Morgunblaðið - 06.04.2018, Qupperneq 35
asmiðju SB, Hafnarfirði, þar til hann
og Jóhannes, bróðir hans, stofnuðu
Fiskverkunina Björg ehf. í Hafn-
arfirði í mars 1998 og ráku þeir hana í
18 ár eða þar til þeir ákváðu að hætta
rekstri og snúa sér að öðru. Í dag er
Helgi fjármálastjóri hjá fiskvinnslu-
fyrirtækinu Stokkhyl ehf.
Helgi hefur starfað mikið í félags-
málum. Hann var einn af stofn-
félögum Golfklúbbsins Jökuls í Ólafs-
vík og var gjaldkeri klúbbsins í tvö ár.
Hann var formaður Ungmenna-
félagsins Víkings í Ólafsvík í tvö ár,
sat í eitt ár í stjórn knattspyrnu-
deildar Vals og var varamaður fyrir
Val í stjórn Knattspyrnuráðs Reykja-
víkur í eitt ár. Helgi var leikmaður
með knattspyrnuliði Víkings Ó. frá
1975-90. Þá var hann knatt-
spyrnudómari á árunum 1979-2006.
Helgi hefur bæði verið sæmdur
gullmerki Víkings Ólafsvík og silfur-
merki Vals. En síðast en ekki síst hef-
ur Helgi farið holu í höggi í golfi!
Fjölskylda
Eiginkona Helga er Oddný Björg
Halldórsdóttir, f. 11.4. 1956, ferða-
fræðingur. Hún er dóttir Halldórs
Indriðasonar, f. 29.11. 1933, d. 18.3.
1980, múrarameistara í Reykjavík, og
Sigrúnar Stefánsdóttur, f. 11.8. 1930,
d. 26.12. 2013, húsmóður.
Dóttir Helga og Oddnýjar er Helga
Björg, f. 13.8. 2000, nemi við Versl-
unarskóla Íslands.
Dóttir Oddnýjar er Birgitta
Bjarnadóttir, f. 24.11. 1979, rekstr-
arstjóri markaðssviðs hjá Ölgerð Eg-
ils Skallagrímssonar, gift Högna
Baldvin Jónssyni, flugstjóra hjá Ice-
landair, og eiga þau þrjá syni, tví-
burana Baldvin Þór og Jón Odd, f.
2008 og Vilberg Kára, f. 2015.
Systkini Helga eru Jóhannes Krist-
jánsson, f. 18.9. 1959, skipstjóri og
stýrimaður hjá Eldingu, og á hann
þrjú börn, Andra, Olgu Kristínu og
Martein; Lára Kristjánsdóttir, f. 9.2.
1961, sagnfræðinemi í HÍ og hús-
móðir í Reykjavík, gift Þorsteini Ólafs
viðskiptafræðingi og eru börn þeirra
Þór Steinar, Björg Magnea og Krist-
ján Már, og Olga Kristjánsdóttir, f.
19.1. 1963, gift Torfa Sigurðssyni og
reka þau fiskbúð og ferðaþjónustu á
Hellu og eru börn þeirra Hugrún,
Tinna, Telma og Sandra Ýr.
Foreldrar Helga: Kristján Helga-
son, f. 15.9. 1934, fyrrv. stýrimaður og
hafnarvörður, og Björg Lára Jóns-
dóttir, f. 13.3. 1935, húsmóðir. Þau eru
búsett í Ólafsvík.
Helgi er að heiman á afmælisdag-
inn.
Helgi Kristjánsson
Helgi Guðmundsson
sjóm. í Ólafsvík
Jón Thorberg Jóhannesson
sjóm. í Ólafsvík
Björg Lára Jónsdóttir
fv. leiðbeinandi og
afgreiðslukona í Ólafsvík
Solveig Einarsdóttir
húsfr. í Hrísum og
veitingakona
Jóhannes Ögmundsson
b. í Hrísum
Gylfi Magnússon verkstj.
í Ólafsvík og í Hafnarfirði
Magnús Gylfason
knattspyrnuþjálfari
og framkvstj.
Magnús Kristjánsson
fiskverkandi í Ólafsvík
Trausti Jóhannesson
táknmálsfréttaþulur
á RÚV
Jóhannes Helgason
rafeindavirki í
Keflavík og í Rvík.
ón Helgason vélstj.
