Morgunblaðið - 30.08.2018, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 30.08.2018, Blaðsíða 60
60 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018 ✝ Auður StefaníaSæmundsdóttir fæddist í Reykjavík 5. júní 1949. Hún lést á Landspítalan- um 9. ágúst 2018. Foreldrar henn- ar voru Sæmundur Sigurðsson málara- meistari, f. 28. júlí 1909, d. 1. desem- ber 1996, og Sigríð- ur Þórðardóttir, f. 13. nóvember 1918, d. 3. janúar 2015. Systkini Auðar eru 1) Inga Rúna Sæmundsdóttir, f. 19. september 1931, maki Helgi Hrafn Helgason, f. 16. desember 1928, d. 9. mars 1976, 2) Kol- brún Sæmundsdóttir, f. 8. apríl 1942, maki Björn Árdal, f. 24. janúar 1942, og 3) Sigurður Rúnar Sæmundsson, f. 10. des- ember 1959, maki Nanna Há- konardóttir, f. 26. júní 1971. ur við síld í nokkur sumur. Á síldarplaninu kynntist hún barnsföður sínum sem var fæddur og uppalinn í Neskaup- stað. Bæði fóru þau í Mennta- skólann á Akureyri. Auður út- skrifaðist frá MA árið 1970 og frá handavinnudeild Kenn- araháskóla Íslands 1980. Hún kenndi í Barnaskólanum á Ak- ureyri 1980-1981 og við Lund- arskóla á Akureyri 1981 til 1986, eða þar til hún flutti aftur til Reykjavíkur. Hún bætti við kennaramenntun sína, fyrst í Ósló í Noregi og síðar við Uni- versity of North Carolina (UNC) þar sem hún tók fyrir sérnám í kennslu einhverfra. Eftir að hún flutti heim frá Bandaríkjunum kenndi hún við sérdeild ein- hverfra í Digranesskóla, síðar Álfhólsskóli. Auður tileinkaði líf sitt fjölskyldu sinni, dóttur og barnabörnum, og starfi sem kennari einhverfra barna sinnti hún af einstakri alúð og natni. Auður lauk störfum 2015. Útför Auðar Stefaníu fer fram frá Vídalínskirkju í Garða- bæ í dag, 30. ágúst 2018, og hefst athöfnin klukkan 15. Auður giftist Hermanni Þ. Svein- björnssyni frétta- manni árið 1971 á afmælisdegi Her- manns, 5. mars, hann lést 16. júlí 2003. Auður og Hermann skildu. Þau eignuðust eina dóttur, Katrínu Brynju, f. 5. sept- ember 1971. Hún á þrjá syni, 1) Mána Frey, f. 28. júní 2002, 2) Nóa Baldur, f. 28. september 2007, og 3) Hrafnar Þór, f. 20. febrúar 2010. Faðir þeirra er Auðunn S. Guðmunds- son, f. 17. ágúst 1971. Auður ólst upp í Miðtúni 24 í Reykjavík, gekk í Skóla Ísaks Jónssonar og þaðan lá leið hennar í Laugarnesskóla. Hún á ættir að rekja austur í Norð- fjörð og vann þar sem ungling- Mig langaði ekki að fletta blaðinu með tilkynningunni, sem ég hafði þó sjálf sett sam- an, þar sem stendur að þú sért farin, frá mér og strákunum. Ég sat lengi með blaðið í kjölt- unni, áður en ég taldi í mig kjark. Fletti löturhægt og hjartað barðist um. Það er svo skrítið, að enn lúrði þar ein- hver óútskýranleg þrá eftir að ég myndi ekki finna þig þarna, að þetta væri ekkert annað en ömurlegur draumur. En þarna varstu, með fallega og hlýja brosið þitt og blik í augunum. Við mamma áttum hvor aðra að, skuldlaust, með öllum þeim kostum og göllum sem fylgja því að vera bara við tvær. Nánar mæðgur sem áttum allt okkar í hinni. Saman stóðum við í þeim öldugangi sem lífið gat verið, og já það var á köfl- um heilmikil bræla. Í gegnum það hélt hún þétt í hönd mína og dró okkur báðar á þurrt, stolt og huguð. Hún hafði óbil- andi trú á litlu „truntu sinni“, hvatti mig og ýtti mér út í ótrúlegustu hluti sem ég hefði annars aldrei gert. Þegar ég lít til baka, þá furða ég mig á að hafa ekki áttað mig á því fyrr hversu kjörkuð kona hún var. Hún stóð bein í baki eftir storma- samt hjónaband hennar og pabba og fór tvisvar í fram- haldsnám til útlanda. Eftir nám í North Carolina fann hún sinn farveg með einhverfum nemendum, sem hún elskaði, og gerði hreint ótrúlegustu hluti fyrir! Hún mátti ekkert aumt sjá, elskaði öll dýr og leitaði uppi hvern einasta dýralífsþátt sem hafði verið framleiddur og