Morgunblaðið - 06.04.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.04.2018, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018 LISSABONBirtmeðfyrirvaraumprentv illu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 19. apríl (sumardagurinn fyrsti) í 3 nætur Stökktu í helgarferð til Verð frá kr. 79.995. Netverð á mann, m.v gistingu í tvíbýli á 4 stjörnu hóteli í 3 nætur með morgunmat. Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. Frá kr. 79.995 á 4 stjörnu hóteli Allra síðustu sætin! Ótrúlegt verð Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Stórbruni í Garðabæ Guðrún Erlingsdóttir Erna Ýr Öldudóttir „Við heyrðum í brunabjöllunni, röltum þrír fram til að skoða málið og opnuðum dyrnar inn á lager. Það fylltist allt af reyk á örfáum sekúndum og við komum fólkinu okkar út. Sem betur fer fórum við strax að kanna stöðuna þegar brunabjallan fór í gang,“ segir Friðrik Þór Stefánsson, rekstar- stjóri Icewear, í samtali við Morg- unblaðið um fyrstu viðbrögð við stórbrunanum í Miðhrauni í Garðabæ, sem blossaði upp laust eftir klukkan átta í gærmorgun. Í húsinu eru vöruhús, skrifstofur og ein af verslunum Icewear auk þess sem þar má finna skrifstofu Mar- els og fyrirtækið Geymslur sem leigir út geymslurými til fólks. Friðrik Þór segir blessunarlega alla hafa komist heila frá þessu, en það hafi þó staðið tæpt hjá sum- um. „Þetta gerðist furðulega hratt, alla vega fyrir leikmann að upp- lifa,“ segir Friðrik Þór sem segist þakklátur viðbragðsaðilum sem af mikilli fagmennsku unnu við erf- iðar aðstæður. Friðrik Þór segir gríðarlega erfiða tíma framundan hjá fyrirtækinu, en næstu daga sé úrlausnarefnið að finna aðstöðu til þess að hefja starfsemina aftur. „Við leysum málin. Við erum að mestu leyti með framleiðslu á Ís- landi og verslanir víða. Það verður engin breyting á því. Það var vissulega mikið af vörum í hús- næðinu sem brann og tjónið því gríðarlegt. En við munum ekkert stoppa. Við erum Íslendingar og þetta reddast,“ segir Friðrik Þór. Þá segir hann fyrirtækið vera vel tryggt og að tryggingafélagið hafi þegar skoðað aðstæður. „Áfallið var mikið í morgun og fjölskyldur starfsmanna voru áhyggjufullar. Það er ömurleg til- finning að sjá fyrirtækið brenna en við erum bjartsýn og gríðarlega vel skipuð fólki,“ segir hann og bætir við að erfitt hafi verið að fylgjast með öllu því fólki sem mætti á vettvang í von um að geta bjargað eigum sínum frá eldinum. Margir hafi hreinlega grátið þegar þeir áttuðu sig á umfangi brunans. Gífurlegt tjón í brunanum „Hvað getur maður sagt – þetta er hræðilegt,“ segir Ómar Jó- hannsson, framkvæmdastjóri Geymslna, en fyrirtækið var með rúmlega 200 geymslur í húsnæð- inu. Voru þær nær allar í notkun. „Við vitum ekki hvort allt er far- ið því við höfum auðvitað ekki fengið neinn aðgang að húsnæðinu eins og er. Við höfum verið að sinna okkar viðskiptavinum með því að senda tölvupósta frá því fyr- ir hádegi og reyna að fylgja því eftir með símhringingum,“ segir hann. Ómar segir að tjónið sé gífurlegt og að þetta líti mjög illa út. „Okk- ur er auðvitað ekki kunnugt um innihald geymslnanna, það er auð- vitað misjafnt eftir fólki, en þetta eru líklega mikið til búslóðir, árs- tíðabundnir hlutir og aðrir per- sónulegir munir. Svo voru þarna einnig lagerar frá hinum og þess- um fyrirtækjum, bókhaldsgögn, pappírar o.s.frv.