Morgunblaðið - 06.04.2018, Qupperneq 44
FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 96. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Mikill eldur í Garðabæ
2. Öskrað á fólk að drífa sig út
3. Banaslys við Vík
4. Ljósmyndirnar af dætrunum farnar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fílharmóníuhljómsveit New York-
borgar, undir stjórn Esa-Pekka Salo-
nen, frumflutti í fyrrakvöld nýtt verk
eftir Önnu Þorvaldsdóttur tónskáld.
Verkið er flutt á þrennum tónleikum í
vikunni, þeim síðustu í kvöld, föstu-
dag, ásamt 3. píanókonsert og
Eroica-synfóníu Beethovens. Tónverk
Önnu nefnist „Metacosmos“ og var
pantað sérstaklega af henni árið 2015
fyrir hina kunnu hljómsveit, en pönt-
unin var hluti svokallaðra Kravis-
verðlauna sem Anna hlaut þá og veitt
eru ungu og upprennandi tónskáldi.
Í grein í The New York Times í til-
efni flutningsins á verki Önnu segir
að tónlist hennar sé yfirleitt mótuð af
landslagi og vistkerfum, og þá eink-
um óhaminni orku íslenskrar náttúru,
en nýja verkið sæki þó enn lengra, í
krafta og dulúð stjörnukerfa. Birt er
síða úr nótnahandritinu og rætt um
hana við Önnu, sem segist hafa haft
hljómsveitina í fullri stærð í huga
þegar hún samdi verkið, en í því mæt-
ist óreiða og fegurð.
Morgunblaðið/Kristinn
Pantað verk Önnu
frumflutt í New York
Blár apríl, styrktarfélag barna með
einhverfu, stendur fyrir styrktartón-
leikum í Gamla bíói í kvöld kl. 20. Tón-
leikarnir eru liður í árlegu vitundar-
og styrktarátaki fyrir einhverf börn.
Kynnir er Ævar Þór Benediktsson og
fram koma Ylja, Birgir,
Hafdís Huld, AmabA-
damA, Snorri Helga-
son og Moses
Hightower. Blár
klæðnaður er æski-
legur, en í dag er
einmitt blái
dagurinn.
Tónleikar til styrktar
einhverfum börnum
Á laugardag Vestlæg átt, 3-8 m/s og víða bjartviðri, en 8-13 með
norðurströndinni og lítilsháttar él. Hiti 0 til 5 stig við suður- og
suðvesturströndina, annars víða 0 til 5 stiga frost.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæglætisveður og bjart, en suðvestan 8-13
m/s á norðvestanverðu landinu eftir hádegi og þá stöku él vestan-
lands. Hiti að 5 stigum syðra, en vægt frost nyrðra og eystra.
VEÐUR
Haukar eru komnir með
undirtökin gegn fjórföld-
um Íslandsmeisturum KR
í körfubolta karla eftir
sigur í fyrstu viðureign
liðanna í undanúrslitum
Íslandsmótsins á Ásvöll-
um í gærkvöld, 76:67.
Haukar skoruðu 30 stig
gegn meisturunum í
fyrsta leikhluta og sú
byrjun reyndist fleyta
þeim langleiðina til sigurs
í leiknum. »3
Haukar með yfir-
höndina gegn KR
Eyjakonur jöfnuðu í gærkvöld metin
gegn Fram í einvígi liðanna í undan-
úrslitum Íslandsmóts kvenna í hand-
knattleik með því að vinna annan
leikinn í Vestmannaeyjum, 23:20.
