Morgunblaðið - 06.04.2018, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Skinneyjar - Þinganess hf.
Aðalfundur Skinneyjar - Þinganess hf. fyrir
árið 2018 verður haldinn á skrifstofu
félagsins að Krossey, Hornafirði, föstudaginn
20. apríl 2018 og hefst hann stundvíslega
kl. 13.30.
Á dagskrá fundarins verða:
1.Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 14.
grein í samþykktum félagsins.
2.Önnur mál, löglega fram borin.
Framboðum til stjórnar skal skila til félagsins
eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfundinn
með þeim upplýsingum sem fram koma í
2. mgr. 63. gr. a í lögum um hlutafélög.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur
fundargögn verða afhent á fundarstað.
Hluthafar eru hvattir til að mæta tímanlega
til að taka við fundargögnum.
Hornafirði, 5. apríl 2018,
stjórn Skinneyjar - Þinganess hf.
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Birkihlíð 6, Hafnarfjörður, fnr. 221-7233, þingl. eig. Kristín Jóhanna
Ágústsdóttir, gerðarbeiðendur Birkihlíð 6,húsfélag og Íbúðalána-
sjóður, þriðjudaginn 10. apríl nk. kl. 10.
Þrastarás 46, Hafnarfjörður, 50% ehl., fnr. 225-0908, þingl. eig.
Kristófer Jóhannesson, gerðarbeiðandi Jötunn vélar ehf., þriðju-
daginn 10. apríl nk. kl. 11:00.
Kvistavellir 44, Hafnarfjörður, 50% ehl., fnr. 230-3379, þingl. eig. Jan
Andrzej Morsztyn, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn
10. apríl nk. kl. 11:30.
Suðurvangur 8, Hafnarfjörður, fnr. 207-9965, þingl. eig. Anna Maria
Kowalska og Jens Maríus Lúðvíksson, gerðarbeiðendur Suður-
vangur 8, húsfélag, Valitor hf. og Suðurvangur 8-14, húsfélag,
þriðjudaginn 10. apríl nk. kl. 14:00.
Lynghvammur 3, Hafnarfjörður, fnr. 207-7498, þingl. eig. Þröstur
Ólafsson, gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 10. apríl
nk. kl. 14:30.
Suðurhvammur 7, Hafnarfjörður, fnr. 207-9886 , þingl. eig. Heiðar
Ingi Kolbeinsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
þriðjudaginn 10. apríl nk. kl. 15:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
5. apríl 2018
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir
Miðfjarðarnes 3, Langanesbyggð, fnr. 156369, þingl. eig. Krzysztof
Krawczyk og Sigríður Ósk Indriðadóttir, gerðarbeiðendur Lands-
bankinn hf. og Byggðastofnun og Vátryggingafélag Íslands hf.,
miðvikudaginn 11. apríl nk. kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
5. apríl 2018
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Athugun Skipulagsstofnunar
Framleiðsla á 4.000 tonnum af laxi í
kynslóðaskiptu eldi í Arnarfirði
Arctic Sea Farm hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frum-
matsskýrslu um framleiðslu á 4.000 tonnum af laxi í kynslóðaskiptu eldi í
Arnarfirði.
Kynning á frummatsskýrslu:Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar
frá 9. apríl 2018 - 22. maí 2018 á eftirtöldum stöðum: Í Safnahúsinu á
Ísafirði, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagstofnun. Frummatsskýrslan
er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar www.skipulag.is.
Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt
fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi
síðar en 22. maí 2018 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105
Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9 og bingóið vinsæla kl. 13.30,
verið velkomin!
Árskógar Smíðastofan er lokuð. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn
kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur
kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir.
S. 535-2700.
Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9.10. Vöflukaffi kl. 13.30. Línudans fyrir byrj-
endur og lengra komna kl. 15.15.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Heimsókn frá ungl-
ingum í Háteigsskóla kl. 10-11. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Kvikmynda-
sýning kl. 13. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Furugerði 1 Vinnustofa og útskurður allan daginn. Framhalds-
sögulestur kl. 10 og sitjandi leikfimi kl. 11. Klukkan 13 er spiluð vist
og/eða brids og farið í göngu. Botsía er á sínum stað kl. 14.
Garðabær Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jóns-
húsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30, og frá
Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist ef óskað er.
Smiðjan í Kirkjuhvoli er opin kl. 13–16. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
13 tréskurður, kl. 13 léttgönguhópur (frjáls mæting). Við minnum á
opinn fund öldungaráðs og FEBK á morgun, laugardag. 7. apríl kl. 14.
Gullsmári FEBK Dansleikur í Gullsmára föstudaginn 6. apríl kl. 20-23
Hilmar og Kristján leika fyrir dansi. Miðaverð 1500 kr.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl.
