Morgunblaðið - 06.04.2018, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018
✝ Bjarni Mar-teinsson fædd-
ist í Reykjavík 30.
desember 1942.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urnesja 20. mars
2018.
Foreldrar hans
voru hjónin Mar-
teinn Guðbjartur
Guðmundsson
myndhöggvari, f. í
Merkinesi í Hafnarhreppi 16.7.
1905, d. 23. júlí 1952, og Kristín
Karólína Bjarnadóttir, píanó-
kennari og bókavörður, f. í
Reykjavík 4. júlí 1907, d. 10.
september 1975.
Alsystkin Bjarna eru: Stein-
unn Sigríður, mynd- og leir-
listakona, f. 18. febrúar 1936,
Guðrún Ásta, f. 8. nóvember
1938, og Þóra, f. 18. maí 1946, d.
23. ágúst 1997.
Hálfsystir þeirra, samfeðra,
var Randý Arngríms, f. 14. des-
ember 1934, d. 1. maí 1990.
Árið 1965 kvæntist Bjarni
4) Þóra Björk, f. 10. september
1977, maki Finnur Tryggvi Sig-
urjónsson, f. 1975, börn þeirra
eru: a) Margrét Þóra, f. 2005, b)
María Björk, f. 2009, c) Bjarney
Líf, f. 2015.
Bjarni lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1962. Þaðan hélt hann í arkitekt-
anám í Norges Tekniske Hög-
skole í Þrándheimi og lauk því
árið 1966. Að loknu námi hóf
hann störf hjá Teiknistofu Gísla
Halldórssonar en árið 1983
stofnaði Bjarni sína eigin teikni-
stofu, Arkitektastofuna við Aust-
urvöll, og síðar Arkitektastofu
Suðurnesja. Tónlist var ætíð stór
partur af Bjarna og var hann
einn af stofnendum og formaður
Félags harmonikkuunnenda.
Hann kom einnig að stofnun Fé-
lagsheimilis íslenskra tón-
listarmanna og stjórnaði
harmonikkuþætti í útvarpinu
um árabil.
Á æskuárum sínum dvaldist
Bjarni á sumrin í Merkinesi í
Höfnum þar sem foreldrar hans
stunduðu rófnarækt. Síðustu ár-
in fluttu þau hjónin heimili sitt í
Merkinesið.
Útför Bjarna fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag,
6. apríl 2018, og hefst athöfnin
klukkan 13.
Guðborgu Krist-
jánsdóttur, f. 17.
mars 1942. For-
eldrar hennar voru
Kristján Sveinsson
augnlækir, f. 8.
febrúar 1900, d. 23.
maí 1985, og María
Þorleifsdóttir Tor-
lacius, f. 22. júlí
1912, d. 15. október
1965. Börn Bjarna
og Guðborgar eru:
1) María, f. 17. janúar 1967, maki
Sigurður Ingvarsson, f. 1967,
börn þeirra eru: a) Erla María, f.
1990, og b) Guðborg Nanna, f.
1995. 2) Kristján, f. 12. mars
1969, maki Ástrós Hjálmtýsdótt-
ir, f. 1974, börn þeirra eru: a)
Kristján Högni, f. 1992, b) Lena
Rut, f. 2001, c) Alexander, f.
1996, d) Birta Líf, f. 2000, e) Ísa-
bella, f. 2004, f) Hjálmtýr Daníel,
f. 2006. 3) Kristín, f. 3. júlí 1973,
maki Gísli Harðarson, f. 1977,
börn þeirra eru: a) Sunna Krist-
ín, f. 2003, b) Vilhjálmur Bjarni,
f. 2006, c) Fanndís Eva, f. 2011.
Elsku pabbi, það er komið að
kveðjustund. Sjúkdómurinn
hafði yfirhöndina að lokum en
allt þar til yfir lauk slóstu enn á
létta strengi og heillaðir hjúkk-
urnar eins og þér einum var lag-
ið. Þú tókst á við veikindin með
óbilandi æðruleysi, aldrei heyrð-
um við þig kvarta en nú ertu laus
undan kvölinni og stríði þínu lok-
ið. Við erum svo þakklát fyrir að
hafa fengið að vera öll hjá þér og
haldið í höndina á þér áður en þú
hvarfst á vit ævintýranna.
Fósturjörðin var pabba ofur-
kær og það var varla þúfa hér á
landi sem hann var ekki búinn að
lesa sér til um. Fátt var
skemmtilegra en ferðalögin sem
við fórum með pabba og mömmu
um fjöll og firnindi hvort sem við
vorum gangandi eða akandi.
