Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 62
S
igrún Edda Björnsdóttir
fæddist í Reykjavík 30.8.
1958 og ólst upp í Vestur-
bænum. Hún var í sveit á
sumrin á Merkigili í
Skagafirði og Högnastöðum á Eski-
firði og vann sumarstörf með skóla, í
fiskvinnslu, við afgreiðslustörf og á
Landakotsspítala.
Sigrún Edda gekk í Melaskóla og
Hagaskóla, stundaði nám í MR og
útskrifaðist frá Leiklistarskóla Ís-
lands 1981.
Sigrún Edda hefur leikið hátt í eitt
hundrað hlutverk á leiksviði og þar
af fjölda burðarhlutverka, hefur ver-
ið fastráðin leikkona við Þjóðleik-
húsið og hjá Leikfélagi Reykjavíkur,
auk þess að taka þátt í sýningum Al-
þýðuleikhússins, Leikfélags Íslands
og Íslenska dansflokksins. Meðal
helstu hlutverka hennar má nefna
titilhlutverk í Línu Langsokki, Elínu
Helenu, Ronju ræningjadóttur, Hinu
ljósa mani, Milljarðamærinni, Feg-
urðardrottningunni frá Línakri og
Bólu í samnefndum sjónvarpsþátt-
um. Hún lék Ófelíu í Hamlet, Báru í
Landi míns föður, Steinunni í
Galdra-Lofti, Sonju í Vanja frænda,
Úu í Kristnihaldi undir Jökli, Maju í
Öndvegiskonum og Ljúbu í Kirsu-
berjagarðinum.
Sigrún Edda hefur fengið tilnefn-
ingar til Grímunnar sem leikkona
ársins í aðalhlutverki fyrir Spor-
vagninn Girnd, Milljarðamærina,
Fjölskylduna, Fólkið í kjallaranum,
Gullregn og nú síðast fyrir Kartöflu-
æturnar. Hún hlaut Grímuna fyrir
aðalhlutverk í Degi vonar og auka-
hlutverk í Fólk, staðir og hlutir sem
verið er að sýna í Borgarleikhúsinu.
Hún hefur fengið tilnefningar til
menningarverðlauna DV fyrir aðal-
hlutverk í Stjörnum á morgunhimni,
Fegurðardrottningunni frá Línakri
og Milljarðamærinni og hlaut auk
þess viðurkenningu úr minning-
arsjóði frú Stefaníu Guðmunds-
dóttur.
Sigrún Edda hefur leikið fjölmörg
hlutverk í sjónvarpi, útvarpi og kvik-
myndum, nú síðast í Afanum og sjón-
varpsþáttunum Ófærð, Föngum og
Stellu Blómkvist auk þess að skrifa,
leikstýra og leika í sjónvarpsþátt-
unum um Bólu tröllabarn.
Meðal helstu leikstjórnarverkefna
eru Píkusögur, Ronja ræningja-
dóttir, sem var tilnefnd til Grím-
unnar, Ævintýri í Iðnó, einleikur
sem hún gerði vegna 50 ára leikaf-
mælis móður sinnar, Brúðubíllinn,
sem hún hefur leikstýrt síðastliðin 20
ár, og sjónvarpsþættirnir um Bólu,
sem urðu um 50 talsins Hún hefur
Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona – 60 ára
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Á Austurvelli Sigrún Edda sem fjallkonan síðasta þjóðhátíðardag með fjölskyldu sinni og Ragnari, bróður sínum.
Meðal stóru stjarnanna
Leikkonan Sigrún Edda fer á kost-
um í leikritinu Sporvagninn Girnd.
62 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
Sigurborg Ragnarsdóttir á 70ára afmæli í dag. Hún býr íÅkarp á Skáni sem er lítið
þorp mitt á milli Lundar og
Malmö. Hún er fædd í Gautaborg
og bjó þar fyrstu þrjú árin og en
fluttist síðan heim til Íslands, ólst
upp í Reykjavík og varð stúdent
frá MR 1968. „Þá var hægt að fá
grunnskólaréttindi eftir eitt ár í
Kennaraskólanum og þetta var
síðasti sénsinn til þess svo ég sló
til. Ég ákvað að kenna í Fossvogs-
skólanum af því það var spennandi
tilraunaskóli og var líklega besti
vinnustaður sem ég hef verið á.“
Þar var Sigurborg í tíu ár þar til
hjónin fluttust til Lundúna árið
1979. Þess má einnig geta að
Sigurborg var ein af fyrstu sjón-
varpsþulunum á Ríkissjónvarpinu.
Eiginmaður Sigurborgar, Stef-
án Karlsson, er læknir og fór í
doktorsnám í Lundúnum og Sigurborg lærði diplómu í kennslu. Þau
hafa búið erlendis síðan þá. „Ég er því búin að eiga heima á Íslandi í 28
ár og 42 ár í útlöndum. Við vorum á leiðinni heim eftir Lundúnadvöl-
ina, en þá fékk maðurinn minn spennandi vinnu á National Institutes
of Health í Maryland í Bandaríkjunum. Ég tók meistaragráðu við
George Washington University. Við keyptum hús og vorum þar í 14
ár. Ég vann m.a. í tungumálaskóla utanríkisþjónustu Bandaríkjanna
og í mörg ár á geðdeild stærsta herspítala Bandaríkjanna, Walter
Reed Army Medical Center.“ Síðan kenndi Sigurborg í mesta glæpa-
hverfi Washington DC og mögulega Bandaríkjanna, Anacostia, í þrjú
ár. „Skólinn hafði verið auglýstur sem einkaskóli nálægt Capitol Hill
og ég var spennt fyrir því. Svo þegar ég var á leiðinni á staðinn þá sá
ég að skólinn var handan árinnar. Ég mætti samt og var ráðin á staðn-
um og þetta er erfiðasta starf sem ég hef unnið. Það tók mig mánuð að
kenna krökkunum að sitja í sætunum sínum.“
Fjölskyldan fluttist síðan til Lundar í Svíþjóð þegar Stefán fékk pró-
fessorsstöðu þar. „Ég vann í fjórtán ár við háskólann þar og var með
móttöku sem ég byggði upp fyrir erlenda vísindamenn.“ Sigurborg er
komin á eftirlaun en er formaður listafélagsins við Háskólann í Lundi.
Synir Sigurborgar og Stefáns eru Ragnar Karl verkfræðingur og
býr í San Francisco og Jón Hallur geðlæknir og nýorðinn doktor.
„Maðurinn minn er svolítið sniðugur að koma mér á óvart á afmælis-
daginn minn, en ég hef á tilfinningunni að við séum að fara út að
borða á veitingastað í Malmö.“
Með barnabarni sínu Sigurborg
ásamt Bellu, einu af þremur
barnabörnum hennar.
Kenndi í mesta glæpa-
hverfi Bandaríkjanna
Sigurborg Ragnarsdóttir er sjötug í dag
Demantsbrúðkaup Hjónin Ása Marinósdóttir, ljósmóðir og Sveinn Jónsson,
bóndi og byggingaverktaki, eiga 60 ára brúðkaupsafmæli í dag en þau gengu í
hjónaband 30. ágúst 1958.
Þau hjónin eiga fjögur börn, 11 barnabörn og fjögur barnabarnabörn.
Sveinn og Ása ætla að halda upp á tímamótin með sínum nánustu.
Demantsbrúðkaup hjónanna í Kálfsskinni
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is