9. Opin handavinna kl. 9–12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og
nýliðar velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15. Kaffi
kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, jóga kl. 10 hjá Carynu, hádgismatur kl. 11.30. Spilað brids kl. 13,
bíódagur kl. 13.30, kaffisala í hléi. Fótaaðgerðir 588-2320, hársnyrting
517-3005.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, thai chi kl. 9, botsía kl.10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá kl.
9-16, zumba dans leikfimi kl. 13, síðdegiskaffi kl. 14-15.30, Hæðar-
garðs bíó kl. 14.30, allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í
Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga í Borgum kl. 9, bridshópur kl. 12.30
í Borgum, hin vinsæli hannyrðahópur kl. 12.30 í Borgum. Tréútskurður
á Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag og sundleikfimi í Grafarvogssundlaug
kl. 15.00 í dag. Vöfflukaffi í Borgum kl. 14.30 til 15.30.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-14. Upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi og gaman að koma í spjall og kíkja í blöðin. Ganga
kl. 10. Hádegisverður kl. 11.30-12.15. Framhaldssaga kl. 13. Allir eru
hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari uppl. hjá Maríu í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Syngjum saman á
Skólabraut kl. 13. Spilað í króknum á Skólabraut og í Eiðismýri kl.
13.30. Jóga fellur niður í dag. Nk. mánudag 9. apríl kl. 13 ætlum við
að fjölmenna í salnum á Skólabraut og styrkja Kraft, stuðningsfélag
krabbameinssjúkra ungmenna og aðstandenda þeirra. Við perlum
saman armböndin LÍFIÐ ER NÚNA. Fólk hvatt til að fjölmenna.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansleikur sunnudagskvöld
kl. 20, Hljómsveit hússins leikur, allir velkomnir.
Vesturgata 7 Enska, leiðbeinandi frá kl. 10-12 Peter R. K. Vosicky.
Sungið við flygilinn kl. 13-14, Gylfi Gunnarsson. Kaffiveitingar kl. 14-
14.30.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
HITAVEITU-
SKELJAR
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKA 1
SÍMI 777 2000
Húsviðhald
Smá- og raðauglýsingar
með
morgun-
✝ Guðný AldaEinarsdóttir
fæddist í Reykjavík
20. ágúst 1953. Hún
lést í Sjálfsbjargar-
heimilinu í Hátúni
12 hinn 7. mars
2018.
Foreldrar Guð-
nýjar Öldu voru
hjónin Einar Bjarni
Sturluson, skipa-
smíðameistari og
bóndi, frá Hreggstöðum á
Barðaströnd, f. 22.1. 1919, d.
25.2. 2008, og Kristín Andrés-
dóttir húsfreyja, frá Hamri í
Múlasveit, f. 11.5. 1924, d. 27.10.
2013. Systkini Guðnýjar Öldu
eru: María Henley, f. 1944; Gísli
Már, f. 1951, d. 1970; Valgerður
Björk, f. 1952, d. 2015; Þórdís
Heiða, f. 1955; Sturla, f. 1957;
Andrés Einar, f. 1960; Guðrún
Björg, f. 1966.
Guðný Alda var fjórða í röð-
inni í stórum systkinahópi. Fjöl-
skyldan bjó í Hafnarfirði fyrstu
fjögur árin hennar en þá var
flutt að æskuheimili föður henn-
ar, Hreggstöðum á Barðaströnd,
þar sem þau bjuggu næstu níu
árin. Árið 1966 flutti fjölskyldan
síðan á Akranes þar
sem Guðný Alda
lauk skólaskyldu.
Seinna fór hún í
húsmæðraskólann á
Staðarfelli.
Guðný Alda
fæddist með afar
sjaldgæfan tauga-
lömunarsjúkdóm
sem fólst í röngum
taugaboðum. Sjúk-
dómurinn háði
henni alla tíð og fór sífellt versn-
andi. Hún bjó til langs tíma í
Sjálfsbjörg þar sem hún naut fé-
lagsskapar og umönnunar þegar
hún þurfti þess með. Hún vann af
og til í Múlalundi í gegnum árin.
Einnig lék hún í mörg ár með
Halaleikhópnum á meðan heils-
an leyfði.
Guðný Alda giftist Ingimundi
Brynjólfssyni, f. 9.5. 1920, d. 4.1.
1988, á gamlársdag árið 1987 en
hann lét lífið í bílslysi á leið til
vinnu að morgni 4. janúar 1988,
einungis fjórum dögum síðar.
Útför Guðnýjar Öldu fer fram
frá Digraneskirkju í dag, 6. apríl
2018, klukkan 11. Jarðsett verð-
ur í Þingeyrarkirkjugarði
sunnudaginn 8. apríl klukkan 11.
Elsku Guðný Alda (Dinda
frænka).
