Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.06.2018, Page 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.06.2018, Page 37
24.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 KJÖR Baráttan fyrir jöfnum kjörum kvenna og karla í kvikmyndum og sjónvarpi er komin á fullan skrið vest- anhafs með þeim afleiðingum að konur hafa verið að fá launahækkun vítt og breitt í faginu. Ein þeirra er breska leikkonan Thandie Newton, sem meðal annars hefur leikið í hinni vinsælu seríu Westworld á HBO og kvikmyndinni Solo: A Star Wars Story. Í samtali við BBC viðurkennir hún að sér hafi brugðið yfir hækk- uninni enda geri hún sér nú grein fyrir því hversu miklu hærri laun karlleikarar hafi haft til þessa. „Á ári hverju fer maður inn í nýja framleiðslu eða nýja seríu af West- world og það hvarflar ekki að manni að biðja um meira. Er bara ánægður með að hafa vinnu. En við verðum að búast við meiru okkur til handa,“ segir leikkonan. Brá yfir kauphækkuninni Thandie Newton fékk kauphækkun. AFP KVIKMYNDIR Hvernig bregðast foreldrar við þeg- ar fjögurra ára gamall sonur þeirra vill frekar leika sér að Disney-prinsessum en hasarkörlum og teng- ir ekki við það sem í sögulegu samhengi er álitið karlmannlegt? Þannig er spurt í nýrri kvikmynd, A Kid Like Jake, sem frumsýnd var í Bandaríkjunum á dögunum. Sjálfsagt ekki óalgengt viðfangsefni í lífinu en sjaldgæft að um það sé fjallað í kvikmyndum. Með aðalhlutverk fara sjón- varpsstjörnurnar Claire Danes (Home- land) og Jim Parsons (The Big Bang Theory) og hafa þau fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína. Leikstjóri er Silas Howard. Claire Danes getur alltaf á sig blómum bætt. AFP Hvert mannsbarn í þessu landi sem komið er yfir þrítugt, alla vega fer- tugt, man þá tilfinningu að liggja yfir bíóauglýsingum í dagblöð- unum. Hvað ætla ég að sjá næst, hvar og hvenær? Fer ekki um ykk- ur sæluhrollur við tilhugsunina? Að ekki sé talað um ilminn af nýpopp- uðu poppi og svalandi svellkaldan gosdrykk. Sætin voru að vísu fá- brotnari og harðari en í dag en hverjum var ekki sama um það á þeim tíma? Við höfðum engan sam- anburð. Einhvern tíma rifjaði Sæ- björn heitinn Valdimarsson, kvik- myndagagnrýnandi Morgun- blaðsins, sá mikli höfðingi, það upp við mig að hann hefði setið á sömu hörðu bekkjunum í fjörutíu ár áður en hann var loksins mýktur upp. Og þá munaði ekki um það. En hvað var í bíó í gamla daga? Eigum við að taka stikkprufu? Hvað segið þið um þennan dag fyrir fjörutíu árum? 24. júní 1978. Blóð slettist upp um alla veggi í Laugarásbíói þar sem engin önnur en Keðjusagarmorðin í Texas var á tjaldinu. „Mjög hrollvekjandi og taugaspennandi, bandarísk mynd, byggð á sönnum viðburðum,“ sagði í kynningu en með aðalhlutverk fóru Marilyn Burns og Íslending- urinn Gunnar Hansen. Sællar minn- ingar. Nýja bíó var með Þegar þol- inmæðina þrýtur eða Breaking Po- int. „Hörkuspennandi ný bandarísk sakamálamynd, sem lýsir því að friðsamur maður getur orðið hættulegri en nokkur bófi, þegar þolinmæðina þrýtur,“ sagði í kynn- ingu en með helstu hlutverk fóru Bo Svenson og Robert Culp. Í Austurbæjarbíói var allra síð- asta tækifæri til að sjá hina „heims- frægu og framúrskarandi mynd Mel