Hann þekkti alla staðhætti,
kennileiti og bæi og var óþreyt-
andi að segja okkur frá hinu og
þessu.
Harmonikkan var yfirleitt
ekki langt frá og pabbi og
mamma spiluðu oft saman. Hún
á píanó og hann á nikkuna og
sungu hástöfum. Eitt sinn sat
pabbi á svölunum í Merkinesi í
blankalogni sem gerist nú ekki
oft suður með sjó. Árabátur var
við veiðar undan ströndinni og
kunni veiðimaðurinn vel að meta
nikkutónana sem bárust yfir
miðin. Gerði hann sér þá fyr-
irhöfn að sigla upp í fjöru og
skilja þar eftir góðan afla með
þakklæti fyrir tónleikana. Svona
viðskipti áttu vel við pabba.
Pabbi var mikill dýravinur.
Þegar við sem krakkar suðuðum
um kött og seinna hund var það
mamma sem við þurftum að
sannfæra. Pabbi var alltaf til
þótt hann þyrði ekki að segja
mömmu það. Á sama tíma höfð-
um við mýs, fugla, kött og hund.
Algjörlega banvæn blanda en
mamma gafst upp á suðinu í okk-
ur fjórum og pabba fannst þetta
bara fín hugmynd. Eftir að
mamma og pabbi fluttu á efri ár-
um í Merkinesið fundum við yf-
irgefinn hvolp í hrauninu.
Mamma var fljót að segja að
hann væri sko ekki kominn til að
vera. Nú er pabbi farinn og
hvolpurinn sem fékk nafnið
Seppi býr með mömmu.
Í Merkinesi fékkstu að vera
bóndinn sem blundaði alltaf í
þér. Minningin um þig í vinnnu-
gallanum, brúnn eins og kola-
moli með hamar og nagla í hönd
er ljóslifandi. Stundum var
kvartað yfir að við gætum aldrei
komið í „Nesið“ og slakað á.
Karlinn alltaf með einhver verk-
efni. Kominn á fætur á undan
öllum og byrjaður að smíða eða
slá. En þessi sælureitur væri
ekki til án þín. Við munum halda
áfram að varðveita hann. Þegar
við vorum börn útbjóst þú fyrir
okkur bú í fjörunni, ruddir til
steinum og lagðir vegi og við
söfnuðum leggjum í búið. Við
spiluðum fótbolta, minigolf, rið-
um út og ekki má gleyma
hænsnunum.
Eins spilakvöldin þar sem
vakað var fram á nótt, það var
frekar óþolandi þegar þú varst í
liði með tengdasonunum í Trivial
Pursuit og spurt var um landa-
fræði eða sögu. Alltaf vissir þú
svarið.
Þú áttir líka svo gott með að
setja saman sögur. Barnabörnin
þekkja sögurnar um Kalla
krabba, Kobba kuðung og auð-
vitað allar músasögurnar.
Elsku pabbi, nú ertu farinn
frá okkur en þó ekki langt.
Minning þín mun ætíð búa hjá
okkur og munum við varðveita
hana meðan við lifum.
Takk fyrir allt sem þú gafst
okkur, við hittumst aftur síðar.
Þín börn,
María, Kristín,
Kristján, Þóra.
Nú er tengdafaðir minn, arki-
tektinn og bóndinn í Merkinesi,
fallinn frá sem skilur eftir sig
stórt skarð í okkar stóru og glað-
væru fjölskyldu. Það er margs
að minnast þó að flest tengjum
við minningar við Merkinesið og
samveru okkar þar. Ég minnist
stóra og stæðilega arkitektsins á
stofunni sinni við Austurvöll þar
sem við María komum stundum
og fengum að nota tölvuna þar til
að klára verkefni í skólanum.
Nokkur ævintýri í eldhúsinu eru
eftirminnileg eins og kútmaga-
eldamennskan og sjófuglsveislan
á Öldugötunni og svo kræsing-
arnar sem hann bar á borð fyrir
mig þegar við vorum einir að
smíða í Merkinesi. Bjarni var
alltaf svolítið utan við sig og tók
ekki eftir því fyrr en í lok dags
að hann hefði gengið í buxum af
mér allan daginn, þótt við vær-
um ekkert svipaðir í vexti. Hann
var ekkert margmáll, en við átt-
um stundum spjall um eitthvað
sem skipti máli og mér þykir
vænt um þær stundir okkar og
það sem hann treysti mér fyrir.
Það var með eindæmum gaman
að ferðast með honum og í ferð-
inni okkar um Vestfirðina, þar
sem ég var við stýrið, gat ég
varla haggað gírstönginni því
slíkur var fjöldi bóka og landa-
korta á milli sætanna hjá okkur.
