Morgunblaðið - 30.08.2018, Blaðsíða 49
49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
Útivist Fólk nýtir góða veðrið til að skella sér í göngutúr og sannarlega er
notalegt að ganga meðfram sjávarsíðunni í Reykjavík og heyra í hafinu.
Eggert
Vegna misvísandi
umræðu og deilna í
tengslum við fyr-
irhugaða byggingu
knatthúss í Kapla-
krika vil ég koma á
framfæri helstu stað-
reyndum málsins.
Bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar ákvað í
fyrra að byggt yrði
knatthús hjá FH og
voru 200 milljónir
króna settar á fjárhagsáætlun til
verksins fyrir árið 2018. Áætlað
var að kostnaðurinn við húsið yrði
alls 720 milljónir króna og myndi
greiðast á þremur árum. Upp-
haflega var áformað að bæj-
arfélagið myndi sjálft annast fram-
kvæmdina og um síðustu áramót
var verkið sett í alútboð. Lægsta
tilboð hljóðaði upp á um 1.100
milljónir króna sem var allt of hátt
og var því öllum tilboðum hafnað.
Forgangsröðun ÍBH
Bætt aðstaða til knattspyrnuiðk-
unar er brýn í bæjarfélaginu, bæði
í Kaplakrika og á Ásvöllum, þar
sem þúsundir barna og ungmenna
stunda íþróttina. Við ákvörðun um
fyrrgreinda framkvæmd var farið
eftir forgangsröðun Íþrótta-
bandalags Hafnarfjarðar, byrjað
yrði í Kaplakrika og síðan byggt á
Ásvöllum. Eitt af fyrstu verkefnum
nýs meirihluta í bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar var að fara yfir stöðuna
sem upp var komin eftir að öllum
tilboðum í knatthús FH hafði verið
hafnað. Að lokinni ítarlegri skoðun
var ákveðið að semja við FH um
byggingu á hagkvæmu knatthúsi.
Skyldi kostnaður ekki verða meiri
en 790 milljónir króna en félagið
hefur lagt fram kostnaðaráætlun
um byggingu hússins fyrir þá upp-
hæð.
Eignaskipta-
samningar og
eftirlitshópur
Samhliða var ákveð-
ið að ljúka gerð eigna-
skiptasamninga við
FH, sem hafa verið
ókláraðir um langt
árabil en vinna við
eignaskiptin var tekin
upp á síðasta kjör-
tímabili. Þar vegur
þyngst aðalíþrótta-
húsið í Kaplakrika en
samkvæmt samþykkt
bæjarstjórnar frá 1989 er kveðið
skýrt á um að FH yrði eigandi
þess húss frá árinu 2005. Frágangi
þeirrar samþykktar var aldrei lok-
ið, eignaskiptunum ekki þinglýst
og er eignin því enn skráð á
Hafnarfjarðarbæ. Á fundi eftirlits-
nefndar með fjármálum íþrótta-
félaga hefur bæjarstjórn verið
hvött til að ganga frá þessu upp-
gjöri.
Nú hefur Hafnarfjarðarbær gert
rammasamkomulag við FH sem
gerir ráð fyrir eignaskiptum, þ.e.
að Hafnarfjarðarbær greiði alls
790 milljónir króna fyrir þrjú
mannvirki á svæðinu, íþróttahús
og tvö knatthús. Í staðinn byggi
félagið sjálft þriðja knatthúsið á
eigin ábyrgð fyrir þessa sömu fjár-
hæð. Í samningnum er kveðið á
um að nýja húsið verði eign félags-
ins, í því felast eignaskiptin.
Einnig var samið um að sér-
stakur hópur, svonefndur Kapla-
krikahópur, yrði skipaður og hefði
meðal annars fjárhagslegt eftirlit
með framkvæmdinni og að
greiðslur frá bænum verði inntar
af hendi eftir framvindu verksins.
Hópurinn er skipaður óháðum sér-
fræðingum og fulltrúum bæjarins
og félagsins. Verkefni hópsins er
einnig að fullnusta eignaskiptin á
Kaplakrika en skýrt skal tekið
fram að ekki mun koma til frekari
greiðslna til FH af hálfu bæjar-
félagsins vegna þeirra.
Engin áhrif á fjárhagsáætlun
Sú ákvörðun að semja við FH
um byggingu hússins, í stað þessi
að bærinn sjái um framkvæmdina,
hefur engin áhrif á fjárhagsáætlun
þessa árs. Fjárheimildin, 200 millj-
ónir króna er til staðar og þótt hér
sé verið að kaupa húsnæði í stað
þess að framkvæma er einungis
um tilfærslu innan málaflokks að
ræða sem leiðir hvorki til hækk-
unar né lækkunar. Allt tal um ann-
að er rangt.
Það eina sem vakir fyrir meiri-
hluta bæjarstjórnar í þessu máli er
að halda fjárhagsáætlun og ráð-
stafa þeim fjármunum sem fyrri
meirihluti bæjarstjórnar hafði
ákveðið til uppbyggingar á knatt-
spyrnuaðstöðu í Kaplakrika.
Fulltrúar meirihlutans eru með
hagsmuni hafnfirskra skattgreið-
enda í huga. Hér er ekki um neina
eftirgjöf eða óeðlilega fyrirgreiðslu
til FH að ræða.
Stefna núverandi meirihluta er
að halda áfram á braut aga og að-
haldssemi í rekstri bæjarins.
Hvergi verður hvikað í þeim efn-
um. Samningurinn við FH mun
spara um 300 milljónir króna mið-
að við að bærinn hefði sjálfur stað-
ið að byggingu hússins. Það eru
aðalatriði málsins.
Eftir Rósu
Guðbjartsdóttur » Sú ákvörðun að
semja við FH um
byggingu hússins, í stað
þessi að bærinn sjái um
framkvæmdina, hefur
engin áhrif á fjárhags-
áætlun þessa árs.
Rósa
Guðbjartsdóttir
Höfundur er bæjarstjóri
Hafnarfjarðar.
Um byggingu knatthúss FH
Hinn 1. september munu
kvennalandslið Íslands og Þýska-
lands í fótbolta mætast á Laugar-
dalsvelli til að ákveða hvort þeirra
mun fara á heimsmeistaramótið í
Frakklandi á næsta ári. Einungis
sigurliðið kemst beina leið á HM.
Íslenska landsliðið er nú stiga-
hæst í 5. riðli eftir 3:2 sigur gegn
Þjóðverjum í Wiesbaden í október
síðastliðnum og er með eins stigs
forystu á Þýskaland í riðlinum.
Það liggur því ljóst fyrir að sigur-
liðið í Laugardalnum mun fara
áfram til Frakklands.
Kvennalið Þýskalands hefur
unnið Ólympíuleikana, er tvöfaldir
heimsmeistarar og áttfaldir Evr-
ópumeistarar í knattspyrnu. Það
er því óvenjulegt fyrir það að sitja
í öðru sæti riðilsins. Þýsku kon-
urnar ásamt þjálfara sínum Horst
Hrubesch, sem er afar farsæll
leikmaður og þjálfari, finna greini-
lega að Þjóðverjar bera miklar
væntingar til þeirra, ekki síst eftir
mikil vonbrigði með karlalands-
liðið núna í sumar. Bestu fjögur
liðin sem eru í öðru sæti í riðla-
keppninni komast í umspil fyrir
seinasta evrópska sætið fyrir HM
í Frakklandi, en markmið þýska
liðsins er klárlega að vinna riðil-
inn. Til þess þarf þýska liðið þó að
vinna einvígið hér í Reykjavík.
„Næsti úrslitaleikur er á Ís-
landi. Við munum leggja allt af
mörkum til að tryggja okkur sigur
í forkeppninni,“ segir markvörður
þýska landliðsins Almuth Schult
sem spilar fyrir VfL Wolfsburg,
en Sara Björk Gunnarsdóttir, fyr-
irliði íslenska landsliðsins, er liðs-
félagi hennar þar. Á hinn bóginn
hafa íslensku konurnar góða
ástæðu til að mæta fullar sjálfs-
öryggis í „úrslitaleikinn“. Eftir
fimm sigra og aðeins eitt jafntefli
gegn Tékkum, gæti staða íslensku
kvennanna varla verið vænlegri.
Þegar leikurinn hefst næstkom-
andi laugardag, 1. september, kl.
14.55 mun fara fram hörkuspenn-
andi leikur með fótboltakonum
sem munu berjast af öllu afli til
sigurs. Vegna þess hve mikil-
vægur leikurinn er þá verður hann
sýndur í beinni útsendingu í þýsku
ríkissjónvarpi. Við hlökkum til
þessa leiks sem mun sameina allt
það sem gerir knattspyrnu að vin-
sælustu íþrótt heims: ástríðu,
keppni, þokka, tækni, sigurvilja,
dálítið drama og þá mögulega
sorg.
