Morgunblaðið - 30.08.2018, Page 43

Morgunblaðið - 30.08.2018, Page 43
Reykjavíkurborg býður byggingarrétt á lóðum í Úlfarsárdal í opnu útboði. Tilboðsfrestur er til kl. 12.00 miðvikudaginn 19. september. Lausar lóðir eru merktar á meðfylgjandi korti. Þær eru bæði í grónari hluta hverfisins og á nýju svæði við Leirtjörn. Úlfarsárdalur býður gott aðgengi að fjölbreyttum útivistar- og náttúrusvæðum með einstöku samspili fjallsins, dalsins og árinnar. Gróður við Leirtjörn mun taka mið af aðstæðum en við bakka tjarnarinnar verður leitast við að endurheimta náttúrlegt gróðurlendi. Við Leirtjörn verður útivistarstígur sem tengist stígakerfi Úlfarsfells. Mikil uppbygging á sér stað í Úlfarsárdal. Neðst í dalnum rís nú glæsilegt mannvirki sem hýsa mun skóla, leikskóla, menningarmiðstöð, bókasafn, sundlaug og íþróttamannvirki. Nú þegar hefur hluti byggingarinnar verið tekinn í notkun og uppbygging á íþróttasvæði er vel á veg komin. Lóðir í Úlfarsárdal Nánari upplýsingar má finna á reykjavik.is/lodir Skilafrestur tilboða er til kl. 12.00 miðvikudaginn 19. september 2018. Lausar lóðir eru merktar inn á meðfylgjandi korti September 2018 Fjölbýli Raðhús Einbýlishús Tvíbýlishús/einbýlishús Skýringar við byggingareiti Einstök náttúra og mikil uppbygging Blómleg byggð í Úlfarsárdal  Skemmtilegar gönguleiðir á Úlfarsfell  Öflugt hjóla- og göngustígakerfi  Fjölbreytt menningarhús með skóla, leikskóla og bókasafni  Sundlaugar, bæði innan- og utanhúss, sem og heitir pottar  Mikil uppbygging íþróttamannvirkja og aðstöðu fyrir Fram  Úlfarsá er silungs- og laxveiðiá sem rennur í gegnum dalinn  Í dalnum er fjölbreytt fuglalíf  Einstakt útsýni yfir borgina  Sólríkar suðurhlíðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.