Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 55

Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 55
Ef þið viljið baka algjörlega skothelt brauð sem er súper einfalt og fáránlega gott á bragðið, þá mæli ég með þess- um dýrindisbollum. Þessar eru langbestar þegar þær eru nýkomnar úr ofninum. Al- gjört dúndur! Um það bil 8-10 sjúkheit ½ msk. þurrger ½ bolli volgt vatn ½ bolli volg mjólk 1⁄3 bolli sykur 115 g bráðið smjör (plús 10-20 g í viðbót til að pensla með) 4 eggjarauður 1 tsk. vanilludropar 1 tsk. sjávarsalt 3-31⁄4 bolli hveiti Blandið geri, vatni, mjólk og sykri saman í skál og látið bíða í 3-5 mínútur. Blandið síðan smjöri, eggjarauðum vanilludropum og salti vel saman við ger- blönduna og þeytið létt. Bætið því næst 3 bollum af hveiti saman við og blandið vel með höndunum eða sleif. Deigið á að vera pínulítið klístrað, en ef það er of klístr- að er gott að bæta restinni af hveitinu við. En athugið – því minna hveiti, því betra! Hyljið skálina með hreinu viskastykki og leyfið deiginu að hefast á hlýjum stað í 1½-2 klukkustundir, eða þar til það hefur tvöfaldast í stærð. Eftir það má annaðhvort búa til brauð eða hafið deigið inni í ísskáp yfir nótt. Hnoðið deigið og búið til þykka renninga úr því í hönd- unum. Snúið upp á renn- ingana og búið þannig til boll- ur, felið báða enda undir bollunum. Raðið á ofnplötu og penslið létt með smjöri. Hyljið aftur með viskastykki og leyf- ið bollunum að hefast aftur í um 45 mínútur. Hitið ofninn á meðan í 180°C. Stingið bollunum inn í ofn eftir þessi þrjú korter og bakið í 12-18 mínútur, allt eft- ir stærð bollanna. Ég geri mínar bollur alltaf í stærri kantinum og fæ því 8-10 boll- ur úr þessari uppskrift. Ef þið viljið gera bollurnar sætari er um að gera að sáldra smá flórsykri yfir þær. Þær verða líka extra fallegar þannig! Bestu brauðbollur í heimi Það er bara eitthvað við Kinder Bueno sem gerir það að verkum að það er einstaklega erfitt að hætta að slafra því í sig þegar maður byrjar. Því fannst mér tilvalið að búa til Kind- er Bueno-bollakökur sem eru stútfullar af þessu ávanabindandi súkkulaði. Þessar verðið þið að prófa. Ofureinfaldar, góm- sætar, ómótstæðilegar og undurfagrar. Getur maður beðið um meira? Bollakökur Um það bil 12 dásemdar- hnoðrar 175 g mjúkt smjör 3⁄4 bolli ljós púðursykur 3 stór egg 11⁄8 bolli hveiti 1 tsk. vanilludropar 1 msk. Nutella 2-3 msk. mjólk 100 g Kinder Bueno, mulið Hitið ofninn í 170°C og takið til múffuform. Blandið smjöri og púðursykri mjög vel saman og bætið því næst eggjum, hveiti, vanillu- dropum og Nutella vel sam- an við. Ef deigið er of þykkt er hægt að bæta smá mjólk saman við. Blandið Kinder Bueno varlega saman við með sleif eða sleikju. Deilið á milli múffuforma og bakið í 18-20 mínútur. Leyfið kökunum að kólna. Krem 150 g mjúkt smjör 2½ bolli flórsykur 100 g Kinder Bueno, mulið (plús meira til að skreyta með) 1-2 msk. mjólk Þeytið smjörið í 3-4 mín- útur og blandið því næst flórsykrinum saman við. Blandið mjólkinni saman við þar til þykktin á kreminu er ásættanleg. Blandið Kinder Bueno varlega saman við með sleif eða sleikju og skreytið kök- urnar. Þessar eiga eftir að hverfa fljótt! Sjaldan er eitt Kinder Bueno stakt Konfektið Ferrero Rocher er nánast aldrei til á mínu heimili og það er mjög ein- föld ástæða fyrir því: Það hverfur á svipstundu! Þann- ig að ég ákvað bara að búa það til sjálf og sjá hvernig heimilisfólkinu líkaði við það. Í stuttu máli: Það elsk- aði Ferrero Rocher-ið mitt! Ferrero Rocher 1 bolli mulið ískex (helst með súkkulaðifyllingu) 1 bolli saxaðar heslihnetur ½-3⁄4 bolli mjúkt Nutella 1⁄3 bolli brætt dökkt súkkulaði ½ tsk. brætt smjör 1⁄3 bolli saxaðar heslihnetur Blandið ískexi, 1 bolla af helsihnetum og Nutella vel saman í skál. Blandan á að vera klístruð. Geymið blönd- una í ísskáp í 30 mínútur og leyfið henni að jafna sig. Búið til litlar kúlur úr blöndunni og raðið á smjör- pappírsklæddan disk. Setjið þær inn í frysti og bíðið í 15 mínútur. Bræðið dökka súkkulaðið og smjörið saman í örbylgju- ofni í þrjátíu sekúndur í senn. Hrærið alltaf á milli hverra þrjátíu sekúndna. Bætið heslihnetunum út í. Veltið frosnum kúlunum upp úr súkkulaðiblöndunni og setjið á smjörpappír á meðan þær storkna. Þetta er lítil uppskrift en það er lítið mál að tvöfalda eða þrefalda hana. Þessar er líka gott að fyrsta svo mað- ur hafi alltaf smá kruðerí við höndina til að gúffa í sig! Heslihnetur og Nutella Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is Lilja segir að bókin sé eitt risa gæluverkefni og hún hafi lagt allt í sölurnar til að láta drauminn rætast. „Síðan ég man eftir mér hef- ur mig dreymt um að vera rithöfundur og þó að þessi bók sé auðvitað ekki gasalega spenn- andi skáldsaga með rómantísku ívafi og drungalegum undirtón sem ég hafði hugsað mér, þá er þetta nú samt sem áður bók sem ég er mjög stolt af og er fáránlega ánægð að hafa búið til.