Morgunblaðið - 30.08.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
Nýjar vörur í hverri viku
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Strætó bs. hefur fengið afhenta níu
rafknúna strætisvagna frá kínverska
rafbílaframleiðandanum Yutong
Eurobus, en Strætó samdi í þremur
örútboðum um kaup á 14 slíkum
vögnum. Áttu fyrstu níu vagnarnir
að afhendast í fyrra en þeir sem
komnir eru voru ekki afhentir fyrr
en í vor og sumar.
Bjartsýnn á afhendingu
Jóhannes Rúnarsson, forstjóri
Strætó, segir að fimm síðustu vagn-
arnir sem samið var um kaup á verði
væntanlega afhentir um mánaða-
mótin október-nóvember.
„Ég er bjartsýnn á að Kínverjarn-
ir geti staðið við þann afhendingar-
tíma,“ sagði Jóhannes í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Fram kom í frétt í Morgunblaðinu
í febrúar á þessu ári að Strætó beitti
kínverska fyrirtækið dagsektum
vegna þess að vagnarnir voru ekki
afhentir á þeim tíma sem um hafði
verið samið.
Jóhannes segir að Kínverjarnir
hafi greitt rúmar 20 milljónir króna í
dagsektir. „Það munu væntanlega
fara fram viðræður áður en síðustu
vagnarnir verða afhentir, um það
hversu háar dagsektirnar verða að
lokum. Það er ekki komið í ljós
ennþá hversu há endanleg upphæð
verður,“ sagði Jóhannes.
Jóhannes segir að í þessum efnum
gildi ákveðnar leikreglur og ef menn
nái ekki samkomulagi um upphæðir
sé eina úrræðið að skjóta málinu til
dómstóla.
Kínverjar borga Strætó
Búnir að borga yfir 20 milljónir í dagsektir Níu raf-
strætóar komnir og síðustu fimm verða afhentir í haust
Morgunblaðið/Valli
Rafstrætó Strætó bs. kaupir alls
fjórtán rafstrætóa frá Kína.
Bændur eru byrjaðir að flytja heyrúllur
og stórbagga niður að höfn á Sauðár-
króki. Von er á flutningaskipi aðfaranótt
sunnudags til að taka fyrsta farminn til
Noregs.
Skipið tekur um 4.000 rúllur og 1.000
stórbagga í ferð. Ingólfur Helgason á
Dýrfinnustöðum, sem vinnur að útflutn-
ingnum, segir að ekki verði vandræði að
útvega heyið. Í fyrradag var byrjað að
flytja hey frá þeim bæjum sem liggja
fjærst Sauðárkróki og hlaða því upp á
bryggjunni. Þegar nær dregur og á með-
an skipið er lestað verður flutt hey frá
bæjum næst höfninni. Hver flutningabíll
tekur 40-50 rúllur í ferð, þannig að heyið
verður sótt í rúmlega 100 ferðum.
Ingólfur hafði áhyggjur af því að fugl-
arnir sem eru við Sauðárkrókshöfn
myndu gata rúllurnar og eyðileggja
heyið. Hann segir nú að þeir sem vinni
við flutningana hafi vakandi auga með
því og hætti fuglinn sér ekki nálægt á
meðan þeir séu við vinnu.
Búast má við því að norskir bændur
geti farið að gefa kúm sínum skagfirskt
hey eftir viku eða tíu daga. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Hlaðið Það skotgengur að flytja heyrúllur og bagga frá bændum að Sauðárkrókshöfn. Þar er heyið geymt í stórum stæðum.
Noregshey
hleðst upp
á höfninni
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við tökum þetta ástand mjög alvar-
lega. Það er algerlega ólíðandi að
börn og ungmenni séu ekki örugg í
sveitarfélagi sínu,
nálægt heimili
sínu og skóla. Við
höfum átt náið
samstarf við lög-
reglu í þessu máli
og vonandi finnst
þessi einstakling-
ur sem fyrst, því
hann þarf aug-
ljóslega aðstoð,“
segir Áslaug
Hulda Jónsdóttir,
formaður bæjarráðs Garðabæjar.
Íbúar í Garðabæ eru slegnir óhug
vegna tíðra árása á börn í bænum að
undanförnu. Morgunblaðið greindi
frá því í gær að lögregla væri með til
rannsóknar tvær árásir gegn ungum
stúlkum síðdegis á þriðjudag. Þær
árásir áttu sér stað á svipuðum stað
og ráðist var á stúlku á fimmtudaginn
í síðustu viku, á göngustíg við Arn-
arnesmýri meðfram Gullakri og Góð-
akri. Fyrir tveimur vikum var ráðist
á átta ára gamla stúlku og hún slegin.
Lýsingar fórnarlamba benda til þess
að um sama árásarmann sé að ræða.