á Skagaströnd og
í Rvík
JGuðmundur Jónsson
gítarleikari í Sálinni
hans Jóns míns
Reinharð V. Reinharðsson
form. Karatesambands
Íslands
Helga Margrét
Reinharðsdóttir starfsm.
við Þjóðskjalasafnið
Kristín Helgadóttir
lengst af
skrifstofum. hjá
Raunvísinda-
stofnun HÍ
Sigurrós Benónýsdóttir
húsfr. í Ólafsvík
Unnur Jóna
Ágústsdóttir
húsfr. í
Ólafsvík
Ólafur Rögnvaldsson
framkvstj.
Hraðfrystihúss
Hellissands
Lilja BenónýsdóttirÁgúst Ólafssonb. í Mávahlíð
igurrós Sigurðardóttir
félagsráðgjafi í Rvík
SGuðmundur Þorbjörnssonverkfr. og knattspyrnum.
með Val og landsliðinu
Kristjana Sigurást
Helgadóttir húsfr. í Rvík
Hallveig Kristólína Jónsdóttir
ljósmóðir í Ólafsvík
Sveinbjörg Pétursdóttir
húsfr. á Búðum
Jón Helgason
sjóm. á Búðum
á Snæfellsnesi
Petrína Kristín Jónsdóttir
húsfr. frá Hellnum á Snæfellsnesi
Helgi Kristjánsson
vélstj. og kennari á mótornámskeiðum í Ólafsvík
Helga Ingibjörg Helgadóttir
húsfr. í Ólafsvík
Helga
uðmunds-
óttir húsfr.
Garðabæ
G
d
í
Logi Ólafsson
knattspyrnu-
þjálfari
Guðmundur Jóhannes
Guðmundsson bifreiðastj.
hjá Landleiðum og
lagerm. Í Rvík
Oddný Kristjánsdóttir
húsfr. í Straum-
fjarðartungu
Kristján Kristjánsson
bátasmiður í Ólafsvík
Úr frændgarði Helga Kristjánssonar
Kristján Helgason
fv. stýrim. og hafnarvörður í Ólafsvík
Helga
Rósa
ngvars-
dóttir
húsfr. í
Ólafsvík
I
Anna
Elísabet
Olivers-
dóttir
húsfr. í
Ólafsvík
Vífill
Karlsson
hagfræð-
ingur í
Borgar-
nesi
Ingveldur Lárensína Guðný Helgadóttir
verkakona í Ólafsvík
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2018
Halldór Þorbjörnsson fæddistí Neðra-Nesi í Stafholt-stungum í Mýrasýslu 6.4.
1921. Foreldrar hans voru Þorbjörn
Sigurðsson, bóndi í Neðra-Nesi, og
k.h., Þórdís Halldórsdóttir, hús-
freyja þar.
Þorbjörn var sonur Sigurðar Þor-
steinssonar, bónda á Dýrastöðum í
Norðurárdal og á Höll í Þverárhlíð,
og k.h., Þórdísar Þorbjarnardóttur
húsfreyju, en Þórdís var dóttir Hall-
dórs Jónssonar, bónda á Brúar-
reykjum í Stafholtstungum, og k.h.,
Sigríðar Bjarnadóttur húsfreyju.
Eftirlifandi eiginkona Halldórs er
Hildur Solveig Pálsdóttir frá Stykk-
ishólmi, fyrrv. húsfreyja í Reykja-
vík, sem nú er á hundraðasta og öðru
aldursári. Foreldrar hennar voru
Páll Friðrik Vídalín Bjarnason,
sýslumaður á Sauðárkróki og í
Stykkishólmi, og k.h., Margrjet
Árnadóttir húsfreyja.
Stjúpdóttir Halldórs var Unnur
Þorvaldsdóttir sem lést 1985.
Halldór lauk stúdentsprófi frá
MR 1939, embættisprófi í lögfræði
frá HÍ 1945 og öðlaðist hdl.-réttindi
1949. Hann var fulltrúi hjá sakadóm-
aranum í Reykjavík 1945-61, settur
bæjarfógeti á Sauðárkróki og sýslu-
maður Skagafjarðarsýslu 1948, skip-
aður sakadómari í Reykjavík 1961
og yfirsakadómari þar 1973. Hann
var hæstaréttardómari 1982-87 og
auk þess prófdómari við lagadeild
HÍ frá 1975, dómari í Félagsdómi
1980-83 og varaformaður Siglinga-
dóms 1973-82.
Um Halldór segir Laufey Böðv-
arsdóttir í minningargrein: „Halldór
var óvenju orðsnjall, skemmtilegur
og um leið fágaður maður. Hann
hafði ríka kímnigáfu og góðar gáfur.
Af Halldóri stafaði hlýja, heiðarleiki
og nærvera hans var elskuleg.