Okkur langar að kveðja þig
með nokkrum orðum og þakka
þér fyrir öll sumrin sem þú pass-
aðir okkur systkinin, sem þú gerð-
ir ansi vel og af natni. Ég veit að
þú varst ekki alltaf ánægð með
hegðun okkar og stríðni en ég
vona að þú hafir verið búin að
fyrirgefa okkur það, það eru ófáar
minningar sem koma upp í hug-
ann þegar við reikum aftur í tím-
ann og hugsum til sumranna í
Neskaupstað og Ólafsvík, sem þú
ert stór hluti af, við geymum þær í
hjarta okkar.
Takk fyrir allt, elsku frænka,
mamma, amma og afi sem og aðrir
góðir ættingjar taka örugglega vel
á móti þér. Hvíldu í friði.
Þín systrabörn,
Helga Björk og
Ágúst Freyr.
Guðný Alda móðursystir mín
var afar sérstök manneskja. Hún
fæddist með mjög sjaldgæfan
taugasjúkdóm sem ekki var
greindur fyrr en á fullorðinsárum.
Sjúkdómurinn er sjaldgæfur á
heimsvísu og Guðný Alda er sú
eina sem hefur greinst með þetta
hér á landi. Uppvöxtur hennar og
ævi litaðist því mjög af læknis-
heimsóknum og sjúkralegum, þar
sem læknar stóðu ráðþrota
frammi fyrir þessari ráðgátu.
Þessi undarlegi sjúkdómur fékk
að lokum nafn en því miður var
ekki til nein lækning.
Guðný Alda var skarpgreind,
ákaflega minnug og vel lesin. Hún
átti alveg hreint ótrúlegt bókasafn
því hún hafði mikla ánægju af að
safna bókum. Margar las hún en
aðrar átti hún eftir að lesa. Hún
átti til dæmis Læknatalið í nokkr-
um bindum sem hún hafði lesið
aftur á bak og áfram og mundi það
algjörlega utan að. Hún var einnig
mjög ættfróð og hafði mikla
ánægju af allri ættfræði. Hún var
afar minnug á afmælisdaga og
mundi jafnan hvenær fólk átti af-
mæli ef hún hafði einu sinni heyrt
það.
Hún hafði mjög gaman af ljóð-
um og kveðskap og hlaut við eitt-
hvert tækifæri titilinn „Skáld
hússins“. Hún hefur verið vel að
því komin. Hún hafði líka alveg of-
boðslega fallega, sérstaka og mjög
ákveðna rithönd sem þekktist allt-
af úr. Og hún vildi helst bara
skrifa með gamaldags blekpenna.
Guðný Alda bjó hjá okkur í
nokkur ár þegar ég var stelpa og
fékk þá sess í lífi mínu sem nokk-
urs konar stóra systir, en hún var
14 árum eldri. Ég var skírð á 14
ára afmælinu hennar og hún sagði
mér oft að það hefði henni þótt
mjög mikill heiður. Þannig að við
áttum daginn hennar dálítið
saman.
Hún var ákaflega dugleg þrátt
fyrir sinn mikla sjúkdóm. Hún var
til dæmis mjög afkastamikil
prjónakona á meðan heilsan leyfði
og liggja eftir hana ófáir ullar-
sokkarnir, jafnvel hnéháir og fast
prjónaðir, því hún vildi hafa allt al-
mennilegt. Hún gerði allt vel sem
hún gerði, bjó til mjög góðan mat
og var alltaf höfðingi heim að
sækja. Hún lagði líka mikið upp úr
að hafa hluti vandaða og ekta,
hvort sem það voru pottar eða
perlufestar. Hún þekkti gæði, hún
frænka mín.
Það urðu kaflaskil í lífi Guðnýj-
ar Öldu þegar hún varð meðlimur
í Halaleikhópnum. Með honum
átti hún ógleymanlegar stundir og
skapaði óborganlega karaktera.
Hún blómstraði alveg á sviðinu,
leiklistin átti greinilega mjög vel
við hana og veitti henni mikla
ánægju.
Guðný Alda kynntist ástinni í
örstuttan tíma og hún kynntist
sorginni jafnsnögglega. Hún gift-
ist Inga sínum á gamlársdag 1987
og átti með honum örfáa hveiti-
brauðsdaga áður en hann fórst í
bílslysi á leið til vinnu á fyrsta
vinnudegi nýs árs. Það eru undar-
leg örlög sem leggja svona sorgir
á fólk.
Elsku Dinda mín er horfin á
braut og þrautagöngu hennar í líf-
inu er nú lokið. Eftir standa minn-
ingar um sterka og duglega konu
sem átti sínar sorgir og sína sigra í
lífinu sem ekki reyndist henni
ávallt dans á rósum. Guð geymi
þig, elsku Dinda mín.
Kristín Vilhjálmsdóttir.
Guðný Alda
Einarsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar