Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 50

Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 50
50 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018 Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is Gullsmiðir Sérfræðingar í trúlofunar & giftingarhringum Skoðaðu úrvalið á www.acredo.is 14k gull m/ demöntum, miðjust. 0,30 ct 299.755,- 14k gull með demöntum 236.031,- 14k gull með demöntum 139.241,- 14k hvítagull með demöntum 92.388,- 14k gull með demöntum 219.953,- 14k gull með demanti 109.985,- 14k gull með demanti 101.651,- 14k gull með demöntum 160.644,- 14k hvítagull með demöntum 228.841,- 14k rósagull með demöntum 241.090,- 14k hvítagull með demöntum, miðjusteinn 0,15 ct 201.174,- 14k hvítagull m/demöntum, miðjust. 0,40 ct 239.185,- 14k rósagull með demöntum 191.984,- 14k gull með demöntum 193.162, 14k hvítagull og rauðagull með demöntum 105.542,- 14k hvítagull með demöntum 253.095,- 14k gull með demanti 171.028,- 14k gull með demöntum 249.505,- Hér á árunum var mikið talað um jafnvægi í byggð landsins. Síð- an er mikið vatn til sjávar runnið. Nú tala menn um byggðastefnu, handafl, flutning ríkisstofnana út á land, byggðaáætlanir, byggðaað- gerðir, byggðakvóta, línuívilnun, sértækan kvóta, strandveiðar og sérstaka byggðakvóta svo eitthvað sé nefnt. Fólkinu er sumstaðar gert að lifa á einhverskonar bónbjörgum eða betli þar sem hver slæst við annan. Það nýjasta í þessum efnum er svo það skemmtilega orð mót- vægisaðgerðir. Út af fyrir sig ber ekki að vanþakka það sem gert hefur verið á liðnum árum til endurreisnar. Menn voru í góðri trú eins og oftast þegar ákvarðanir eru teknar. En nú hafa menn aðra sýn. Okkar góða land þarf nýjar upp- færslur í byggðamálum. Gamla byggðastefnan, hver sem hún var, er löngu gengin sér til húðar. Endalausar smáskammtalækningar eru vonlausar þegar á heildina er litið. Þær eru meira og minna at- kvæðaveiðar á röngum forsendum. En hvað á að koma í staðinn? Við sveitamennirnir gerumst svo djarfir að benda á að stjórnvöld þurfa að standa að nokkrum stór- tækum, almennum aðgerðum fyrir byggðir landsins nú þegar. Ef þau bera gæfu til þess mun flest annað koma sjálfkrafa í kjölfarið. Gömlu góðu frumatvinnuvegirnir, sjávar- útvegur, landbúnaður og iðnaður hverskonar ásamt ferðaþjónustu verða áfram kjölfestan. Atvinnumál eru undirstaða alls mannlífs í land- inu. En það er lífsnauðsyn fyrir þjóðina að hún líti á Ísland sem eina heild. Ef við höldum jafnvæg- inu í byggðinni með almennum að- gerðum, þurfa stjórnvöld ekkert að skipta sér af hvar fólkið vill búa. Nokkur dæmi um bráðnauðsyn- legar, almennar aðgerðir, sem þola enga bið: Samgöngur á landi Heilsárssamgöngur á landi eru grundvallaratriði fyrir allar byggðir landsins. Allir ættu að komast ak- andi þangað sem þeir vilja fara ef veður leyfir, hvenær sem er. Það myndi gjörbreyta flestu hér á landi. Öruggt rafmagn Allir íbúar landsins geti stólað á rafmagn allan sólarhringinn árið um kring. Nýta þær vatnsvirkjanir sem fyrir eru eins vel og kostur er og reisa nýjar þar sem algjör nauð- syn krefur. Styrkja dreifikerfi