Morgunblaðið - 06.04.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018
Ármúla 17, 108 Reykjavík, sími 552 8636, mbr.is
Allt fyrir raftækni
Hljómtæki
Cambridge
Audio YOYO S
Bluetooth hátalari
26.900 kr.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Sigríður Á. Andersen dóms-
málaráðherra er ekki sammála
þeirri gagnrýni að tilvísunarleið,
sem notuð hefur verið á Norður-
löndunum við innleiðingu nýrrar
persónuverndarreglugerðar Evr-
ópusambandsins (ESB), sé besta
leiðin við innleiðingu á Íslandi. Sig-
ríður segir að til þess beri að líta
að Ísland sé ekki í ESB, heldur í
EES eins og Noregur. Noregur
hafi notast við tilvísunarleiðina og
norska persónuverndarstofnunin
hafi þegar gert miklar at-
hugasemdir við innleiðinguna þar.
„Reglugerð-
in kveður á um
svigrúm ríkja til
útfærslu á ein-
stökum ákvæð-
um en venjulega
eru reglugerðir
teknar upp
óbreyttar, ólíkt
tilskipunum þar
sem er meira
svigrúm til stað-
bundinna útfærslna. Ég mun
leggja fram frumvarp til nýrra
persónuverndarlaga og reglugerð-
in verður í viðauka. Reglugerðin
gildir en lagatextinn skýrir ákvæði
sem svigrúm er til að útfæra nánar
skv. henni. Ég tel þetta skil-
merkilegri aðferð gagnvart þeim
sem byggja rétt sinn á og þurfa að
hlíta reglugerðinni. Hún er í anda
íslenskrar hefðar í lagasetningu og
þess sem hentar best í okkar laga-
umhverfi.“
Sigríður hafnar því að innleið-
ingin hérlendis sé of íþyngjandi og
segir að sitt sýnist hverjum eftir
hvar hagsmunirnir liggja, reglu-
gerðin sé sett til verndar persónu-
réttindum einstaklinga, en vill taka
undir að það sé mikil áskorun að
tileinka sér ný vinnubrögð fyrir
alla aðila. Hún lofar ítarlegri svör-
um í grein sem hún hyggst birta
von bráðar.
„Sitt sýnist hverjum eftir
hvar hagsmunirnir liggja“
Sigríður Andersen segist vera ósammála gagnrýni
Sigríður Á.
Andersen
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Börur, sem notaðar eru við sjúkra-
flutninga, þurfa nú að geta borið
meiri þyngd en áður vegna aukinnar
offitu fólks. Stefán Pétursson, for-
maður Félags slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna, segir sjúkraflutn-
ingamenn finna vel fyrir því að
Íslendingar séu „stærri en áður“ og
að hugsanlega megi rekja aukna
tíðni stoðkerfisvandamála fé-
lagsmanna til þessa.
Áður báru hefðbundnar sjúkra-
börur, sem notaðar eru við sjúkra-
flutninga, allt að 120 kg. Meðalþyngd
Íslendinga hefur aukist og of feitum
fjölgað og nú þola hefðbundnar bör-
ur 30% meiri þyngd. Þá eru í all-
nokkrum sjúkrabílum börur sem
geta borið allt að 225 kg.
„Elstu börurnar, sem eru notaðar
við sjúkraflutninga, eru um 20 ára og
eru gefnar upp fyrir 120 kg að há-
marki. Framleiðandinn smíðar bör-
urnar í samræmi við þarfirnar á
hverjum tíma og flestar af nýjustu
börunum okkar geta borið 160 kíló.
Það er einfaldlega vegna þess að fólk
er þyngra nú en fyrir 20 árum,“ segir
Stefán.