Fram hafði þó náð sjö marka forystu í
fyrri hálfleiknum. Staðan er nú 1:1 og
ljóst að minnst fjóra leiki þarf til að
útkljá einvígið en liðin mætast í
þriðja sinn á sunnudaginn. »2
ÍBV vann upp forskot
Framkvenna í Eyjum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Blöðin hafa verið ótrúlega vinsæl í
afmælisgjafir og allskonar tækifær-
isgjafir,“ segir Laufey Guðmunds-
dóttir. Hún selur gömul eintök af
Morgunblaðinu í gegnum netið en
blöðin komu upp í hendurnar á henni
fyrir fjórum árum. „Það fannst fjöldi
kassa með gömlum Moggum uppi á
hálofti hjá langafa barna minna. Í
kössunum var hvert einasta blað
sem kom út frá febrúar 1942 til júlí
1989. Það var eitt eintak af hverju
blaði og allt mjög vel með farið.“
Þegar blöðin voru tekin niður af
háaloftinu var þeim umstaflað í um
80 bananakassa. Þá rak Laufey aug-
un í kassa merktan fæðingarári sínu
og gróf eftir blaðinu sem kom út á
fæðingardegi hennar. „Við vorum að
spá í að henda þessu en ákváðum svo
að reyna að selja blöðin. Það gladdi
okkur svo að finna blöðin okkar að
við ákváðum að gleðja aðra líka með
því að bjóða þeim að kaupa sín blöð.“
Engin blöð fyrir mánudagsbörn
Frá upphafi hefur verið mikið að
gera í blaðasölunni sem Laufey sinn-
ir samhliða fullri vinnu en hún fékk
tvær dætur sínar til aðstoðar. „Það
er mikil vinna að svara fyrir-
spurnum og finna hvert blað. Það er
heilmikið farið en samt lygilega mik-
ið eftir. Við fórum í Kolaportið
með blaðabunkann í
nokkur skipti og þar var
alveg brjálað að gera,“
segir Laufey sem þarf að
leigja geymslu undir öll
blöðin.
Spurð hvort hún hafi
íhugað að hætta í blaðasöl-
unni segist hún hafa gert
það mörgum sinnum. „Svo
þegar maður heyrir af ein-
hverjum sem verður ægi-
lega glaður hætti ég við.
Þetta er svo persónuleg
gjöf, þarna ert þú með blað sem er
nákvæmlega jafn gamalt og þú.“
Sömu fréttirnar og í dag
Morgunblaðið kom ekki út á
mánudögum og ekki eftir rauða
daga á þessum árum og því geta
ekki allir fengið afmælisblöðin sín.
„Það er heppni ef allt er til og líka ef
enginn hefur fæðst á mánudegi. Þeir
sem eru mánudagsbörn hafa stund-
um fengið sér þriðjudagsblaðið því
fréttirnar þeirra eru þar.“
Laufey geymir sinn fæðingar-
mogga vel. Hún segir ekkert eftir-
minnilegt hafa gerst á þeim degi en
margar skemmtilegar ballauglýs-
ingar séu í blaðinu. „Það eru sömu
fréttirnar í þessum gömlu blöðum
aftur og aftur, um frið og óeirðir.
Sömu fréttirnar og eru í blöðunum
sem koma út í dag.“
80 bananakassar af Moggum
Selur Morgun-
blöð sem komu út
frá 1942 til 1989
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gamlir Moggar Linda Rós og Rebekka Karin glugga í gömul Morgunblöð sem Laufey Guðmundsdóttir selur.
Mest hefur verið spurt um eintök Morgunblaðsins sem komu
út 17. og 19. júní 1944, þar sem fjallað er um stofnun lýðveld-
isins. „Þessi blöð fóru strax, það var ungur strákur sem
keypti þau að gamni sínu. Það er líka mikið spurt um blöð í
kringum sérstaka atburði eins og Vestmannaeyjagosið og
slíkt. Eitthvað er til af slíkum blöðum því sumir panta blöð
en sækja þau svo aldrei.“
Laufey segir fólk oft ekki með dagsetningarnar sem það
er að biðja um á hreinu og panti blöð í fljótfærni. „Það hef-
ur meira að segja komið fyrir að karlmenn hafi keypt vit-
laust ár fyrir konurnar sínar. Það er ekki alltaf hægt að laga
það því það er ekki víst að rétta blaðið sé til.“
Hægt er panta blöð í gegnum Facebook-síðuna Gamla
Mogga.
KARLAR KAUPA VITLAUST ÁR FYRIR KONUR SÍNAR
Forsíða Morg
unblaðsins
23. janúar 19
73.
Mest spurt um 17. júní 1944
Ungt íslenskt karlalandslið í hand-
knattleik tapaði naumlega fyrir Norð-
mönnum í fyrsta leiknum á alþjóð-
legu móti sem hófst í Noregi í gær.
Guðmundur Þ. Guðmundsson stýrði
liðinu í fyrsta sinn í sex ár og segja
má að frumsýning táninganna hafi
gengið framar vonum. Nokkrir yngri
leikmannanna fóru á kostum, m.a.
hinn sextán ára gamli
Haukur Þrastarson
sem stal senunni
í seinni hálfleik.
»4
Frumsýning sem gekk
framar vonum