Halldór hafði stálminni og var alls
staðar vel heima, ég naut þess að
geta fengið hjá honum svör við
hverju því sem mig langaði að fræð-
ast um, hvort sem var í námi eða
leik.“
Halldór lést 26.12. 2008.
Merkir Íslendingar
Halldór Þor-
björnsson
85 ára
Erlingur Ólafsson
Georg Ragnarsson
Guðrún María
Samúelsdóttir
Kristján Pálsson
Ólína Jóhanna Jónsdóttir
Svanhildur Magnúsdóttir
80 ára
Aina Björk Dam
Gréta Guðjónsdóttir
Guðrún Aðalbjörg
Halldórsdóttir
Helga Ruth Alfreðsdóttir
75 ára
Bogi Þórhallsson
Sigrún I. Jónsdóttir
70 ára
Elín Heiðberg Lýðsdóttir
Halldór Svavarsson
Jóhanna Harðardóttir
Jóhannes K. Jóhannesson
Jóna Fríða Gísladóttir
Margrét Pálsdóttir
Svala Stefánsdóttir
60 ára
Daði Harðarson
Elín Guðrún Jóhannsdóttir
Eysteinn Jónasson
Guðmundur Jónsson
Gunnar L. Friðriksson
Helgi Kristjánsson
Ingibjörg Karlsdóttir
Kristjón Víglundur
Guðmundsson
Leó Jónsson
Páll Hjálmur Hilmarsson
Ragnar Þór Benediktsson
Sólbjört Gunnarsdóttir
50 ára
Anna Dagbjört
Hermannsdóttir
Anna María Bjarnadóttir
Björk Birkisdóttir
Elín Ása Geirdal
Jónasdóttir
Jón Ármann Guðjónsson
Remigijus Jonusas
Unnur María Haraldsdóttir
Viktoría Marinusdóttir
Þorbjörg Harðardóttir
Þóra Guðbjörg Arnardóttir
Þóra Ólöf Guðmundsdóttir
40 ára
Agnieszka Mikielska
Anna Margrét
Sigurðardóttir
Bosko Repic
Fatima Dafi
Felix Rafn Felixson
Guðrún B. Rúnarsdóttir
Gunnar Örn Júlíusson
María Þ. Kristjánsdóttir
Marzena Maria Kempisty
Sabína S. Halldórsdóttir
Svanborg Gísladóttir
30 ára
Alida Ósk Smáradóttir
Arnar Ingi Halldórsson
Catherine Coté
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir
Elín Ósk K. Sigurjónsdóttir
Erla Hadda Ágústsdóttir
Finnur G. Kristjánsson
Frans Friðriksson
Ingólfur Halldórsson
Lénárd Gresó
María Kuzmenko
Monika Vokrouhlíková
Rán Guðmundardóttir
Robert Lewicki
Sigríður Rakel Ólafsdóttir
Símon Örn Reynisson
Vadims Murasko
Védís Eva Guðmundsdóttir
Xue Meng
Til hamingju með daginn
30 ára Símon ólst upp á
Flateyri, býr í Mosfellsbæ,
lauk BA-prófi í heimspeki
við HÍ og er með atvinnu
köfunarréttindi. Hann er
nú að ljúka námi í tölv-
unarfræði.
Maki: Aldís Tómasdóttir,
f. 1991, nemi í lífeinda-
fræði.
Foreldrar: Reynir
Traustason, f. 1953, far-
arstjóri og fyrrv. ritstjóri,
og Halldóra Jónsdóttir, f.
1956, félagsliði.
Símon Örn
Reynisson
30 ára Sigríður lauk BSc-
prófi í sálfræði, MSc-prófi
í markaðsfræði og alþjóða
viðskiptum og er vöru-
merkjastjóri hjá Pepsi Co
hjá Ölgerðinni.
Maki: Jónas Bragi Haf-
steinsson, f. 1990, poké-
mon-veiðari.
Sonur: Ólafur Ísak Þor-
steinsson, f. 2011.
Foreldrar: Bergþóra
Oddgeirsdóttir, f. 1953, og
Ólafur Benediktsson, f.
1952.
Sigríður Rakel
Ólafsdóttir
30 ára Rán ólst upp í
Fagraneskoti í Aðaldal,
býr þar, lauk stúdents-
prófi frá Laugum, rekur
gistiheimili með fjölskyld-
unni, er bókasafnsvörður
og stundar bókaranám.
Bræður: Grétar, f. 1985,
og Hrannar, f. 1995.
Foreldrar: Hólmfríður
Þorkelsdóttir, f. 1958, og
Guðmundur Ágúst Jóns-
son, f. 1959, en þau eru
bændur, búsett í Fagra-
neskoti.
Rán Guð-
mundardóttir