Mikil fjarvera vegna álags
Hann segir að á nokkrum stöðum
á landinu séu komnar rafdrifnar bör-
ur sem létti störf sjúkraflutninga-
manna talsvert. „Það er um 30% fjar-
vera frá vinnu vegna
stoðkerfisvandamála í stéttinni og
þetta hlutfall hefur hækkað jafnt og
þétt. Þó að það hafi ekki verið rann-
sakað sérstaklega, þá held ég að það
sé alveg óhætt að fullyrða að ein
ástæðan er að fleiri Íslendingar eru
of þungir nú en áður var.“
Fyrr í vikunni greindi norska dag-
blaðið Aftenposten frá því að sjúkra-
hús í Þrándheimi hefði þurft að fjár-
festa í rafdrifnum sjúkrabörum sem
geta borið allt að 318 kg og að breyta
hefði þurft innréttingum sjúkrabíla
þannig að hægt væri að sinna mjög
þungum sjúklingum. Þetta var gert
vegna þess að sjúklingum, sem vega
meira en 250 kíló, hefur fjölgað mjög
í Noregi.
Stefán segist sjálfur hafa flutt
mjög þunga sjúklinga á börum sem
voru hannaðar fyrir minni þyngd.
„Þá þurfum við einfaldlega að gera
öryggisráðstafanir og kalla út auka-
mannskap. Vera þrír til fjórir í stað-
inn fyrir tvo. Þegar um svona þungt
fólk er að ræða getum við heldur
ekki sett upp skjólborðin, sem loka
hliðunum á börunum og þurfum að
óla fólk niður. Svo getur verið snúið
að athafna sig í sjúkrabílnum þegar
um er að ræða mjög feitt fólk, því þar
er takmarkað pláss.“
Þungir þurfa aukamannskap
„Við verðum svo sannarlega vör
við þetta. En sem betur fer hefur
ekki komið til þess að einhver hefur
verið svo þungur að við höfum ekki
getað flutt hann,“ segir Styrmir Sig-
urðarson, yfirmaður sjúkraflutninga
á Suðurlandi. Hann segir að þar
þurfi að kalla til aukamannskap
nokkrum sinnum á ári, ýmist fleiri
sjúkraflutningamenn eða lögreglu,
til að flytja þunga sjúklinga. „Slíkum
tilvikum fer fjölgandi ár frá ári,“ seg-
ir Styrmir. Hann segir að töluvert sé
um stoðkerfisvanda, einkum bak-
vandamál, meðal samstarfsfólks síns
og segir aukna tíðni þess vera í beinu
samhengi við fleiri mjög þungra
sjúklinga. „Það er alveg beint sam-
hengi þarna á milli,“ segir hann.
Í nokkrum sjúkrabílum á Suður-
landi eru börur, sem taka 225 kíló og
Styrmir segir að sér sé kunnugt um
að í einhverjum bílum á landinu séu
börur sem þoli meiri þyngd en það.
„Þar fyrir utan er verið að innleiða
rafmagnsdrifnar börur og það er
mikið hagsmunamál fyrir okkur sem
störfum við sjúkraflutninga.“
Þurfa að geta
borið þriðjungi
meira en áður
Áður voru sjúkrabörur hannaðar
fyrir 120 kg hámark, nú eru það 160 kg
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Sjúkraflutningamenn Álag á þá
eykst með meiri þyngd landsmanna.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við getum ekki annað en fagnað því
að þarna kemur töluverð innspýting
næstu þrjú ár. Þó það sé mest talað
um framkvæmdir þá trúi ég því nú
að þetta eigi bæði við um fram-
kvæmdir og viðhald,“ segir Hreinn
Haraldsson vegamálastjóri.
Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinn-
ar kemur fram að 16,5 milljarðar
króna eru ætlaðir í sérstakt átak í
samgöngumálum. Þeir skiptast
þannig niður að 5,5 milljörðum verð-
ur varið til þessa á hverju ári 2019-
2021 auk hefðbundinna fjárveitinga
til málaflokksins.
Hreinn segir að þessir fjármunir
séu kærkomnir en þeir dugi þó
skammt til að sinna öllu því sem gera
þarf í vegamálum. „Þetta er langt frá
þeim tölum sem talað er um að skorti
inn í kerfið, sem eru 100-200 millj-
arðar króna,“ segir hann.
„Ástandið á vegakerfinu víða um
land er þannig að ég treysti því að
hluti af þessum viðbótarfjármunum
verði nýttur í viðhaldið auk brýnna
nýframkvæmda,“ segir Hreinn en
endanleg útfærsla á þessu verður í
höndum Alþingis þegar samgöngu-
áætlun verður lögð fram í haust.