horfði á, and- aktug og heilluð. Hún var fordómalaus þegar á reyndi og umburðarlyndi hennar gagnvart sínum nán- ustu voru eiginlega engin tak- mörk sett. Ætli æðruleysi sé ekki bara orðið sem lýsir henni hvað best? Fordóma- leysi hennar gerði það að verkum að til hennar leituðu gjarnan þeir sem áttu erfitt og fundu hjá henni bæði skjól og skilning. Mömmu sagði ég allt, og dró ekkert undan, því ég vissi að þar fengi það að hvíla, þótt hún væri ekki alltaf sam- mála mér. Hún hlustaði á mig án þess að dæma, sérstaklega í seinni tíð, þegar hún hafði endanlega gefist upp á að ala mig upp. Þegar ég leitaði eftir ráðum, þá sagði hún mér hvað sér fyndist og hjálpaði mér oft að rata út og breyta rétt. Mamma mín var listamaður. Með dokku af garni tókst henni að prjóna þau fínlegustu ungbarnaföt sem ég hef aug- um litið og fallegu peysurnar á ömmudrengina má telja í tug- um. Ég hef hins vegar aldrei getað fetað í hennar fótspor en gerði nokkrar heiðarlegar til- raunir. Alltaf tókst mér að klúðra einhverju og hún tók kímin við prjónunum mínum, rakti upp, hjálpaði mér, lagaði og leiðbeindi. Rétt eins og í líf- inu, þolinmóð og trygg. Í sameiningu tókst okkur að prjóna hlýja, fallega og heillandi veröld fyrir strákana okkar. Hún og Krummi trítl- uðu yfir til okkar og eftir að hafa knúsað alla og drukkið einn kaffibolla, þá tók hún upp prjónana, svo yfirmáta róleg og athugul. Iðulega kom hún auga á minnstu blæbrigði til- finninga og líðan þriggja dýr- mætra drengja sem hún elsk- aði afar heitt og hlúði að. Já, það var sko yndislega ljúft að prjóna lífið með aðstoð mömmu. Ég get ekki með nokkru móti skilið að ég fái aldrei aft- ur að beygja mig niður að fín- gerðu konunni sem ég var stolt af að geta kallað mömmu, knúsa hana þétt og hlæja í eyrað á henni. Við kvöddumst alltaf eins, með hlýju faðmlagi og enduðum á að skellihlæja að eigin ófyndni. Svo horfði ég á eftir henni og Krumma trítla í rólegheitum og hverfa inn í nóttina. Ég get ekki annað en vonað að þessi sársauki sem núna er nístandi og lamandi í senn, breytist með tímanum í djúpt þakklæti. Auður Stefanía Sæmunds- dóttir var mamma mín. Hún var lágvaxin falleg, fíngerð og hlý, en á sama tíma ógnarstór manneskja. Takk fyrir lífið sem þú gafst mér. Þín heittelskandi dóttir, Katrín Brynja. Elsku amman okkar. Þú varst alltaf góð við okkur og notaðir alltaf blíða rödd. Nenntir endalaust að skutla okkur hingað og þangað. Last fyrir okkur bækur og spilaðir við okkur veiðimann, ólsen-ól- sen og þjóf eins og langamma gerði og svo varstu svo oft hlæjandi. Það verður skrítið að heyra ekki lengur í ykkur Krumma koma inn til að vera með okkur. Passa okkur á meðan mamma er að vinna og borða með okkur og mömmu. Jólin verða sorgleg ef þú ert ekki með okkur. Og það kann enginn að brúna kartöflur eins vel og þú gerðir. Þetta er allt mjög óraun- verulegt og skrítið. Mamma er leið og við söknum þín svo mikið og Krummi líka. En það er gott að hafa hann hjá okkur því þið voruð alltaf saman. Þú tókst hann með þér hvert sem þú fórst og þegar við skoðum myndir af þér, þá er hann líka á öllum myndunum. Liggur þétt upp við þig. Við vitum að Krummi þinn gleymir þér aldrei og alltaf þegar hann fær að ráða hvert við löbbum í göngutúr í hverfinu, þá togar hann okkur heim í Klettásinn ykkar og kíkir þolinmóður inn um gluggann, í leit að þér. Þú vildir láta jarða hann með þér þegar þar að kæmi (sagði mamma okkur), og það kemur að því að þið fáið að hvíla ykk- ur saman. Okkur langar að njóta hans pínulítið lengur, hann er svo frábær, eins og þú. Þegar raunir þjaka mig þróttur andans dvínar þegar ég á aðeins þig einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn, lýstu mér, svo lífsins veg ég finni. Láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli