Morgunblaðið - 06.04.2018, Side 13
í fullu starfi í markaðs-
deild Íslandsbanka auk
þess að teikna skopmynd-
ir í Stundina tvisvar í
mánuði.
Ósamstætt, ýkt
og óvænt
Blái tennisleikarinn er
innblásinn af kvikmyndinni Borg vs
McEnroe, sem Bjarni sá á RÚV um
páskana, enda kveðst hann fá inn-
blástur úr ýmsum áttum og hann
tengi gjarnan saman ólíkar hug-
myndir svo útkoman verði í
senn skemmtileg, ýkt og
óvænt. „… hluti sem passa
alls ekki saman,“ útskýrir
hann. Vel að merkja þá er
fígúra #30; barnslegi gaur-
inn með snuðið og hríðskota-
byssuna, ein gleggsta birting-
armynd þess.
„Ég hef teiknað skopmyndir
fyrir Stundina síðastliðin ár og
fannst allt í einu að ég væri alltaf
að teikna sama karakterinn. Við
blasti að eina leiðin til að auka fjöl-
breytileikann í persónugalleríinu var
að teikna meira eins og ég byrjaði að
gera um áramótin. Ég hafði áður tek-
ið svipaða syrpu því árið 2013 teikn-
aði ég eina hauskúpu á dag allt árið
og þannig byrjaði eiginlega þetta
skopmyndadæmi,“ segir Bjarni, sem
ekki aðeins teiknaði hauskúpurnar á
pappír upp á gamla móðinn og vatns-
litaði sumar þeirra heldur mótaði
þær í leir í nokkrum útgáfum eftir að
hafa sótt keramiknámskeið í Mynd-
listarskóla Kópavogs.
„Maður reynir að halda sér í
formi með því að sækja námskeið og
prófa stöðugt eitthvað nýtt. Nota
hugann,“ segir hann. Og á hann þó
heilmikið nám að baki í hinni graf-
ísku list, BA frá Listaháskóla Íslands
og meistaragráðu í upplýsingamiðlun
og hönnun frá
listaháskóla í
Kent á Bret-
landi. Auk þess
sem hann hefur
starfað sjálf-
stætt að smáum
sem stórum
verkefnum fyrir
fyrirtæki og stofn-
anir.
Eigin hauskúpa
fyrirmyndin
„Bara af því að ég
hef svo mikinn áhuga á
hauskúpum,“ svarar hann
spurður um til-
tækið með
hauskúp-
urnar. En
þar með
er ekki öll
sagan
sögð.
„Bara“ er
ekkert svar
eins og hann átt-
ar sig strax á og bætir
um betur. „Þegar ég var tíu eða ell-
efu ára greindist ég með æxli í kinn-
bein, sem reyndist góðkynja, en tókst
ekki að fjarlægja og er því var-
anlegur hluti af sjálfum mér. Ég
fékk afrit af sjúkraskránni með
myndinni af hauskúpunni og lét
prenta eftir henni þrívíddarmynd,
sem síðan hefur fylgt mér og verið
fyrirmynd að mörg hundruð út-
færslum af hauskúpum. Eftir að
verkefnið var til sýnis á mínum fyrri
vinnustað, Arion banka, keypti
danskur safnari megnið af verk-
unum.“
Hauskúpuáhuginn loðir enn við
Bjarna og speglast til dæmis í fígúr-
um með þessi löngu, mjóu augum
augu, sem hann áður lýsti, auk þess
sem hauskúpur og mannabein læða
sér inn í mörg hans verk. En hvað
ætlar hann að gera við alla karakter-
ana, sem einn af öðrum spretta fram
á iPadinum hans og meiningin er að
verði eitt hundrað talsins um áramót-
in?
„Framtíð þeirra er enn óráðin,“
svarar hann íbygginn. „Ég get þó
alltaf gripið til þeirra ef á þarf að
halda og gefið þeim hlutverk. Mögu-
leikarnir eru margir, kannski geta
þeir orðið sögupersónur, hugsanlega
í barnabókum, þótt sjálfur sé ég ekki
endilega besti maðurinn í að semja
um þá sögur.“
Flughræddur
frímerkjasafnari
Þrátt fyrir að hafa komið víða
við á starfsferlinum, t.d. verið
stundakennari í LHÍ, fengist við
hugmyndavinnu af ýmsu tagi, hreyfi-
grafík, silkiþrykk og sitt hvað fleira
hefur hann ekki myndskreytt bækur.
Aðspurður segir hann slíkt vel koma
til greina og ábyggilega vera
skemmtilegt.
„Ég lít fyrst og fremst á verk-
efnið sem æfingu í að búa til áhuga-
verða og ýkta karaktera, en ekki
„fíniseraða“ útgáfu. Ég hef því sett
mér það markmið að vera ekki leng-
ur en klukkutíma að dúlla mér í að
teikna hvern og einn. Fyrir mér er
þetta nokkurs konar tilraun til að
brjóta niður múra í sköpunarferlinu
því maður getur auðveldlega fest í að
búa alltaf til svipaða karaktera. Ég
hef ekki gefið þeim nafn, en aftur á
móti hafa vinir og vandamenn beðið
mig um að skapa Áhættusækna end-
urskoðandann og Flughrædda frí-
merkjasafnarann, svo dæmi séu tek-
in,“ segir Bjarni, sem stóð fyrir
teikniviðburði í Hafnarhúsinu á
Hönnunarmars þar sem hann töfraði
fram nokkrar furðufígúrur að beiðni
gesta og gangandi.