Ásgrímur L. Ásgrímsson, fram-
kvæmdastjóri aðgerðasviðs Land-
helgisgæslunnar og staðfengill for-
stjóra, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að það væri
fagnaðarefni að í fjármálaáætlun
ríkisstjórnarinnar væri gert ráð fyr-
ir kaupum á þremur nýjum björg-
unarþyrlum en tveir milljarðar eru
eyrnamerktir verkefninu á næsta
ári. „Þetta er allt á plani og við fögn-
um því að stjórnvöld standi við það
sem tekin hefur verið ákvörðun um,“
segir hann.
Í færslu á Facebook-síðu Land-
helgisgæslunnar í gær kemur fram
að stofnunin vinni nú að gerð útboðs-
gagna og standa vonir til að útboðs-
ferli geti hafist í lok þessa árs. Með
því geti nýjar þyrlur verið komnar í
rekstur á árabilinu 2021-2023.
„Jafnframt er ánægjulegt
að áætlunin gerir ráð fyrir
því að bætt verði í rekstur
Landhelgisgæslunnar og er
stefnt að því að stofnun-
in verði með 6 þyrlu-
áhafnir í lok árs 2019
sem mun auka ör-
yggi til sjós og
lands,“ segir í
færslu Landhelgis-
gæslunnar.
Fjármálaáætlun næstu fimm ár
338 milljörðum króna verður varið til fjárfestinga í innviðum út árið 2023
5,5milljörðumverður v a r i
ð
ár
le
ga
ís
ér
st
ak
tá
tak
ísamgöngumálum á á
ru
nu
m
20
19
-2
0
21
,a
lls
16
,5m
illjörðum. Meðalfram
kvæ
m
daeru
D
ýrafjarðargöng,
Dettifos
sveg
ur,G
rind
avík
urv
egu
r og
Ves
turl
and
sveg
urum
Kjalarnes
35% hækkun verður á fram-lögum til umhverfis-
mála frá árinu 2017. Uppbygging
er boðuð á fjölsóttum
ferðamannastöðum
Stofnaður verði
miðhálendis-
þjóðgarður
124 milljörðum verði varið til uppbyggingar samgöngu-
innviða á tímabilinu
Ljósleiðaravæðingu Íslands
á að ljúka árið 2020
0,25%
lækkun verður á
tryggingagjaldi á
næsta ári
75 milljarðar króna fara í fjárfestingu í sjúkrahússþjónustu. Stærsti hlutinn fer
til byggingar nýs Landspítala við Hringbraut
20% Stefnt er að því að heildarskuldir
ríkissjóðs verði ekki meira en
20% af VLF í árslok 2023
1% lækkun verður á skatthlutfalli
neðra þreps.
Gjaldtaka á
ferðamenn
hefjist frá og
með árinu 2020
en útfærsla
liggur ekki fyrir
Virðisaukaskattur verður afnuminn
af bókum í byrjun næsta árs
Þá verði endurskoðuð skattlagning á
fjölmiðla, tónlist og höfundarréttargreiðslur
Mikilvægt að hluti
fjárins fari í viðhald
Vegamálastjóri fagnar innspýtingu til vegaframkvæmda
Framlög til háskólastigsins juk-
ust um 15,2% að nafnvirði
milli áranna 2016 og 2018.
Samkvæmt fjármálaáætlun
ríkisstjórnarinnar fyrir árin
2019-2023 er fyrirhugað að
fjárveitingar til háskólastigins
muni halda áfram að aukast
og hækki upp í 47,2 milljarða
árið 2023. Þetta þýðir vöxt
upp á tæp 12% á tímabilinu,
að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá mennta- og menning-
armálaráðuneytinu.
„Öflugir háskólar eru for-
senda þess að auka samkeppn-
ishæfni þjóðarinnar ásamt því
að stuðla að stöðugu og
fyrirsjáanlegu starfsum-
hverfi fyrirtækja,“ segir
Lilja Alfreðsdóttir,
mennta- og menningar-
málaráðherra.
Meira fé til
háskólanna
FJÁRMÁLAÁÆTLUN
Lilja Alfreðsdóttir