á Uppsölum.) Takk fyrir að vera góð amma, og góð mamma fyrir mömmu okkar. Þú kenndir okkur svo margt, og líka að knúsast. Þínir ömmusnúðar, Hrafnar Þór, Nói Baldur, Máni Freyr og Krummi. Auja var stóra systir mín, en ég kallaði hana alltaf litlu systur vegna þess að hún var sú yngsta af öllum stóru systr- um mínum. En við vorum orð- in meira en systkini, því við vorum svo sannarlega sálu- félagar líka. Við Auja áttum sérlega gott samband okkar á milli og við studdum hvort annað mikið í lífinu síðustu áratugina hennar. Hún var mér mikill stuðningur í erf- iðleikum sem ég gekk í gegn- um og ég reyndi mitt besta í að vera henni stuðningur í hennar veikindum. Ég lít á það sem eitt mitt besta happ í lífinu að fá að kynnast henni svona vel síðustu áratugina okkar saman, en þeir áratugir urðu góðir og innihéldu svona góðar stundir, einfaldlega vegna þess að fyrir þann tíma var þroski minn ekki kominn á það stig að ég kynni að skynja dýptina í gæsku og gæðum Auju. Hún bjó yfir ró og visku sem gott var að leita í og auð- vitað áttum við sem systkini sameiginlegar minningar, sameiginlegan bakgrunn og sameiginlega fjölskyldu sem við gátum oft skemmt okkur yfir að ræða og rifja upp. Það er sárt að missa Auju, en um leið ljúft að minnast hennar. Sigurður Rúnar. Það er sárt að horfa á eftir kærri vinkonu minni og mág- konu sem nú hefur kvatt okk- ur allt of snemma eftir erfið veikindi. Hún Auja var gullmoli. Lít- il, fínleg og lagleg, en skörp og ákveðin kona. Hún gat verið hæglát, hlédræg og sjálfri sér næg. En hún var líka mikill húmoristi með yndislegan dill- andi hlátur sem naut sín með sínu fólki og góðum vinum. Hún var mjög næmur mann- þekkjari og hafði lag á að lesa í fólk. Þessi hæfileiki hennar Auður St. Sæmundsdóttir Allar minningar á einum stað MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 til dagsins í dag. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted Ástkær móðir okkar ELÍN HELGA BLÖNDAL SIGURJÓNSDÓTTIR frá Reykjum, Tungusveit, lést á Heilbrigðisstofnuninni, Sauðárkróki, laugardaginn 18. ágúst. Útför fer fram í Reykjakirkju mánudaginn 3. september klukkan 14. Dagur Torfason Jóhannes Ingi Torfason Kristín Rós Blöndal Unnsteinsdóttir Ingigerður Blöndal Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, BÓEL ÁGÚSTSDÓTTIR frá Svanavatni, lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, þriðjudaginn 21. ágúst. Útförin fer fram frá Voðmúlastaðakapellu, Austur-Landeyjum laugardaginn 1. september, klukkan 14. Viðar Marmundsson Aðalheiður Viðarsdóttir Ottó Ólafur Gunnarsson Bjarki Viðarsson Sigurbjörg Leifsdóttir Guðbjörg Viðarsdóttir Jón G. Valgeirsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sonur okkar, stjúpsonur, bróðir og barnabarn, BIRKIR FANNAR HARÐARSON, lést á krabbameinsdeild Landspítalans miðvikudaginn 22. ágúst. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju á morgun, föstudag 31. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Ljósið, endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda, www.ljosid.is/minningarkort. Hörður Guðjónsson María B. Johnson Jón Axel Ólafsson Jökull Freyr Harðarson Hildigunnur Johnson Rafn F. Johnson Elskuleg eiginkona mín, FANNEY KRISTJÁNSDÓTTIR, lést miðvikudaginn 1. ágúst. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd aðstandenda, Ingólfur Guðnason Ástkær frænka og systir, SVAVA SVEINSÍNA SVEINBJÖRNSDÓTTIR frá Hnausum í Þingi Fellsmúla 2, Reykjavík, lést á Hrafnistu við Brúnaveg fimmtudaginn 23. ágúst. Útförin fer fram frá Þingeyraklausturskirkju í Austur-Húnavatnssýslu laugardaginn 8. september klukkan 14. Fyrir hönd aðstandenda, Ólafur R. Dýrmundsson Jórunn S. Sveinbjörnsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.