Brooks“, Blazing Saddles. „Þetta er ein bezt gerða og leikna gamanmynd frá upphafi vega,“ fullyrti bíóið. Greifinn af Monte Cristo var með aðsetur í Háskólabíói, leikinn af kvennaljómanum Richard Cham- berlain. „Frábær ný litmynd,“ sagði í kynningu en sá lúxus var vitaskuld ekki sjálfgefinn á þessum árum. Skýrsla um morðmál eða Report to the Commissioner með Michael Moriarty var í Tónabíói. Þegar þeirri mynd er flett upp kemur í ljós að hún er frá árinu 1975. Menn voru ekki alltaf með nýjustu ræm- urnar klárar fyrir fjörutíu árum. Stjörnubíó var með Ótta í borg með Jean Paul Belmondo og í Regnboganum gat m.a. að líta Harðjaxlinn með Rod Taylor en síð- astnefnda húsið bjó að fjórum söl- um, A, B, C og D. Og þótti svalt. Gamla bíó sýndi hina klassísku Caruso með Mario Lanza og Ann Blyth og Bangsímon frá Disney fékk að láta ljós sitt skína á barna- sýningu klukkan þrjú. Hafnarbíó var minna í barnasýn- ingunum en á tjaldinu þar var Lífið er leikur. „Bráðskemmtileg og djörf, ný gamanmynd í litum er gerist á líflegu heilsuhæli.“ Úllala! Íslenski leikarinn Gunnar Hansen í sínu frægasta hlutverki; Leðurfés í Keðju- sagarmorðunum í Texas. Myndin þótti mjög hrollvekjandi og taugaspennandi. HVAÐ VAR Í BÍÓ FYRIR 40 ÁRUM? Blóð, sprell og dirfska Mario Lanza og Ann Blyth í hinni frægu mynd Caruso frá árinu 1951. Eftir 27 ár og hér um bil fjögur þúsund þætti lítur allt út fyrir að The Jerry Springer Show hafi runnið sitt skeið á enda í sjónvarpi. Opinber dánartilkynning hefur að vísu ekki verið gefin út, þátturinn sagður á milli stöðva, en samkvæmt heimildum breska blaðs- ins The Guardian er ballið loksins búið. The Jerry Springer Show hóf göngu sína í Banda- ríkjunum árið 1991 og náði miklum vinsældum fram að aldamótum; mældist til að mynda um stund með meira áhorf en spjallþáttur Oprah Winfrey. Það olli mörgum hryggð enda hverfðist þátt- urinn um lægstu hvatir manns- ins, eins og fjölmörg heiti þátt- anna gefa til kynna. Við erum að tala um „Ég svaf hjá 251 karli á tíu klukkutímum“, „Ég er út- ungunarvél fyrir Klanið“ og „Ég gekk að eiga hross“. Uppleggið var alltaf það sama; einhver eða einhverjir höfðu gert óskunda og komið var að skuldaskilum gagnvart þeirra nánustu – í sjónvarpssal. Fólki var iðulega mikið niðri fyrir og ósjaldan voru hnefar látnir skipta, stólar flugu um salinn og fílhraustir öryggisverðir þurftu að grípa inn í. Stjórnandinn, Jerry Springer, stóð svo kankvís álengdar og var síst til þess fallinn að stilla til friðar. Mögulega hitti TV Guide nagl- ann á höfuðið um árið þegar mið- illinn útnefndi The Jerry Springer Show „versta sjónvarpsþátt allra tíma“. Fjölmörg tilbrigði voru við stef- ið; meðal annars hér á landi en SkjárEinn (forveri Sjónvarps Sím- ans) sýndi á sokkabandsárum sín- um skopskælingu á Springer undir yfirskriftinni „Nonni sprengja“. Ætli sá gjörningur eldist vel? Dæmigerð mynd fyrir þáttinn. Allt á suðupunkti og hnefa- tal og almenn áflog örugglega ekki langt undan. AFP JERRY SPRINGER HVERFUR AF SKJÁNUM Versti þáttur allra tíma? Jerry gamli Springer. AFP Tekur prinsessur fram yfir hasarkarla HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin R og og

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.