Morgunblaðið - 30.08.2018, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 30.08.2018, Blaðsíða 54
Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is Árelía Eydís Guðmundsdóttir dós- ent við Háskóla Íslands uppfærði sig um daginn og sagði frá því í Skólablaði Morgunblaðsins. Hún uppfærði sig með því að taka til, hreyfa sig og fleira í þeim dúr. Það er líka hægt að uppfæra sig örlítið með því að hressa fataskápinn sinn örlítið við. Stundum þarf ekki meira en bara nýjan lit inn í líf sitt. Jafn- vel lit sem við höfum aldrei hleypt inn en smellpassar kannski núna. Ef þú vilt verða örlítið meira elegant og aðeins meiri spariskór þá er vínrauður liturinn. Hægt er að leika sér látlaust með vínrauðan en hann býr yfir ákveðinni dýpt sem er heillandi. Það þarf kannski ekki alltaf að fara í vínrauðan heil- galla, stundum er nóg að lakka neglurnar í vínrauðu eða setja á sig vínrauðan varalit. Þegar naglalökk eru annars vegar er liturinn 512 frá Chanel klassík. Og svo er Guerlain með frábæra glossa í vínrauðu sem kalla fram ákveðna berjaáferð. Victoria Beckham fatahönnuður og ofurspariskór er aðeins að vinna með vínrauðan núna. Hún er kannski ekki í vínrauðu frá toppi til táar en notar vínrauða skó við gallabuxur og peysu eða er með vínrauða tösku. Hún er þó helst ekki í vínrauðum skóm með vín- rauða tösku nema áferðin sé allt öðruvísi. Ef þú færð þér vínrauða tösku þá parar þú skó við í öðrum lit ef þú ætlar að vera súperlekker. Takið líka eftir einu eða hvernig frú Beckham girðir rúllukragapeys- una ofan í buxurnar á afslappaðan hátt. Þetta er nú eitthvað sem ís- lensk veðrátta myndi ráða við. Svo má fara í rykfrakka yfir eða eitt- hvað í þá áttina. En gættu þess að gera stílinn að þínum, ekki apa allt blint upp eftir næstu manneskju. Það sem skiptir alltaf mestu máli þegar við klæðum okkur er að fötin veiti skjól fyrir veðri og vindum sem geta blásið um okkur í daglega lífinu. Þegar haust- lægðirnar fara að mokast yfir land- ið þurfum við að vera við öllu búnar ef við ætlum ekki að tapa. Er það ekki? Leið til að lifa af haustlægðirnar Ertu orðin allt of leið á gömlu útgáfunni af þér og þarftu nýja uppfærslu? Flott blanda Hér blandar Chloé saman beige-lituðu og vínrauðu. Fæst í Apóteki Garðabæjar, Lyfjaveri Suðurlandsbraut og Urðarapóteki Stakur jakki Vínrauður jakki getur hresst upp á fataskápinn. Ofursmart Viktoria Beckham er hér í galla- buxum með uppábroti og girðir peysuna ofan í bux- urnar. Takið eftir að skór og taska eru ekki ná- kvæmlega eins á litinn. Lekkert Vínrauð taska frá Chloé. Hún fæst á www.mytheresa.com Gyllt og vínrautt Þessi taska er frá Chloé. Pinnahælar Þessir skór eru úr haust- línu Victoria Beckham. Chanel 512 Þessi litur setur punkt- inn yfir i-ið. Geggjaður gloss La Petite Robe Noire Lip Colour Ink frá Guerlain er æði. Þessi lit- ur heitir L162 #Trendy Allt bundið Diane von Furstenberg er drottning bundnu kjól- anna. Hér er vínrauður kjóll frá H&M. Allt tvíhneppt Í haust eru tví- hnepptir jakkar áberandi. Þessi dragt er úr Zara. Afslapp- aður stíll Þessi mynd er úr haustlínu Victoria Beckham. Vínrauðir skór við bleika tösku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.