Bjarni var einstaklega laginn við
að hafa ofan af fyrir barnabörn-
unum sínum með sögum og lestri
og við munum flest eftir honum í
stól með barn í fanginu að segja
því sögu. Ég kveð með söknuði
góðan vin og tengdaföður.
Sigurður Ingvarsson.
Látinn er kær tengdafaðir
minn eftir erfiða en æðrulausa
baráttu við krabbamein sem
hafði því miður betur að lokum.
Það er alltaf erfitt að skilja við
sína nánustu og á slíkum stund-
um eins og nú er runnin upp
koma í huga minn fjölmörg
minningabrot um samverustund-
ir okkar í gegnum tíðina.
Bjarni var haldinn þeim góða
kosti að vera maður fram-
kvæmda og mikill dugnaðarfork-
ur. Ég get ekki varist að brosa
út í annað þegar ég hugsa til
þess þegar ákveðið var að fá
okkur hesta í Merkinesið. Kaffi-
spjall á laugardegi þar sem
Bjarni talar um að það væri nú
gaman að vera með hesta í nes-
inu, ég tek kotroskinn undir
enda nýbúinn að fara nokkrum
vikum áður í fyrsti skiptið á æv-
inni á hestbak. Strax eftir helgi
hringir Bjarni í mig og segir að
við séum að fara að skoða hesta
og áður en maður vissi þá voru
komnir nokkrir hestar í Merki-
nesið. Ég get talið upp fjölmörg
önnur sambærileg ævintýri sem
Bjarni lagði af stað í en það sem
stendur hvað helst upp úr hjá
mér eru allar gæðastundirnar.
Má þar nefna fjölskylduferðirn-
ar, skarfaveiðarnar, spilakvöldin
og auðvitað smíðarnar en því
miður fékk Bjarni þrjá tengda-
syni sem eru hver öðrum verri
með hamarinn og ekki er son-
urinn betri. Held ég þó að með
sanni megi segja að við í fjöl-
skyldunni höfum notið góðs af
smíðaleiðsögn Bjarna og muni sú
leiðsögn ávallt koma okkur að
notum í að viðhalda sælureit fjöl-
skyldunnar í Merkinesi.
Í einkalífinu varð honum
Bjarna mikil gæfa er hann
kynntist tengdamóður minni,
Guðborgu Kristjánsdóttur. Á
þessari stundu er mér minnis-
stæð sagan sem Guðborg sagði
okkur nóttina sem við vöktum
yfir Bjarna í hinsta sinn. Sagan
þegar Bjarni bauð Guðborgu
sinni á ball og mætti ekki. Skýr-
ingin reyndist vera sú að Bjarni
var að taka sig til fyrir ballið en
ákvað fyrst að reikna eitt reikn-
ingsdæmi áður. Þegar því verki
lauk var hann ekki viss hvort að
hann var að hátta sig eða taka
sig til fyrir ball svo að hann fór
bara að sofa. Þetta er lýsandi
dæmi hvernig Bjarni gat verið
utan við sig. Tengdamóðir mín
hún Guðborg reyndist tengda-
föður mínum mikil stoð og stytta
í hans lífshlaupi og þeim erfiðum
veikindum sem hann tókst á við.
Styrkur hennar hefur oft á tíðum
virst sem óþrjótandi og er ekki
ofsögum sagt að við sem stönd-
um þeim hvað næst höfum dáðst
að þessu fallega sambandi og
órjúfanlegu tengslum sem voru á
milli þeirra. Sama hvað bjátaði á.
Bjarni var gæddur ákaflega
góðum mannkostum og fór aldr-
ei í manngreinarálit. Bjarni flík-
aði ekki oft tilfinningum sínum
en þeir sem þekktu hann vissu
best hvern mann hann hafði að
geyma enda var hann vinur vina
sinna. Ég sjálfur kýs að minnast
Bjarna eins og hann var áður en
veikindin fór að herja á hann,
enda á ég honum margt að
þakka fyrir alla hans leiðsögn í
gegnum tíðina. Mér þótti afskap-
lega vænt um þennan góða og
einstaka mann og vil nú að leið-
arlokum þakka honum fyrir alla
þá vináttu í minn garð svo og allt
það traust sem hann ávallt sýndi
mér. Bjarna tengdaföður kveð
ég nú að sinni og bið honum
góðrar heimkomu. Hvíli hann í
friði og hafi þökk fyrir allt og
allt.
Finnur Tryggvi
Sigurjónsson.
Elsku tengdapabbi.
