ástríður Þorgeirsdóttir húsfr. í Hafnarnesi og Vestmannaeyjum, lést tvítug að aldri Stefán Halldórsson sjómaður í Vestmanna- eyjum og Stykkishólmi Elísabet Brynjólfsdóttir húsfr. í Hafnarnesi og Vestmannaeyjum Halldór Halldórsson beykir og skáld í Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði Úr frændgarði Elínar Ýrar Halldórsdóttur Halldór B. Stefánsson skrifstofumaður í Rvík Fjölskyldan Stödd á Borgarfirði eystra í kringum aldamótin. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2018 Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is FYRIR HUNDA 80% kjöt 20% jurtir grænmeti ávextir O% kornmet – fyrir dýrin þín 95 ára Ásta Eiríksdóttir Magnús Finnur Hafberg Róar Jónsson 85 ára Halldór Friðbjarnarson Hrólfur Guðmundsson 80 ára Guðjón Kristinn Kristinsson Jóhannes Ellertsson Kristján Ragnarsson Þórunn Brynjólfsdóttir 75 ára Bettý Kristín Fearon Bryndís Guðmundsdóttir Einar B. Sigurgeirsson Gíslína M. Sigurgísladóttir Helga Soffía Bjarnadóttir Júlíus K. Valdimarsson Kristín Jónasdóttir María Ragnarsdóttir Ólafur Erlendsson Sigríður Páls Sigrún Kamilla Júlíusdóttir Ævar Már Axelsson 70 ára Björgvin Björgvinsson Gísli Guðmundsson Hildur Sæmundsdóttir 60 ára Einar Kristmundur Guðmundsson Elín Ýrr Halldórsdóttir Haraldur Einarsson Karol Jerzy Hercyk Sigríður Hreiðarsdóttir Sigurður H. Steindórsson Símon Grétar Sigurbjörnss. Socorro Perez Þórðarson Víkingur Viggósson 50 ára Elínborg Kristjánsdóttir Hans Kristján Einarsson Hagerup Jón Ingi Ólafsson Kristinn G. Þórarinsson Ómar Geir Þorgeirsson Ratree Mohtua Skúli Kristinn Skúlason Slawomir Marek Basiak Unnur María Sævarsdóttir Vignir Guðmundsson 40 ára Arndís Halla Guðmundsd. Ásta Björg Kristinsdóttir Bjarni Sigurjón Halldórsson Igor Puscuta Íris Hrund Grettisdóttir Linzhe Wang Magdalena K. Bukowska Magnús Vignir Guðmundss. Trausti Ragnarsson Þorsteinn F. Guðmundsson 30 ára Aðalheiður Ragna Óladóttir Anita M. Olejniczak Auður Hanna Friðþjófsd. Björg Eyþórsdóttir Bogi Rafn Einarsson Elfar Þór Guðbjartsson Gytis Kacinskis Hafsteinn B. R. Guðbjartss. Hlynur Þráinn Sigurjónsson Illugi Þór Gunnarsson Íris Björk Róberts Ísak Hilmarsson Jón Ásgeir Jónsson Kristinn Ingi Austmar Kristvina Lind Magneud. Magdalena Grabowicz Marta Kepinska Martin Emmanúel Ehmann Olgeir Gunnsteinsson Svanhvít Sif Th. Sigurðard. Tinna Björg Hallsdóttir Til hamingju með daginn 40 ára Trausti er Hafn- firðingur, viðskiptafræð- ingur að mennt og er verkefnastjóri hjá Icelandair. Maki: Gígja Erlingsdóttir, f. 1984, læknir á meina- fræðideild LSH. Börn: Birkir Smári, f. 2006, Lilja Björk, f. 2014, og Árný Sara, f. 2017. Foreldrar: Ragnar Karls- son, f. 1946, og Oddný Þórisdóttir, f. 1948, bús. í Hafnarfirði. Trausti Ragnarsson 30 ára Ísak er úr Stykkis- hólmi en býr í Kópavogi. Hann er BS í bæði stærð- fræði og tölvunarfræði og er verkefnastjóri hjá hug- búnaðarfyrirtækinu Libra. Maki. Gréta María Birgis- dóttir, f. 1987, ljósmóðir. Dóttir: Bergrún María, f. 2017. Foreldrar: Hilmar Hall- varðsson, f. 1957, rafvirki, og Hanna