“ Þá vill Ómar þakka slökkviliði og lögreglu fyrir vel unnin störf við erfiðar aðstæð- ur og segir hann hug sinn vera hjá þeim sem misstu allt sitt í brun- anum. Varð alelda á skömmum tíma  Reyk lagði um allt hús á örfáum sek- úndum, segir rekstrarstjóri Icewear  Um 200 geymslur voru í húsinu Mökkur Slökkvilið var með fjölda dælu- og körfubíla á vettvangi og komu bjargir víða að. Morgunblaðið/Eggert Liðsafli Ljóst var frá upphafi að eldur var mikill í húsinu. Var því allt tiltækt lið sent á staðinn. Elds voði í Miðhrauni 4 í Garðabæ Reyk jane sbra ut Miðhraun Fjarðarhraun Ka up tú n Kaplakriki REYKJAVÍK KÓPAVOGUR GARÐABÆR HAFNARFJÖRÐUR Stækkað svæði Miðhraun 4 Tilkynnt var um eldinn upp úr klukkan 8 Einn slökkviliðsmaður slasaðist lítillega Einn starfsmaður Icewear hlaut minni- háttar brunasár 2 körfubílar 6 dælubílar 1 vagn fyrir aðgerðastjórn 1 dælubíll frá Reykjavíkur- flugvelli 1 krani með krabba 1 gámabíll Slökkviliðs- og lögreglumenn og búnaður við slökkvistarfið Um 100 slökkviliðs- menn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins 25 lögreglumenn frá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu og ríkislögreglustjóra 20 slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Árnessýslu 7 slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja 2 slökkviliðsmenn frá Reykjavíkurflugvelli mbl.is/ Krist inn Magnús son Guðrún Erlingsdóttir Erna Ýr Öldudóttir „Það eru margir sem misstu hluti í brunanum sem höfðu tilfinningalegt gildi og það er erfitt. Í mínu tilfelli er þetta ekki stórmál. Þetta eru dauðir hlutir sem ekki hafa tilfinn- ingalegt gildi,“ segir Guðmundur Thoroddsen, einn leigjenda hjá Geymslum. Hann segist vera með sína hluti tryggða, en það þurfi að kaupa þá tryggingu sérstaklega. Söfnun til hjálpar Dýrahjálp „Við vorum með þrjár geymslur hjá Geymslum og þær voru allar stútfullar af dóti sem Dýrahjálp not- ar,“ segir Valgerður Valgeirsdóttir, formaður Dýrahjálpar Íslands, í samtali við Morgunblaðið. „Við erum ekki með húsnæði eða skrifstofur. Þess í stað stýrum við starfseminni, sem er í sjálfboða- vinnu, í gegnum netið og því hefur þetta geymslufyrirkomulag hentað okkur vel til þessa,“ segir hún og bætir við að þegar Dýrahjálp taki á móti dýrum fylgi þeim oft lítið sem ekkert. Voru geymslurnar því nýtt- ar til að geyma muni á borð við búr, ferðabúr, fóður, matarkassa, bæli, ólar og fleira. Óttast er að allir þeir munir sem Dýrahjálp geymdi hjá Geymslum séu nú glataðir. „Við er- um búin að vera að safna þessu í mörg ár, til að eiga nóg af öllu. Fjár- öflunarvörurnar voru þarna líka, t.d. jólakort og dagatöl sem við vor- um búin að láta gera,“ segir Val- gerður. Aðspurð segir hún samtökin vera ótryggð fyrir brunatjóni. „Meiri- hlutinn var eitthvað sem okkur hef- ur verið gefið og við vorum ekki bú- in að átta okkur alveg á því að það væru svona mikil verðmæti í þessu. Við byrjuðum með eina geymslu en svo fylltist hún fljótt og við fengum aðra geymslu og þá þriðju og höfð- um ekki haft ráðrúm til að hugsa að eitthvað þessu líkt gæti komið fyrir. Við erum ekki vongóð um að fá neitt til baka.“ Þá segir hún að þetta muni hafa mikil áhrif á starfsemina og að fjár- hagslegt tjón sé mikið auk vinnunn- ar sem muni fara í að koma öllu í samt horf aftur. Verslunin Gæludýr- .is, sem er á Smáratorgi, hefur þeg- ar boðið þeim aðstöðu undir söfnun vilji fólk láta eitthvað af hendi rakna, en nú séu þau einnig að leita að geymsluplássi. Valgerður segir þau hafa fengið góðar kveðjur og stuðning og þakkar auðsýndan hlý- hug. „Mest um vert er að allir sluppu, þetta var auðvitað bara dót.“ Margir misstu eigur sínar  Sumir voru með hluti sína tryggða en aðrir standa frammi fyrir miklu tjóni  Dýrahjálp Íslands missti margt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.