Kynni okkar hófust í takt við
annað í þínu lífi, mér var tekið
opnum örmum og var strax vel-
komin að borði í Merkinesi, bæði
hjá þér og tengdamömmu. Mér
leið sem ég og börnin mín vær-
um fullgildir fjölskyldumeðlimir
með undraskjótum hætti fyrir
tæpum átta árum.
Bjarna leið, að ég held, aldrei
betur en þegar búið var að
stækka borðstofuborðið og við
það sátu allir þeir sem honum
þótti vænst um, fjölskylda hans.
Hann naut þess að hafa fjöl-
skylduna í kringum sig og hvað
hann hafði gaman af því að segja
sögur. Einstakur og skemmtileg-
ur frásagnarstíll Bjarna gleymist
mér aldrei. Við, Diddi ásamt
börnum okkar, áttum margar
yndislegar stundir með þér og
tengdamömmu sem eru dýrmæt-
ar minningar sem við munum
ávallt varðveita.
Það er mér ofarlega í huga á
einni stærstu gleðistundu í lífi
mínu, brúðkaupi mínu og Didda
sem var á yndislegum degi á
gamlársdag í Kirkjuvogskirkju
og í Merkinesi fyrir 15 mánuð-
um. Ég man líka hvað þú varst
stoltur að heyra að við ætluðum
að gifta okkur í litlu fallegu
kirkjunni og halda veisluna í
Merkinesinu þínu. Við erum svo
innilega þakklát fyrir hafa haft
þig með okkur á þessum mik-
ilvæga degi í lífi okkar.
Í ræðu þinni í brúðkaupinu
okkar minntist þú á okkar fræga
kanaspil sem var spilað með
tengdamömmu og Didda í
Merkinesinu í einni af okkar
fyrstu samverustundum. Ég var
ekki búin að spil a kana frá því
ég var lítil stelpa í Ólafsvík og
varð ég að rifja upp reglurnar.
Eitthvað voru þær reglur ryðg-
aðar, því spilið gekk ekki nógu
vel þegar við Diddi spiluðum
saman og var hann alls ekki sátt-
ur við sína stelpu að ná ekki
kana og skammaði mig því fyrir
fram ykkur. Ég var auðvitað
ekki sátt við að hann væri að lesa
yfir mér fyrir framan ykkur og
þá sérstaklega við fyrstu kynni
en þorði samt ekkert að segja á
móti við hann. Strax á eftir þá
fékk ég þig sem félaga og gekk
það spil svo glimrandi vel að við
fengum kana, það var ekkert
vandamál þá og sagðir þú að ég
spilaði eins og engill. Diddi var
alls ekki ánægður með þetta og
hélt áfram að skamma mig en
vissi hins vegar að ég var ekki
sátt við minn dreng og átti hann
eftir að fá skammirnar þegar
farið var að sofa. Diddi fékk því
ekkert að kúra hjá stelpunni
sinni þá nóttina, var hann
skammaður eins og lítill drengur
þegar komið var inn í herbergi
og var hann ekki tekinn í sátt
fyrr en um miðjan næsta dag.
Við ætluðum alltaf að spila kana
eftir þetta og eins og kom fram
hjá þér í brúðkaupinu okkar,
ekki vorum við búin að ná að
spila kana og náðist það heldur
ekki áður en þú kvaddir okkur.
Kanaspilið verður því að bíða þar
til við hittumst næst, elsku
Bjarni minn.
Góður, fallegur, örlátur, auð-
mjúkur, jákvæður og hlýr. Þetta
eru allt orð sem koma upp í hug-
ann þegar ég minnist þín, elsku
hjartans tengdapabbi. Takk fyrir
að gefa mér og treysta mér fyrir
einni af þínum allra dýrmætustu
eignum, honum Didda þínum.
Minning þín lifir í hjarta okkar
og barnabörnin þín fá svo sann-
arlega að vita hvernig pabbi og
afi þú varst.
Þín tengdadóttir,
Ástrós.
Við systurnar munum Bjarna
bróður okkar sem einstaklega
fallegt barn sem var yndi og eft-
irlæti móður okkar og fóstru
okkar, Þóru. Hann ólst upp einn
karlmanna á sex manna heimili
því faðir okkar lést ungur. Svo
var hann fyrr en varði orðinn
myndarlegasti maður sem stúlk-
ur renndu til hýru auga. En þeg-
ar í menntaskóla kynntist hann
Guðborgu Kristjánsdóttur og
það varð mesta gæfa lífs hans.
Þau giftu sig árið 1965 og við
höfðum aldrei séð glæsilegri né
hamingjusamari brúðhjón. Þau
eignuðust fjögur börn, tengda-
börn koma til sögu og mannvæn-
legum og samheldnum afkom-
endum fjölgar óðum.