raf- orku þar sem þörf er á. Allt sam- kvæmt ströngustu kröfum Lloyd‘s í umgengni við náttúruna og Nátt- úrulistasalinn Ísland. Langtíma- markmið að allar raflínur fari í jörð. Heilbrigðisþjónusta sem dugar Allir geti fengið lækningu og fyr- irbyggjandi heilsueftirlit í heima- byggð sé þess kostur. Hver einasti landsmaður hafi sinn heimilislækni líkt og var áður. Allir hafi beinan persónulegan aðgang að sínum lækni. Það mun koma í veg fyrir mörg mistök og þjáningar og spara heilbrigðisþjónustunni ómældar upphæðir sem hægt er að nota annars staðar í því kerfi. Um það var talað fyrir nokkrum árum, að virkt og rétt stillt heimilislækna- kerfi gæti sinnt 95 prósentum þess vanda sem leitað er með til heilsu- gæslu. Sparað þannig heilbrigðis- kerfinu í heild umtalsverðar fjár- hæðir. Er þetta ekki ennþá grunnurinn? Eða eigum við að horfa endalaust upp á að menn verði úti á hverjum degi í okkar góða heilbrigðiskerfi? „Greiður aðgangur að heim- ilislækni, þekking á sjúklingi og fjölskyldu hans, ásamt trausti og samfellu í meðferð, er það mikil- vægasta í þjónustu heilsugæsl- unnar og skiptir höfuðmáli. Slíkt verklag sparar mikla fjármuni.“ Svo skrifaði Halldór Jónsson, for- maður Félags íslenskra heimilis- lækna, í Læknablaðinu fyrir nokkr- um árum. Vituð ér enn eða hvat? Örugg nettenging um land allt Menn geti unnið við tölvuna sína hvar sem er og hvenær sem er á mesta mögulega hraða. Ljúka verk- inu strax! Hugsanleg fjármögnun Ríkissjóður gefi út 50-75 millj- arða skuldabréf á ári næstu fimm ár með sæmilegum vöxtum. Verk- efni fyrir lífeyrissjóði og aðra sem hafa mikið fé undir höndum. Lánið, sem gæti orðið til 40 ára, endur- greiðist með sköttum sem lagðir eru á umferðina ár hvert. Og því ekki happdrættisskuldabréf líka fyrir almenning? Vegtollar lagðir á þar sem nauð- syn krefur. Hlutur ríkins í Íslandsbanka verði seldur. Hugsanlegt verð, var- lega áætlað, 130-140 milljarðar. Það er svo sérfræðinga að meta hve marga milljarðatugi þjóðin get- ur sparað sér með því að minnka hraðann og þar með hin hræðilegu umferðarslys á vegum landsins. Niðurlag Þegar þetta er allt komið í kring innan örfárra ára, getur lands- stjórnin minnkað stórlega allt byggðavesen. Landsins þegnar velji sér búsetu þar sem þeim þóknast. Sveitarstjórnir verði raunverulega gerðar ábyrgar fyrir sem flestum málum, hver á sínu svæði. Fjárveit- ingar til þeirra verður þá að stór- auka. Ríkið dragi saman seglin þar á móti og fækki starfsmönnum verulega. Margar ríkisstofnanir lagðar niður, eða sameinaðar. Punktur og basta! Ísland þarf nýjar uppfærslur í byggðamálum sem allra fyrst Eftir Hallgrím Sveinsson, Guðmund Ingvarsson, Bjarna G. Einarsson Hallgrímur Sveinsson Hallgrímur er bókaútgefandi, Guð- mundur fyrrverandi stöðvarstjóri Pósts og síma á Þingeyri og Bjarni fyrrverandi útgerðarstjóri K.D. á Þingeyri. Bjarni Georg Einarsson Guðmundur Ingvarsson » Gamla byggðastefn- an er löngu gengin sér til húðar. Stjórnvöld þurfa að standa að nokkrum stórtækum al- mennum aðgerðum fyr- ir byggðir landsins nú þegar. Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.