Morgunblaðið - 30.08.2018, Qupperneq 38
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Efnt var til minningargöngu um
Guðrúnu Lárusdóttur alþingis-
mann (1880-1938) og dætur hennar
á mánudaginn en þá voru liðin 80
ár frá útför þeirra í Reykjavík eft-
ir að þær höfðu látist í bílslysi í
Biskupstungum nokkrum dögum
áður, 20. ágúst 1938. Farin var
sama leið og líkfylgdin á sínum
tíma, austur Sólvallagötu að Hóla-
torgi, norður Garðastræti, niður
Túngötu og Kirkjustræti, framhjá
Alþingishúsinu og staldrað við í
Dómkirkjunni. Síðan var farin
sama leið til baka í Hólavalla-
kirkjugarð, farið að leiði þeirra og
þar lagður blómsveigur.
Frá því í vor hefur staðið yfir
sýning um sögu Guðrúnar í Þjóð-
arbókhlöðunni. Á vef safnsins segir
að hún hafi snemma farið að
stunda ritstörf, var aðeins 15 ára
þegar hún hóf útgáfu á Mínervu,
handskrifuðu blaði. Um það leyti
þýddi hún efni fyrir blaðið Fram-
sókn á Seyðisfirði. Tvítug hafði
hún þýtt úr dönsku Spádóma frels-
arans og árið eftir kom út Tómas
frændi, skáldsaga eftir Harriet
Beecher Stowe, þýdd úr ensku.
Hún var sískrifandi – skáldsögur
fyrir ungmenni og fullorðna, smá-
sögur fyrir börn og unglinga,
þýddi efni og skrifaði í blöð og
tímarit. Nokkrar bóka hennar og
sagna voru þýddar, m.a. á fær-
eysku og dönsku. Skáldsögur Guð-
rúnar urðu tólf, sjö af þeim í bók-
arformi, hinar sem framhaldssögur
í blöð. Ritsafn með ýmsum verkum
Guðrúnar var gefið út 1949. Á
heimleið er ein þekktasta bók
hennar og gerði Lárus sonur henn-
ar að hennar ósk, leikgerð af verk-
inu 1939 og var það sett upp hjá
Leikfélagi Reykjavíkur 1940.
Guðrún sat um skeið í bæjar-
stjórn Reykjavíkur og var kosin al-
þingismaður árið 1930. Sat hún á
þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn þeg-
ar hún lést aðeins 58 ára að aldri.
Eins og rakið var hér í blaðinu
fyrir viku drukknuðu Guðrún og
dætur hennar þegar bifreið fjöl-
skyldunnar lenti út af vegi og rann
niður í Tungufljót í Biskups-
tungum þar sem fjölskyldan var á
sumarferðalagi. Eiginmaður henn-
ar, Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason
guðfræðingur, og danskur bílstjóri
fjölskyldunnar björguðust.
Bremsur bifreiðarinnar reyndust
hafa verið í ólagi og hlaut bílstjór-
inn 6 mánaða fangelsisdóm fyrir
það.
Fólki var mjög brugðið þegar
fréttir bárust af slysinu. Svo alvar-
legt bílslys hafði ekki áður orðið
hér á landi. Við bættust að í hlut
átti þjóðkunn fjölskylda. Frú Guð-
„Í gær var Reykjavík í sorg“
Minningarganga um Guðrúnu Lárusdóttur alþingismann fór sömu leið og líkfylgdin 1938
Morgunblaðið/Valli
Minningarganga Hópur fólks minntist Guðrúnar og dætra hennar á mánu-
daginn með því að ganga sömu leið og líkfylgdin fór fyrir 80 árum.
Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson
Líkfylgdin Mikill mannfjöldi fylgdi Guðrúnu Lárusdóttur og dætrum hennar útfarardaginn 27. ágúst 1938.
Tíguleg Guðrún Lárusdóttir þótti
glæsileg kona og var vel gefin.
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
Það var Vigfús Sigurgeirsson ljós-
myndari og kvikmyndatökumaður
sem tók hinar áhrifamiklu myndir við
útför Guðrúnar Lárusdóttur í
Reykjavík í ágúst 1938. Hann starf-
rækti þá eigin ljósmyndastofu í bæn-
um. Seinna varð hann sérlegur ljós-
myndari ráðuneyta og forseta Íslands
frá upphafi. Hann tók kvikmyndir í
öllum opinberum ferðum forsetanna
Sveins Björnssonar og Ásgeirs Ás-
geirssonar, innanlands sem utan. Þá
tók hann kvikmyndir af atvinnuhátt-
um Íslendinga og þjóðlífi frá 1937 svo
og merkisatburðum í sögu Íslands,
t.d. stofnun lýðveldisins 1944. Myndir
Vigfúsar þykja ómetanlegar heim-
ildir um lífið á Íslandi á síðustu öld.
Vigfús fæddist á Stóruvöllum í Bárð-
ardal 6. janúar 1900. Hann stundaði
nám við Gagnfræðaskóla Akureyrar,
lærði ljósmyndun hjá Hallgrími Ein-
arssyni á Akureyri og kynnti sér nýj-
ungar í ljósmyndun í Danmörku og
Þýskalandi, var ljósmyndari á Akur-
eyri frá 1923 til 1936 er hann fluttist
til Reykjavíkur og opnaði þar eigin
stofu.
Myndir Vigfúsar eru
ómetanlegar heimildir
Ljósmyndarinn Vigfús Sigurgeirsson mundar hér vélina.
///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////