Í barnæsku okkar og lengst af
síðar áttum við okkar sumarpa-
radís í Merkinesi í Höfnum og
Bjarni tengdist þeim stað og því
merka fólki sem þar bjó sterkum
böndum. Síðustu árin hefur
Bjarni alfarið búið þar með Guð-
borgu sinni, byggt upp gömul
hús og dyttað að staðnum þrátt
fyrir erfið veikindi. Þar var gott
að koma og gista. Og við systur
minnumst með gleði árlegra
heimsókna upp í Borgarfjörð til
Ástu í sumarbústað hennar.
Bjarni sat við stýri, við ókum vítt
um byggðir og nutum þess að
færi Bjarni í ferðalag vandaði
hann vel til verka, las sér til um
sögu og mannlíf hvers svæðis og
var hinn besti fararstjóri.
Bróðir okkar var listhneigður
maður. Arkitekt að mennt og
lífsstarfi og fékkst einnig við
myndlist og tónlist og greip oft
til píanós eða harmonikku í
góðra vina hópi. Bjarni var ekki
maður margra orða en það var
vel hlustað tæki hann til máls því
kímnigáfa hans var einstök.
Hvunndagslegir hlutir og atvik í
lífi vina hans og hans sjálfs urðu
honum rík uppspretta gaman-
sagna sem bötnuðu við hverja
endurtekningu og voru um leið
blessunarlega lausar við ill-
kvittni. Oft var hlátur nývakinn í
hans návist – og við gamansem-
ina bættist sú hlýja sem ein-
kenndi bróður okkar. Enda löð-
uðust að honum börn og dýr.
Bjarni hafði reyndar einstakt lag
á því að umgangast börn, gaman
að vera krakki sem Bjarni tók í
fang sér og glettist við, las sögur
og heillaði með frumsömdum
ævintýrum.
Áföll og erfiðleikar sniðgengu
ekki þau Bjarna og Guðborgu
fremur en svo marga aðra, en
hjónaband þeirra hefur aldrei
haggast við þau boðaföll og alltaf
hefur Guðborg staðið sem klett-
ur við hlið hans. Ekki síst í
löngum og erfiðum veikindum
undanfarin misseri. Sem Bjarni
tókst á við með hugprýði og
gamanyrðum á vör allt til síðasta
dags.
Nú hefur Bjarni kvatt okkur
og heimurinn verður aldrei sam-
ur aftur. En góðar minningar
ylja okkur og sú vissa að í bana-
legunni naut Bjarni allrar þeirr-
ar umhyggju og kærleika sem
hægt er að veita. Ef guð er kær-
leikur var hann nálægt Bjarna í
hans síðasta stríði og mun fylgja
honum áfram. Megi allar góðar
vættir blessa Guðborgu og börn-
in.
Ásta og Steinunn.
Bjarni
Marteinsson
Fleiri minningargreinar
um Bjarna Marteinsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Yndislegi sonur, faðir og bróðir,
BREKI JOHNSEN,
Höfðabóli,
Vestmannaeyjum,
er látinn.
Útför verður frá Landakirkju laugardaginn
7. apríl klukkan 14.
Blóm og kransar afþökkuð en bent á Samhjálp fyrir þá sem vilja
minnast hins látna.
Halldóra Filipusdóttir, Árni Johnsen
Eldar Máni Brekason
Helga Brá Árnadóttir
Þórunn Dögg Árnadóttir
Elsku maðurinn minn, pabbi okkar, sonur,
bróðir, tengdasonur, mágur og barnabarn,
ÁGÚST ÁSGEIRSSON,
Kirkjubæjarbraut 9,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 6. apríl klukkan 15.
Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vildu minnast hans er
bent á styrktarreikning fyrir konu hans og börn.
Nr. 140-26-16037, kt. 160379-3599.
Katrín Sólveig Sigmarsdóttir
Eydís Líf Sigurður Elí
Tristan Flóki Viktor Kári
Hafdís María Darri Hrafn
María Bjarnadóttir Gunnar Marteinsson
Ásgeir Þór Árnason Karlotta J. Finnsdóttir
Hafdís Hlöðversdóttir Sigmar Teitsson
Ásgeir Bjarni Ásgeirsson
Hanna Bryndís Heimisdóttir
Helga Rún Heimisdóttir Árni Brynjar Dagsson
Elísabet Ósk Ásgeirsdóttir Hrafn Viðarsson
Guðný Sæbjörg Ásgeirsd. Ómar Sigurðsson
Ásdís Ásgeirsdóttir
Afi Bjarni
Amma Dísa
og aðrir aðstandendur