Jónsdóttir, f. 1958, þroskaþjálfi, bús. í Stykkishólmi. Ísak Hilmarsson 30 ára Kristinn er Hellubúi og er nemi í tölv- unarfræði í Háskólanum í Reykjavík. Maki: Rakel Óskarsdóttir, f. 1989, ljósmóðir. Sonur: Aron Ingi, f. 2013. Foreldrar: Guðni Gunnar Kristinsson, f. 1965, vinn- ur í þjónustumiðstöðinni á Hellu, og Ingibjörg Gunnarsdóttir, f. 1963, vinnur á skristofu sveitar- félagsins Rangárþings ytra, bús. á Hellu. Kristinn Ingi Austmar Guðrún Ragnarsdóttir hefur varið dokt- orsritgerð sína í menntavísindum við kennaradeild menntavísindasviðs Há- skóla Íslands. Ritgerðin ber heitið Upp- lifun og reynsla skólastjórnenda af breytingum í íslenskum framhalds- skólum samtímans. Gagnvirk áhrif ein- staklinga, hópa og félagskerfa. Leiðbeinandi var dr. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor við mennta- vísindasvið HÍ og meðleiðbeinandi dr. Jón Torfi Jónasson, prófessor emeritus við menntavísindasvið HÍ. Doktorsritgerðin fjallar um sýn skólastjórnenda í níu íslenskum fram- haldsskólum á samspil einstaklinga, hópa og félagskerfa sem draga úr breytingum eða hvetja til þeirra. Rit- gerðin fæst einnig við upplifun skóla- stjórnenda á hlutverki sínu, völdum og getu við að innleiða breytingar og þeim áskorunum sem fylgja því ferli. Tekin voru viðtöl við 21 stjórnanda í níu fram- haldsskólum víðs vegar um landið. Nið- urstöðurnar sýna flókið mynstur gagn- kvæmra áhrifa á breytingar, milli einstaklinga, hópa og félagskerfa, úr bæði ytra og innra umhverfi skólanna. Viðmælendur nefndu fjölmörg dæmi sem sýndu að flest áhrifaöflin styrkja ríkjandi hefðir inn- an skólakerfisins, gildi og viðmið. Þessi stýring, sem rökstutt er að megi kalla stofnanastýr- ingu, er sterkt afl sem á stóran þátt í að hægja á breyt- ingum eða jafnvel hindra þær. Á hinn bóginn lýstu skóla- stjórnendur því einnig hvernig hópar, innan og utan skólanna, hvöttu til breytinga og komu af stað vissu losi í skólunum (sem líkja má við afstofn- anavæðingu) sem ýtti undir að nýjar hugmyndir flæddu á milli framhalds- skólanna. Mesta áskorun viðmælenda við innleiðingu menntabreytinga tengd- ist inntaki náms. Viðmælendur sögðust hafa takmörkuð völd til að hafa áhrif þar á. Þeir lýstu því aftur á móti að þeir hefðu umtalsverða möguleika til for- ystu þegar kemur að kennsluháttum og námsmati. Þátttökuskólarnir virkjuðu með ólíkum hætti þá stefnu sem boðuð var með lögunum 2008 og aðal- námskrá 2011 sem bendir til að margar sjálfstætt starfandi einingar séu ráð- andi innan skólanna. Guðrún Ragnarsdóttir Guðrún Ragnarsdóttir fæddist árið 1971 í Neskaupstað. Hún er lífeindafræðingur með kennsluréttindi á grunn- og framhaldsskólastigi. Einnig er hún með dipl- ómagráðu í opinberri stjórnsýslu og meistaragráðu í lýðheilsufræðum. Hún starf- ar sem aðjúnkt og verkefnastjóri starfsþróunar á menntavísindasviði HÍ. Guðrún er gift Jóni Bender framkvæmdastjóra og eiga þau þrjú börn: Elísabetu Soffíu Bender, Ragnar Þór Bender og Sófus Mána Bender. Doktor

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.