Fyrir utan keppnina sjálfa (og
viðskiptalegu hlið hennar) má ekki
gleyma öðrum hliðum knattspyrn-
unnar: fótbolti hefur alltaf verið
leikur sem byggist á virðingu og
reglum. Á meðan keppnin sjálf
vekur samsömun og ástríðu í okk-
ur eru það reglur um sanngirni
sem gera það að verkum að sigur-
inn lítilsvirði hvorki andstæðing-
inn né að tap leiði til örvæntingar.
Það gildir einnig í þessu tilfelli.
Þrátt fyrir alla viðleitni til að
sigra þennan leik þurfum við að
muna að í enda dags þá er þetta
leikur.
Næstkomandi laugardag kemur
svo einn þáttur til viðbótar við
sögu – kynjajafnrétti. Þegar litið
er á sögu alþjóðlega kvennafót-
boltans er greinilegt að hún end-
urspeglar samfélagið á hverjum
tíma. Á tímum fyrri heimsstyrj-
aldar varð kvennafótbolti vinsæll
en hann var síðan að hluta til
bannaður á áratugum sem fylgdu.
Rökin fyrir því banni endurómuðu
kunnugleg stef úr öðrum kimum
samfélagsins, ljóst er að áhuginn á
raunverulegu jafnvægi milli karla
og kvenna var ekki fyrir hendi.
Það var ekki fyrr en fótboltakonur
stefndu á að stofna sína eigin
deild að hægt var að koma vitinu
fyrir karlana. Árið 1970 ákvað
Þýska knattspyrnusambandið
(DFB) að aflétta leikbanninu við
kvennafótbolta og það sama gerði
Knattspyrnusamband Evrópu
(UEFA) ári síðar. Hannelore
Ratzeburg, núverandi varaforseti
DFB, er til fyrirmyndar þegar
kemur að baráttunni fyrir jafn-
rétti kynjanna í knattspyrnu í
Þýskalandi, en
hún hefur beitt sér fyrir
kvennafótbolta bæði í Þýskalandi
og á alþjóðlegum vettvangi síðustu
40 árin.
Þegar ég hugsa til kvennafót-
bolta á Íslandi þá dettur mér fyrst
og fremst í hug hið glæsilega aug-
lýsingamyndskeið „Unstoppable
for Iceland“, sem Icelandair lét
gera fyrir sig í aðdraganda Evr-
ópumótsins í kvennafótbolta 2017.
Þetta tveggja mínútna myndskeið
tekur saman á snilldarlegan hátt
þær áskoranir sem stelpur verða
að sigrast á, til þess eins að geta
gert það sem þær kunna best – að
spila fótbolta!
Íslenska knattspyrnusambandið
er búið að setja sér það metnaðar-
fulla markmið að fylla Laugardals-
völl 1. september. Það yrði í
fyrsta skipti sem uppselt yrði á
leik í kvennafótbolta á Íslandi.
Þetta er markmið styð ég heils-
hugar, ekki síst þar sem það mun
vera góð auglýsing fyrir kvenna-
fótbolta, bæði hérlendis og erlend-
is.
Hvernig sem leikurinn næst-
komandi laugardag fer vonumst
við öll til þess að sjá fótboltaveislu
sem mun hvort tveggja í senn
vera íþróttaþrekvirki og fagna
jafnrétti karla og kvenna í fót-
bolta. Ég er sannfærður um það
að bæði liðin eru fyrsta flokks lið
sem munu auðga heimsmótið á
næsta ári. „Fyllum völlinn!“ –
Hjálpaðu til við að fylla völlinn í
fyrsta skipti! Vertu hluti af þess-
ari glæsilegu sögu! Sjáumst í
Laugardalnum.
Eftir Herbert Beck »Hjálpaðu til við að
fylla völlinn í fyrsta
skipti! Vertu hluti af
þessari glæsilegu
sögu! Sjáumst í
Laugardalnum.
Herbert Beck sendiherra með áritaða treyju þýska kvennalandsliðsins.
Höfundur er sendiherra
Þýskalands á Íslandi.
Leikur, barátta, íþróttamennska og jafnrétti