Morgunblaðið - 06.04.2018, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Stærð 232 cm verð 299.000 kr.
Stærð 202 cm verð 275.000 kr.
Stærð 172 cm verð 235.000 kr.
Bogi Ágústsson fæddist í Reykjavík og ólst þar upp, lauk stúd-entsprófi frá MR, stundaði nám í sagnfræði við HÍ, hefur starf-að við Ríkissjónvarpið í næstum 40 ár og verið þar fréttastjóri
í 30 ár.
Það er stundum sagt að það sé hollt fyrir ungt fólk að byrja sinn
starfsferil á fjölmiðlum en erfitt að eldast á fjölmiðlum. Er það rétt?
„Ég tek undir fyrri fullyrðinguna en ekki þá síðari. Góðir fjölmiðlar
eru prýðilegur skóli fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á samfélaginu.
En fjölmiðlar eru einnig góður og stöðugur skóli fyrir okkur hin sem
eldri erum – og alls ekki erfiður, hafi maður á annað borð lifandi
áhuga á samfélaginu og veröldinni.
Ég neita því samt ekki að ég verð stundum hissa þegar ungt fjöl-
miðlafólk hefur ekki hugmynd um hverjir þeir voru, þeir Gylfi Þ.
Gíslason, Geir Hallgrímsson eða Ólafur Jóhannesson.“
Þú ert KR-ingur af guðs náð og heldur með Tottenham, og þegar
ég kynntist þér fyrir 60 árum áttirðu heima fyrir vestan læk, eða bak
við Iðnaðarbankann, sem þá var verið að byggja en nú er búið að rífa.
Hefurðu alltaf búið fyrir vestan Læk?
Við bjuggum fyrst við Kleifarveg en það var nánast fyrir mitt
minni. Síðan hef ég verið fyrir vestan Læk og jafnvel lengst af á Sel-
tjarnarnesinu. En nú er ég aftur kominn í Vesturbæinn og meira að
segja í göngufæri við KR-völlinn. Ég er því jafnframt í sjöunda
himni!“
Morgunblaðið/RAX
KR og Tottenham Afmælisbarnið með tvo Tottenham-dýrgripi.
Í göngufæri við KR
og í sjöunda himni
Bogi Ágústsson fréttastjóri er 66 ára
H
elgi Kristjánsson
fæddist í Ólafsvík 6.4.
1958 og ólst þar upp:
„Það var enginn svik-
inn af því að alast upp
í Ólafsvík á mínum ungdómsárum.
Þarna var fjöldi krakka og við strák-
arnir gengum mikið á fjöll í nágrenn-
inu og þvældumst um fjöruna í leit að
forvitnilegum reka. Við vorum hins
vegar ekkert mikið á bryggjunni
enda reknir þaðan af körlunum.
Á þessum árum voru víða kinda-
kofar inni í bænum sem nú eru horfn-
ir þaðan. Það þótti líklega ekki prýði
að þeim en þeir voru samt óneitan-
lega sjarmerandi hluti af þorpinu.
Íþróttaaðstaðan hjá okkur krökk-
unum þætti ekki beysin í dag, knatt-
spyrnuvöllurinn malarvöllur og ekk-
ert alvöru félagsheimili hjá
íþróttafélaginu. En þetta þótti okkur
krökkunum sjálfsagt.“
Helgi lauk verslunarprófi frá
Verslunarskóla Íslands vorið 1979.
Helgi byrjaði snemma að stunda
sjóinn á bátum frá Ólafsvík og var til
sjós með hléum til 1990 er hann flutti
til Reykjavíkur.
Auk sjómennskunnar hefur Helgi
starfað við ýmislegt annað í gegnum
tíðina. Hann vann m.a. á skrifstofu
Ólafsvíkurkaupstaðar, hjá Búnaðar-
banka Íslands, Landsbanka Íslands,
Heildverslun Alberts Guðmunds-
sonar og Atlas ehf.
Helgi varð framkvæmdastjóri
knattspyrnudeildar Vals 1992 og
starfaði þar í fjögur og hálft ár. Hann
var síðan bókari hjá Glugga- og hurð-
Helgi Kristjánsson, fjármálastjóri hjá Stokkhyl – 60 ára
Kíkt á forsetann Helgi og Oddný Björg með dóttur sinni, Helgu Björg, fyrir framan Hvíta húsið.
Ólsari og Valsari
Ólsarinn Helgi á vellinum í Ólafsvík en hann styður Val og Víking Ó.
Gullbrúðkaup eiga í dag Inga Birna Sigursteinsdóttir og Leifur Gunnarsson. Þau
voru gefin saman í Landakirkju í Vestmannaeyjum 6. apríl 1968 af séra Jóhanni
Hlíðar. Þá voru einnig tvíburarnir, Gunnar og Sigursteinn, skírðir Þau eiga tvo
syni, fimm barnabörn og eitt barnabarnabarn á leiðinni.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is