Morgunblaðið - 06.04.2018, Side 10

Morgunblaðið - 06.04.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 * V ið m ið u n a rt ö lu r fr a m le ið a n d a u m e ld s n e y ti s n o tk u n í b lö n d u ð u m a k s tr i. B ú n a ð u r b íl s á m y n d e r fr á b ru g ð in n a u g lý s tu v e rð i E N N E M M / S ÍA / N M 8 7 1 1 1 Í FJÖLSKYLDUNNI NISSAN SJÁLFSKIPTUR / 3.350.000KR. ARINNJUKEACENTA 117 HESTÖFL / EYÐSLA 6,0 L/100 KM* Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Þetta hefur allt gengið mjög vel nema hvað hitinn hefur verið að angra okkur,“ sagði Magnús Rík- arðsson, skipstjóri á Breka VE, um hádegi í gær. Páll Pálsson ÍS, nýr togari Hraðfrystihússins Gunnvarar á Hnífsdal, og Breki, nýsmíði Vinnslustöðvarinnar i Vestmanna- eyjum, áttu þá um tólf tíma eftir í höfn í Kólombó á Srí Lanka eftir 15 daga siglingu frá skipasmíðastöð í Kína. Í Kólombó á að taka olíu og vistir, en einnig fara þrír vopnaðir öryggisverðir um borð í hvort skip. Í skipalest meðfram Sómalíu Sjórán hafa verið tíð fyrir strönd- um Sómalíu þó svo að dregið hafi úr þeim síðustu ár. Frá 2005 til 2012 voru gerðar linnulitlar árásir á skip undan hinum fjölförnu ströndum Sómalíu og var lausnargjalda krafist fyrir áhafnir og skip. Í fyrra var til- kynnt um níu sjórán á svæðinu sam- kvæmt alþjóðlegri skráningu, en samkvæmt upplýsingum Magnúsar á Breka voru sjórán og tilraunir til þeirra um 60 talsins á síðasta ári, en í mörgum tilvikum var nóg að stugga við ræningjunum. „Við reiknum með að fara í skipa- lest meðfram Sómalíu og þrír þung- vopnaðir öryggisverðir eða hermenn verða um borð í hvoru skip,“ segir Magnús. „Það er okkar val að hafa þessa menn um borð til að tryggja öryggið. Þeir eru ráðnir frá einka- fyrirtæki, en ekki liggur fyrir hversu langt þeir fara með okkur í átt að Súes. Á tímabili var nánast eitt sjórán á dag, en verulega hefur dregið úr þessu á síðustu árum. Það er þó ekki lengra síðan en 31. mars að gerð var tilraun til sjóráns á þessum slóðum, samkvæmt upplýsingum sem ég fékk frá öryggisfyrirtækinu sem leigir okkur hermennina. Það er erfitt fyrir okkur að greina hvort um eftirlitsbát er að ræða eða bát ræningja, en menn sem eru öll- um hnútum kunnugir greina strax hverjir eru á ferð. Mér skilst að það sé nóg að ef sjóræningjarnir sjá glitta í byssu hörfi þeir án þessi að skjóta þurfi í átt að þeim.“ Skipin lögðu af stað frá Shidaho í Rongcheng-héraði í Kína 22. mars og var siglt suður Gula haf og síðan í gegnum Singapúr-sund og Maccala- sund í átt til Srí Lanka. Magnús seg- ir að mikil umferð hafi verið alla leiðina og þá sérstaklega í Singapúr- sundi. Þar hafi verið óhemjufjöldi skipa, allt frá litlum ómerktum fiski- bátum að stórskipum. Mörg skip- anna sjáist ekki á korti (Marine- traffic) og meðal annars liggi mörg skip fyrir akkeri í sundinu. Mikil skriffinnska Magnús segir að skip og búnaður hafi reynst vel og mannskapurinn sé hress þó svo að hitinn sé óþægileg- ur. Hitinn hefur farið upp í 36-7 gráður og niður í rúmlega 30 gráður á nóttunni og sjávarhitinn er litlu lægri. „Í svona miklum hita hitnar stálið og það verður mikill hiti í skipinu sjálfu,“ segir Magnús. „Til marks um það er kalda vatnið hjá okkur um 35 gráða heitt og við fáum ekki kald- ara vatn í krönunum. Blásarar sem við settum upp fyrir heimsiglinguna hafa ekki dugað og eftir að fyrsti maður prófaði að sofa í lestinni hefur þeim fjölgað sem sofa þar og einnig leggja menn sig úti á dekki þegar gustur er.“ Magnús segir að ótrúlega mikil skriffinnska fylgi því að sigla með- fram mörgum löndum þar sem regluverk sé mismunandi. „Núna er ég að ganga frá tólf skjölum, sem við þurfum að afhenda í sambandi við komuna til Kólombó,“ segir Magnús. Þrír vopnaðir verðir um borð  Hætta á sjóránum undan ströndum Sómalíu  Öryggisverðir um borð í Breka VE og Páli Pálssyni ÍS á leið þeirra heim frá Kína  Mikill hiti og kalda vatnið er 35 gráður  Mikil skipaumferð alla leið Ljósmynd/Finnur Kristjánsson Við brottför frá Sidaho Tollvörður ber andlit Bergs Gunnarssonar, yfir- stýrimanns á Breka, saman við myndina af honum í vegabréfinu, í baksýn er Stefán Birgisson, 2. stýrimaður. Mikil skriffinnska hefur fylgt siglingunni. Vel þegin kæling Stefán Birgisson, 2. stýrimaður, og Magnús Ríkarðsson skipstjóri kæla sig í potti á dekkinu, en hitinn hefur farið í 37 gráður. Þeir félagarnir voru áður með Drangavíkina frá Vestmannaeyjum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.