Morgunblaðið - 06.04.2018, Síða 9

Morgunblaðið - 06.04.2018, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018 Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Hvort sem þú velur margverðlaunaðan KODIAQ eða glænýjan og snjallan KAROQ gerir þú hvorutveggja. Komdu og prófaðu jeppabræðurna frá ŠKODA. Hlökkum til að sjá þig! HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.skoda.is ENDURNÝJAÐU TENGSLIN MEÐ KODIAQ OG KAROQ. KODIAQ OG KAROQ. FYRIR FÓLKIÐ ÞITT OG NÁTTÚRUNA. ŠKODA KAROQ frá: 3.890.000 kr. ŠKODA KODIAQ 4x4 frá: 5.590.000 kr.5á ra áb yr g ð fy lg ir fó lk sb ílu m H E K LU að up p fy llt um ák væ ð um áb yr g ð ar sk ilm ál a. Þ á er að fi nn a á w w w .h ek la .is /a b yr g d Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verktakar við byggingu Marriott Edition-hótelsins við hlið Hörpu í miðbæ Reykjavíkur eru komnir upp úr jörðinni. Nú er verið að steypa veggi jarðhæðar hótelsins. Þegar hér er komið sögu er lokið rúmlega helmingi af vinnu við uppsteypu hússins. Ólíklegt er að hótelið geti opnað dyr sínar fyrir gestum á næsta ári eins og áformað var. Eigendur hótelbyggingarinnar sömdu við Ístak um uppsteypu hússins. Mikill kraftur fór í bygg- ingu kjallarans, sem er tveggja hæða bygging, sextán metra há og með þykkum veggjum og loftplöt- um. Þar verða bílageymslur, tækni- rými, eldhús og fleira. Starfsmennirnir þurftu að glíma við bæði sjó og rigningarvatn ofan úr bæ þegar þeir voru að steypa upp kjallarann. Neðsti hluti hans er átta metrum undir sjávarmáli. Miklu vatni var því dælt í sjóinn. Þorvaldur Guðjónsson, yfirverk- fræðingur hjá Ístaki, segir að kjall- arinn hafi þó ekki á neinum stigum farið á flot. Unnið á jarðhæðinni Kjallarinn er innpakkaður í vatnsheldan dúk og með því er reynt að takmarka eins og hægt er að vatn eða sjór flæði inn. Einnig verða neyðardælur þar eins og í öðrum byggingum á þessum stað. Með uppsteypu kjallarans er lok- ið við rúmlega helming af verkefni Ístaks við hótelbygginguna. Ofan á kjallarann er byggður sjö hæða hótelturn. Nú eru verktak- arnir að steypa upp veggi jarðhæð- ar en þar verður meðal annars mót- taka hótelsins og veitingasalir. Á hinum hæðunum verða síðan yfir 250 hótelherbergi. Þorvaldur segir að uppsteypu hússins verði lokið fljótlega á næsta ári. Með því lýkur verkefni Ístaks. Við tekur lagnavinna og frágangur að utan og innan. Þorvaldur veit ekki til þess að þau verk séu komin í útboðsferli. Haft var eftir fulltrúa eigenda hússins í Morgunblaðinu í ágúst á síðasta ári að áformað væri að opna hótelið á árinu 2019. Sú áætlun mið- aðist við að uppsteypu yrði lokið síðari hluta þessa árs. Ekki er vitað til þess að komin sé endanleg áætl- un um opnun Marriott-hótelsins. 85 menn vinna við bygginguna, að sögn Þorvaldar. Ístak byggir einnig verslunar- og íbúðarhús við hlið hótelsins, fyrir Íslenskar fasteignir. Á vinnusvæðinu eru því alls um 160 starfsmenn fyrirtækisins. Hótel kemur upp á yfirborðið  Uppsteypu sextán metra hás og umfangsmikils kjallara Marriott Edition-hótelsins við Hörpu er lokið  Þar með er lokið rúmlega helmingi uppsteypu hótelsins  Ólíklegt að hægt verði að opna á næsta ári Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hótel rís Með uppsteypu kjallarans er lokið við rúmlega helming af verkefni Ístaks við hótelbygginguna. Verktakar hafa lítið pláss til að athafna sig á byggingarlóðunum við Hörpu. Hver fermetri er nýtt- ur. Ístak er að byggja tvö hús á Hörpureitnum, hús fyrir vænt- anlegt Marriott-hótel og sjö hæða verslunar- og íbúðarhús. Þorvaldur Guðjónsson yf- irverkfræðingur segir að fyr- irtækið þurfi pláss fyrir mót, timbur og járn, auk verkfæra. Reynt sé að flytja sem mest á milli hæða. Þá séu lóðirnar nýtt- ar til hins ýtrasta og jafnvel eitt- hvað auðar lóðir í nágrenninu. Þá segir hann að stanslausir flutningar séu á efni til og frá höfuðstöðvum Ístaks í Mos- fellsbæ. Eigandi íbúðar- og versl- unarhússins við Geirsgötu leysti plássvandræðin að hluta með því að taka á leigu pramma sem liggur bundinn við bryggju. Þor- valdur segir að þegar skemmti- ferðaskipin komi í næsta mán- uði verði pramminn að fara en hann verði væntanlega dreginn á sinn stað í haust. Hver fermetri lóða nýttur LÍTIÐ SVIGRÚM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.