Auk þessara fjögurra tilvika var ráð-
ist á tíu ára stúlku á gangi í desember
síðastliðnum.
Að sögn Áslaugar hefur lögregla
upplýst bæjaryfirvöld fljótt og
örugglega þegar mál þessi hafa kom-
ið upp, bæði fyrir helgi og aftur í gær.
Fulltrúar bæjarins funduðu í gær
með skólastjórnendum, þar sem þeir
fengu nýjustu upplýsingar.
Foreldrum sendur póstur
Samkvæmt upplýsingum frá Kon-
ráð Olavssyni, formanni foreldra-
félags Hofsstaðaskóla, fengu foreldr-
ar barna í skólanum tölvupóst frá
skólayfirvöldum í gær þar sem fram
kom að rætt yrði við nemendur um
málið. Konráð vildi ekki ræða málið
frekar og benti á skólastjórnendur.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist
ekki í Margréti Harðardóttur, skóla-
stjóra Hofsstaðaskóla.
Það hefur komið fram að löggæsla
hafi verið efld í bænum í kjölfar þess-
arar ofbeldishrinu. Finnst þér þetta
gefa tilefni til að endurskoða gæslu í
bænum, til að mynda vöktun með
myndavélum?
„Lögregla hefur sett mikinn þunga
í þetta mál, aukið eftirlit og gert ýms-
ar aðrar ráðstafanir. Garðabær hefur
lagt mikla áherslu á aukið öryggi
íbúa. Við höfum sett upp öryggis-
myndavélar við helstu umferðar-
æðar. Við erum ekki búin að klára
það verkefni en það þurfum við að
gera í samstarfi við lögreglu,“ segir
Áslaug Hulda í samtali við Morgun-
blaðið.
„Maður veltir því auðvitað fyrir sér
og við höfum skoðað það hvort ekki
þurfi að setja upp myndavélar á opn-
um svæðum og á svæðum þar sem
óæskilegir hlutir geta farið fram, til
að mynda þar sem er mikill gróður.
Það skiptir alltaf máli að við sem
samfélag séum vakandi og fylgjumst
vel með því sem er að gerast. Að við
látum vita ef eitthvað er ekki í lagi. Í
dag og síðustu daga hefur bæjaryfir-
völdum og lögreglu borist ábending-
ar um þessi mál og það hjálpar og
skiptir máli.“
Hvernig finnst þér hljóðið í bæjar-
búum vera?
„Það eru allir óttaslegnir. Það vilja
allir að börn og ungmenni séu örugg,
í Garðabæ sem og annars staðar.
Þetta er óásættanleg staða. Ég hef
hins vegar trú á að þetta leysist og
þessi maður finnist sem fyrst. Við
þurfum svo í framhaldi að huga að því
hvað við getum gert betur svo það
séu minni líkur á að slíkir hlutir geti
gerst aftur.“
Árásir á börn vekja óhug
Helgi Gunnlaugsson afbrotafræð-
ingur segir að erfitt sé að meta um-
rætt mál á þessu stigi en árásir gegn
börnum veki alltaf óhug. Hann segir
að ef um fleiri en einn árásarmann sé
að ræða sé rík ástæða til að staldra
við og kanna hvað kalli fram áreitni af
þessu tagi.
„Ef um einn og sama aðila er að
ræða í öll skiptin er skýringanna þó
væntanlega fyrst og fremst að leita
hjá viðkomandi aðila. Hann verður að
stöðva og koma honum í viðeigandi
hendur. Við getum ekki látið hegðun
af þessu tagi viðgangast í nærum-
hverfi okkar,“ segir Helgi.
Síðdegis í gær sendi lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu fjölmiðlum til-
kynningu með mynd af manni sem
leitað er af í tengslum við rannsókn
málanna. Í tilkynningunni er maður-
inn, eða þeir sem þekkja til hans,
beðnir um að hafa strax samband við
lögreglu.
Íbúar „óttaslegnir“ vegna árásanna
Löggæsla aukin í Garðabæ vegna tíðra árása á börn Talið að um sama árásarmann sé að ræða í
öllum tilvikum Formaður bæjarráðs vill skoða að setja upp eftirlitsmyndavélar á opnum svæðum
Arn ar nes mýri
Góðakur
Gullakur
Arn ar ne
s mýri
G A R Ð A B Æ R
AKRAR
TÚN MÝRAR
H
af
na
rf
ja
rð
ar
ve
gu
r
K
or
ta
gr
un
nu
r:
O
pe
nS
tr
ee
tM
ap
Áslaug Hulda
Jónsdóttir
Mynd lögreglu Maðurinn, eða þeir
sem þekkja hann, eru beðnir um að
hafa samband við lögreglu.