Morgunblaðið - 06.04.2018, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018
Stórbruni í Garðabæ
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Stórbrunar eru fátíðir hér á landi og miðað
við nágrannalöndin er manntjón og eignatjón
í brunum hér helmingi minna en þar miðað
við mannfjölda. Þetta segir Björn Karlsson,
forstjóri Mannvirkjastofnunar, í samtali við
Morgunblaðið. Eldvarnasvið stofnunarinnar
hefur yfirumsjón með slökkvistarfi sveitar-
félaga og gætir þess að ákvæðum laga og
reglugerða um brunavarnir sé fylgt.
„Við verðum sífellt að halda vöku okkar á
þessu sviði,“ segir Björn, en telur þó bruna-
varnamál í stórum dráttum í góðu lagi hér á
landi. Hann telur að þetta megi m.a. rekja til
steyptra húsa, hitaveitu
og þess hve samfélagið er
fámennt og mikil tengsl á
milli fólks. Veikleikarnir
séu einkum hjá minni
sveitarfélögum vegna
gríðarlegs uppgangs í
ferðaþjónustu og fjölg-
unar gististaða. Víða úti á
landi skorti mjög á að
nægir fjármunir séu til
eldvarnaeftirlits á nýjum stöðum.
Bruninn í Miðhrauni í Garðabæ í gær er
einn mesti eldsvoði sem slökkviliðin í
Reykjavík og nágrenni hafa orðið að takast á
við á síðustu árum. Þar varð mörg hundruð
milljóna tjón og ekki öll kurl komin til graf-
ar. Aðrir minnisverðir stórbrunar í Reykja-
vík undanfarin ár eru eldsvoðinn í Skeifunni í
júlí 2014, hjá Hringrás í Klettagörðum í júlí
2011, við Lækjartorg í apríl 2007 og hjá
Teppalandi í Fákafeni í ágúst 2002. Utan
höfuðborgarsvæðisins hafa einnig orðið
nokkrir stórbrunar á síðustu árum, svo sem
bruninn í Plastiðjunni á Selfossi í nóvember
2015, Trésmiðju Akraness í september 2013
og gamla fiskmarkaðnum á Grundarfirði í
ágúst 2009.
Í Skeifunni brann meðal annars verslunar-
húsnæði Griffils og Rekstrarlands og þvotta-
hús Fannar. Skemmdir urðu einnig á öðrum
fasteignum á sama reit, svo sem þar sem
Stilling var til húsa og ýmsum skrifstofum
sem vísuðu í átt að Hagkaupum. Við brunann
á athafnasvæði Hringrásar við Klettagarða
2011 lagði þykkan reykjarmökk yfir Reykja-
vík frá dekkjum sem kviknaði í. Þar hafði áð-
ur orðið mikill eldsvoði 2004 og varð þá að
flytja um 600 manns úr íbúðum við Klepps-
veg í öryggisskyni. Í brunanum á horni
Lækjargötu og Austurstrætis 2007 eyðilögð-
ust sögufrægar byggingar, en ráðist var í
miklar endurbyggingar á reitnum í kjölfarið.
Meira en sólarhring tók að slökkva eldinn í
Fákafeni 2002. Þar kviknaði í verslunar- og
lagerhúsnæði Teppalands og varð gífurlegt
tjón. Í kjallara hússins voru geymd listaverk
í eigu Listasafns Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Sverrir
Fákafen 2002 Meira en sólarhring tók að
ráða við eldinn í verslunar- og lagerhúsnæði.
Morgunblaðið/Júlíus
Miðbærinn 2007 Sögufræg hús brunnu vor-
ið 2007, en ráðist var í endurbyggingu.
Morgunblaðið/Júlíus
Hringrás 2011 Dökkan mökk lagði frá
Sundahöfn yfir stóran hluta Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skeifan 2014 Mikið tjón varð og er enn
óljóst um uppbyggingu á reitnum.
Minna brunatjón hér en erlendis
Stórbrunar fátíðir Staða eldvarna góð í höfuðdráttum „Verðum að halda vöku okkar“
Björn Karlsson
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Við kölluðum strax út allt tiltækt lið
slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins,
einnig þá sem voru á frívakt, því ljóst
var í upphafi að eldurinn væri mik-
ill,“ segir Birgir Finnsson, vara-
slökkviliðsstjóri á höfuborgarsvæð-
inu, í samtali við Morgunblaðið.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
fékk meðal annars liðsauka frá
Brunavörnum Árnessýslu og Bruna-
vörnum Suðurnesja til að ráða niður-
lögum eldsins.
„Við fengum aðstoð frá björgunar-
sveitinni og aðgerðabíl frá þeim, en
einnig fengum við aðstoð frá Veitum
og Vatnsveitu Garðabæjar,“ segir
Birgir og bætir við að sjúkrabílar
hafi verið fengnir annars staðar frá
til þess að sinna sjúkraflutningum og
öðrum daglegum verkefnum í borg-
inni meðan á slökkvistarfi stóð.
Þá segir Birgir einnig að nýliðar
slökkviliðsins, sem staddir voru á
námskeiði þegar brunakallið kom,
hafi einnig tekið þátt í verkefninu.
Fengu þeir því eldskírn sína í bruna
gærdagsins, sem er sá stærsti hér á
landi frá því að stórt verslunarhús-
næði gjöreyðilagðist í bruna í Skeif-
unni í Reykjavík árið 2014.
15% fást bætt utan heimilis
Sigurjón Andrésson, forstöðu-
maður markaðsmála og forvarna hjá
Sjóvá, segir að allt að 15% af vá-
tryggingarfjárhæð almenns innbús í
fjölskyldutryggingu fáist bætt af
innbúi sem er geymt utan heimilis.
Ef heilu búslóðirnar eru settar í
geymslu þá þurfi hins vegar að til-
kynna breyttan tryggingarstað til
þess að innbústryggingin gildi á
þeim stað, að sögn Sigurjóns.
Þá segir Sigurjón að fjölmargir
hafi haft samband við trygginga-
félagið í gær til að nálgast upplýs-
ingar um stöðu sinna mála og til að
tilkynna tjón. Ekki sé hins vegar
hægt að vinna úr tjónstilkynningum
fyrr en slökkvilið og lögregla hafa
skilað af sér brunavettvangi.
Með stærstu brunum síðari ára
Vanir menn Alls tóku vel yfir 100 slökkviliðsmenn þátt í slökkvistarfinu og stóðu aðgerðir yfir langt fram á kvöld.
Morgunblaðið/Eggert
Eldhaf Slökkviliðsmenn tókust á við mikinn eld og beittu meðal annars hjólsögum til að rjúfa veggi og hurðir.
Barátta Fjölmennt lið slökkviliðsmanna var kallað út vegna brunans.
Allt tiltækt lið sökkviliðs kallað út
vegna eldsins Tryggingar ná yfir 15%
af innbúi sem geymt er utan heimilis