Morgunblaðið - 30.08.2018, Page 39
rún var þekkt um land allt fyrir
trúarlegt starf, stjórnmálaafskipti
og ritstörf. Maður hennar var einn
þekktasti guðfræðingur landsins.
Elliheimilið Grund, sem fjöl-
skyldan hafði stofnað, var þekkt og
vinsæl stofnun.
Fjölmenn jarðarför
„Í gær var Reykjavík í sorg,“
sagði Morgunblaðið daginn eftir
útförina. „Jarðarförin frá Ási. setti
svip á alt bæjarlífið. Hún var ein-
hver sú fjölmennasta sem hjer hef-
ir sjest. Fánar blöktu í hálfa stöng
um allan bæinn. Umferð um göt-
urnar var lítil önnur eftir kl. 2 og
fram til miðaftans, nema sú sem
var í sambandi við jarðarförina.“
Blaðið birti fjölda fréttamynda frá
útförinni og líkfylgdinni sem var
óvanalegt á þessum tíma.
Á útfaradaginn birti Morgun-
blaðið minningargreinar um Guð-
rúnu. Var einn þeirra eftir Ólaf
Thors, formann Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann vitnaði í Jón heitinn
Þorláksson fyrrverandi flokks-
formann. „En hann sagði mjer oft
að hann hefði engri konu kynst, er
hann teldi jafnoka frú Guðrúnar á
sviði stjórnmálanna. Mintist Jón
Þorláksson oft á vitsmuni frú Guð-
rúnar og mannkosti og lagði lengi
hið mesta kapp á að fá hana til
framboðs til Alþingis, enda þótt
hún ljeði ekki máls á því fyr en við
landkjörið 1930.“
Sjálfur sagði Ólafur að viðkynn-
ing hans við Guðrúnu hefði stað-
fest fullkomlega allt það lof sem
Jón Þorláksson bar á hana. „Betri
samstarfsmann verður ekki á kos-
ið. Alt lá opið fyrir henni, svo í
hverju máli greindi hún strax
kjarna frá hismi, og sjálf hafði hún
óvenju mikla framsetningargáfu,
jafnt í ræðu og riti.
En auk þess að vera prýðilega
gáfuð, var þessi fallega og tígulega
kona alveg óvenjulega elskuleg
manneskja. Jeg man aldrei til að
hún ljeti ekki liggja vel á sjer,
virtist altaf vera í sólskinsskapi, að
vísu alvörugefin, en þó gamansöm
og altaf græskulaus og hló dátt ef
einhver kýmni hraut af vörum
annara.“
Ræða eiginmannsins, Sigur-
björns Ástvaldar, við jarðsetn-
inguna í kirkjugarðinum vakti
mikla athygli. „Jeg var með þeim
niðri í Tungufljóti,“ sagði hann
meðal annars. „Jeg hjelt, að jeg
myndi líka deyja. Jeg hafði ráðrúm
til þess að biðja fyrir mjer þarna
niðri í fljótinu. Eins er jeg viss
um, að þær hafa haft ráðrúm til
þess. Jeg fól Guði sál mína, og
gerði það með fullkominni ró. En
svo var mjer bjargað. Og ógnir
mínar byrjuðu ekki fyrri en jeg
stóð á bakkanum og vissi af þeim
niðri í djúpinu, Það var ógurleg
stund.“
„En allir, sem orð hans heyrðu
urðu snortnir af trúarstyrk hans
og hátíðleik þessarar stundar,“
sagði Morgunblaðið daginn eftir.
Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson
Líkmenn Þingmenn Sjálfstæðisflokksins og miðstjórn báru kistu Guðrúnar frá dyrum Dómkirkjunnar og í líkbílinn við Alþingishúsið að útför lokinni.
Ólafur Thors er fremstur t.v. og við dyrnar má m.a. sjá Valtý Stefánsson, ritstjóra Morgunblaðsins.
FRÉTTIR 39Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
Einstök
barnagleraugu
frá Lindberg.
Þau hafa hlotið
fjölda viður-
kenninga um
heim allan.
94
international
design awards