Ekki yfir strikið
Skopmyndirnar, sem Bjarni
teiknar í Stundina, eru af öðrum
toga. Hann útilokar þó ekki að ein-
hver fígúranna úr eitt hundrað per-
sóna gallerínu 2018 fái þar auka-
hlutverk í fyllingu tímans. Þær
opinberu eru oftast í aðalhlutverki.
„Þegar ekkert er að gerast í sam-
félaginu og engin leið að finna fynd-
inn vinkil, lauma ég stundum inn
aulabröndurum með fígúrum sem ég
á á lager eða einfaldlega bý til nýjar.“
Oftast fela skopmyndirnar í sér
pólitíska ádeilu, sem eru algjörlega
runnar undan rifjum Bjarna. Honum
kemur til góða að hafa alist upp á
heimili þar sem var nánast skylda að
fylgjast með fréttum. Upp úr dúrn-
um kemur að faðir hans er Helgi
Bjarnason, blaðamaður á Morgun-
blaðinu um áratugaskeið. „Fyrst
fannst mér mesta áskorunin vera að
teikna opinberar persónur þannig að
þær væru þekkjanlegar og var satt
að segja ekkert flinkur til að byrja
með,“ segir Bjarni og bætir við að að-
alatriðið sé að ýkja andlitsdrættina –
gera persónuna skoplega á að líta.
Og hvern skyldi honum hafa tekist
best upp með?
„Ólaf Ragnar Grímsson, fyrr-
verandi forseta, hann hefur svo sterk
karaktereinkenni,“ svarar hann um-
hugsunarlaust. „Mér fannst líka
gaman að spreyta mig á að teikna
Davíð Oddsson, þegar hann fór í for-
setaframboð og komst fyrir vikið aft-
ur í sviðsljósið. Hins vegar var rosa-
lega erfitt að teikna Vigdísi
Finnbogadóttur og oft einnig ungt
fólk, sem ennþá er með slétt og fellt
andlit. Sjálf hafa viðfangsefnin aldrei
kvartað, enda reyni ég að halda mig
innan ákveðins ramma og forðast
persónuníð,“ segir teiknarinn sem
fer ekki yfir strikið.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018
Umhverfishátíð í Norræna húsinu
verður haldin kl. 13-17 helgina 7.-8.
apríl. Markmiðið er að kynna einfald-
ar og skemmtilegar lausnir sem
stuðla að grænna heimili.
Boðið verður upp á m.a. smiðjur,
fyrirlestra, námskeið, kynningar,
hönnunarsýningu og heimildar-
myndir. Viðburðirnir eiga sammerkt
að kynna leiðir til að nýta betur verð-
mætin allt í kringum okkur og draga
úr sóun á ýmsum sviðum.
Heimili okkar – hús og garður –
eru lítil vistkerfi þar sem við setjum
reglurnar. Þátttaka er ókeypis og allir
eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Viðburðir fyrir börn/fjölskyldur.
Nánari upplýsingar um dagskrána
eru á vef Norræna hússins,
www.http://norraenahusid.is.
Umhverfishátíð í Norræna húsinu
Lausnir fyrir
grænni heimili
Matarsóun Markmiðið er m.a. að
kynna leiðir til að minnka matarsóun.
Hestur,
grár fyrir
járnum.
Illúðlegi
kvenbox-
arinn.
Ítalskur,
tveggja
kúlna ís. Gaur á
óræðum
aldri.
Hrokkinhærði
tennisleikarinn.
Stundarspé Bjarni hefur teiknað skop-
myndir í Stundina síðastliðin ár. Þessar
opinberu fígúrur eru auðþekkjanlegar.
Gamall gítar-
leikari með
háan hatt.
Úr hauskúpusyrpunni Eitt árið
teiknaði Bjarni hauskúpu daglega.
VIÐ LEITUM AÐ ÖFLUGUM SÖLUMANNI
Mikilvægt er að viðkomandi tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð, vinni vel með öðrum, sé
drífandi, hugmyndaríkur og léttur í lund. Hann þarf að búa yfir miklum söluhæfileikum og
hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum.
Söludeild Morgunblaðsins, K100 og mbl.is
Hæfniskröfur
• Þjónustulund, kurteisi og jákvætt viðmót er skilyrði.
• Reynsla af sölustörfum er kostur.
• Nákvæmni og skipulag.
• Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendast á
netfangið siljaj@mbl.is
Nánari upplýsingar um starfið gefur
Silja Jóhannesdóttir, sölustjóri, í síma
569 1170 eða í tölvupósti á netfangið
siljaj@mbl.is