“ „Svo er það barasta mín skoðun að það vanti meiri bakstur í heiminn fyrir sæt- indaperrana og kolvetna- klikkhausana – eins og mig. Bakstur kætir, bætir og hressir, en ég held að fólk forðist það oft eins og heitan eldinn út af því að það er sífellt verið að tala um að bakstur sé svo mikil vísindi og þurfi að mæla allt í öreindir og þar fram eftir götunum. Fyrir mér er bakstur fyrst og fremst dásamleg leið til að fá útrás fyrir sköpunargleðina og skemmta mér. Og hvað um það þó að eitthvað klúðrist? Baksturslögreglan hefur í nægu að snúast að eltast við krimma sem strá chia-fræjum og hörflögum yfir allt þannig að þú þarft engar áhyggjur að hafa. Og af minni reynslu þá er bakstur nánast aldrei óætur þótt hann líti ekki út eins og maður reiknaði með – svona ef það er einhver huggun. Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera með smá smjörkremi …“ Bókin ætluð þeim sem þrá alvöru kolvetnavímu „Bókin er ætluð öllum þeim sem vilja fá smá útrás í eldhúsinu. Öllum sem elska sykur og hveiti, svo ég tala nú ekki um smjör og rjóma. Öllum sem eru óhræddir við að prófa sig áfram og gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Öll- um sem þrá lit, líf, gleði, kolvetnavímu og syk- ursjokk í líf sitt. Ég myndi segja að uppskrift- irnar væru í léttari kantinum, þó að það poppi ein og ein uppskrift upp sem þarfnast smá extra umhyggju og tíma. Ég hef hins vegar, síðan ég opnaði blaka.is, reynt að einblína á að uppskriftir séu einfaldar og fyrir alla, þannig að ég ákvað að hafa einn kafla í bókinni undir gúmmulaði sem þarf bara alls ekkert að baka. Þannig er bókin bæði fyrir þá sem hræðast bakaraofninn og sem elska hann. Ég geri þetta líka svo börn á öllum aldri geti tekið þátt í bakstrinum, en að fenginni reynslu hafa börn ofboðslega gaman af því og búa að leyndar- dómum eldhússins alla ævi.“ Lífshættulegar uppskriftir „Ég mæli ekkert sérstaklega með því að fólk baki allt upp úr bókinni í einum rykk og gúffi því síðan öllu í sig á nokkrum klukkutímum. Það gæti þýtt heimsókn á spítala og jafnvel þróun á einhvers konar lífsstílstengdum sjúk- dómum. Allt er gott í hófi, og þótt það sé of- boðslega gaman að baka alla daga er það visst hættumerki þegar það er snúður í morgunmat, bollakaka í hádeginu og marengs í kvöldmat. Nei, ég hef sko aldrei bryddað upp á þessum matseðli heima hjá mér! Ég bara segi svona …“ Aðspurð hver uppáhaldsuppskrift hennar sé verður fátt um svör enda fáránlega flókin spurning. „Þetta er ein af þessum ómögulegu spurningum eins og: Hvort elskar þú meira – maka eða börn? eða Hvort ætti ég að hafa súkkulaði- eða karamellukrem á svampbotn- inum? En ef einhver myndi hóta því að taka handþeytarann og hveitið af mér ef ég myndi ekki svara þessari spurningu þá yrði ég að segja heimagerða Twix-ið. Það ætti í raun að vera ólöglegt. Ég er með heilan kafla í bókinni þar sem ég heimageri heimsfrægt nammi og sá kafli einn og sér sá til þess að ég þyngdist um sirka fimm kíló, plús mínus 7 kíló.“ Lilja segir að bókin fari í sölu innan skamms og hægt verði að fá hana í versluninni Kjólar & konfekt í miðbæ Reykjavíkur þar sem hún verði einmitt með útgáfuteiti 6. september og séu allir velkomnir. Eins sé hægt að hafa sam- band við hana í Facebook eða í gegnum matar- bloggið hennar blaka.is. „Bókin var prentuð í afar takmörkuðu upplagi þannig að ég á ekki endalausan lager. Þannig að ef þið, kæru les- endur Morgunblaðsins, lesið þetta viðtal við mig og froðufellið af spenningi þá mæli ég með því að hafa samband við mig fyrr en síðar.“ Bók fyrir kolvetnaklikkhausana og sætindaperrana Morgunblaðið/Sunna Gautadóttir Sykurdrottningin Lilja Katrín Gunnarsdóttir veit fátt skemmtilegra en að baka. Lilja Katrín Gunnarsdóttir er einn afkastamesti og skemmtilegasti bakari þessa lands. Hún fagnar þessa dagana útkomu bókarinnar Minn sykursæti lífsstíll sem er sneisafull af dásamlegum sykurbombum og öðru góðgæti sem er svo girnilegt að það er allt eins líklegt að einhverjar blaðsíður í bókinni verði étnar upp til agna … svo girnilegar eru þær. Á þessum síðustu og verstu tímum sykurfordæm- ingar er nauðsynlegt að einhver haldi uppi vörnum fyrir sætindi og ef þessi bók er ekki nóg til að gleðja hjartað þá veit ég ekki hvað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.