Morgunblaðið - 06.04.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018
Haukur Heiðar Ingólfsson, læknir
og píanóleikari, og synir hans,
Halldór og Haukur Heiðar, leiða
fjöldasöng í Hannesarholti að
Grundarstíg 10 í Reykjavík á
sunnudag kl. 14. Haukur Heiðar
hinn eldri hefur um áratuga skeið
glatt Íslendinga með píanóleik sín-
um, svo sem með Ómari Ragn-
arssyni og með dinnertónlist.
Geisladiskar hans með sígildum
dægurlögum, leiknum sem sungn-
um, hafa notið vinsælda. Synirnir
tveir hafa getið sér gott orð fyrir
söng, hvor á sínu sviði.
Á söngskrá feðganna í Hann-
esarholti er fjölbreytt blanda af
þekktum og skemmtilegum dæg-
urlögum, sænskum vísum og
söngvum um vorið. Textar birtast
á tjaldi og allir taka undir. Frítt er
fyrir börn í fylgd með fullorðnum
sem greiða 1.000 krónur.
Feðgar flytja dægurlög í Hannesarholti
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Píanóleikari Læknirinn Haukur Heiðar
Ingólfsson við hljóðfærið á góðri stundu.
Orka náttúrunnar hefur lokið við
borun á nýrri vinnsluholu í Hvera-
hlíð og er verið er að prófa holuna,
sem lofar góðu. Fram kemur í til-
kynningu frá ON að holan verði
nýtt til rafmagnsvinnslu og heita-
vatnsframleiðslu í Hellisheið-
arvirkjun.
„Við prófanirnar blæs holan jarð-
hitagufu og sést tilkomumikill
strókurinn frá henni vel frá þjóð-
vegi 1 yfir Hellisheiði. Með gufunni
berast upp jarðhitalofttegundir,
þar á meðal brennisteinsvetni, sem
ekki fer þá í hreinsun í loft-
hreinsistöð líkt og gufa sem leidd
er í gegnum Hellisheiðarvirkjun,“
segir í tilkynningu. Þá eru líkur á
því að styrkur brennisteinsvetnis
geti aukist á höfuðborgarsvæðinu.
Ný borhola í Hverahlíð lofar góðu
Borhola Prófanir á nýrri holu byrja vel.
Morgunblaðið/RAX
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Alþingi kemur saman á nýjan leik
næsta mánudag, 9. apríl, eftir 16
daga páskafrí. Samkvæmt starfs-
áætlun Alþingis er gert ráð fyrir
15 þingfundar-
dögum fram til
9. maí, að þingi
verður frestað
vegna sveitar-
stjórnarkosning-
anna 26. maí nk.
Auk þess gerir
starfsáætlun ráð
fyrir 6 nefnd-
adögum til 9.
maí nk.
Starfsáætlun
Alþingis gerir ráð fyrir að þing
komi saman á nýjan leik hinn 28.
maí, tveimur dögum eftir sveitar-
stjórnarkosningar og að þingfund-
ir verði 8 talsins, til 7. júní að Al-
þingi verði frestað á nýjan leik til
17. júlí, en þá verði þingfundur og
loks verði hátíðarþingfundur á
Þingvöllum hinn 18. júlí, en þingi
svo frestað til 11. september, en
þá hefjist 149. löggjafarþing Al-
þingis.
25 þingfundir á 14 vikum
Alls eru því ráðgerðir 25 þing-
fundardagar á næstu fjórtán og
hálfri viku, eða til 17. júlí. Á þessu
tímabili eru 67 virkir dagar og
hafa þá verið undanskildir lög-
bundnir frídagar, sem ber upp á
virka daga, en það eru sumardag-
urinn fyrsti, verkalýðsdagurinn 1.
maí, uppstigningardagur og annar
í hvítasunnu. Í ár ber þjóðhátíð-
ardaginn 17. júní upp á sunnudag.
Birgir Ármannsson, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
var í gær spurður hvort línur
hefðu skýrst, hvaða þingmál yrði
lögð áhersla á að ljúka afgreiðslu
á, fyrir þinghlé 9. maí: „Nei, það
hefur enn ekki verið rætt með
þeim hætti, hvorki í þingflokknum
né á milli flokkanna. Það liggur
fyrir að fjármálaáætlunin verður
stærsta einstaka málið og kemur
til með að taka til sín ansi mikinn
tíma og orku, en það er gert ráð
fyrir því að fjármálaráðherra mæli
fyrir málinu á miðvikudaginn í
næstu viku,“ sagði Birgir.
Hann segir að það sé ljóst að
tíminn sem gefist til afgreiðslu
fjármálaáætlunar í þinginu verði
nokkuð knappur og líklega muni
forseti Alþingis eitthvað hliðra
áætlaðri dagskrá. „Að öðru leyti
er ekki búið að forgangsraða mál-
um og afgreiðslu þeirra, en samtöl
á milli flokka um slíka forgangs-
röðun fara væntanlega af stað í
næstu viku,“ sagði Birgir.
15 þingfundardagar til 9. maí
Afgreiðsla fjármálaáætlunar mun væntanlega taka mestan tíma og orku Alþingis Formaður þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins á von á að þingmál verði rædd og þeim verði forgangsraðað í næstu viku
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Fjármálaráðherra mælir væntanlega fyrir fjármálaáætlun 11. apríl.
Birgir
Ármannsson
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
LÍKA FYRIR STÓRU
HUNDANA
– fyrir dýrin þín