Jökull - 01.12.2007, Qupperneq 92
Society report
Jarðfræðafélag Íslands
Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2006
Í stjórn Jarðfræðafélagsins störfuðu Andri Stefáns-
son (formaður), Børge Johannes Wigum (varaform.),
Bjarni Richter (gjaldkeri), Kristín Vogfjörð, Rikke
Petersen (vefstjóri), Steinunn Hauksdóttir og Ingi-
björg Björnsdóttir (ritari). Alls eru nú um 274 félagar
skráðir í félagið.
Störf félagsins voru með hefðbundnum hætti á ár-
inu. Tveir fyrirlestrar voru haldnir á vegum félagsins,
Giovanni Chiodini talaði um kolsýruútstreymi frá eld-
fjöllum og Tómas Jóhannesson á Veðurstofunni hélt
jólaerindi félagsins að þessu sinni. Fyrirlestrahald fé-
lagsins hefur minnkað stórum, einkum vegna mikils
framboðs fyrirlestra á vegum stofnana og er þetta vís-
bending um mikla grósku í faginu.
Vorfundur félagsins var haldinn 19. apríl í Öskju,
Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Fundinn sóttu um
85 félagar. Alls voru kynntar niðurstöður 34 verk-
efna með fyrirlestrum og veggspjöldum. Fundurinn
var settur upp í tveimur sölum og tókst í alla staði vel.
Haustferð félagsins var farin laugardaginn 21.
október og var ferðinni heitið að Heklu og nágrenni.
Nánast full rúta lagði af stað og var keyrt sem lá leið
austur fyrir fjall. Fararstjórar voru Haukur Jóhannes-
son og Árni Hjartarson. Þátttakendur voru almennt
ánægðir og fara vinsældir haustferða stöðugt vaxandi
og er það ánægjuefni.
Haustfundur félagsins var haldinn 27. október og
bar heitið: „Landrek og aflögun“. Fundurinn var hald-
inn í Orkugarði. Um var að ræða hálfsdagsfund að
venju. Á fundinn mættu um 68 félagar. Alls voru flutt
9 erindi. Rikke Pedersen hélt tvö erindi um aflögun
jarðskorpu Íslands, tímaskala, ferli ogmælingar og af-
lögun eldfjalla í suðurhluta eystra gosbeltisins. Hall-
dór Geirsson erindi um landrek og kvikuhreyfingar út
frá GPS gögnum og Þóra Árnadóttir hélt erindi um
líkangerð af jarðskorpuhreyfingum á Íslandi. Frey-
steinn Sigmundsson hélt því næst erindi um aflögun
íslenskra eldfjalla með dæmum frá Hengli, Bárðar-
bungu og Gjálp og Páll Einarsson tók dæmi af Gríms-
vötnum, Öskju og Kröflu.
Nefndir
Eftirfarandi nefndir störfuðu á vegum félagsins á ár-
inu 2006. Ritnefnd Jökuls – Fulltrúar félagsins í rit-
nefnd Jökuls eru Áslaug Geirsdóttir, ritstjóri, Karl
Grönvold og Kristján Sæmundsson. Sigurðarsjóður
– Andri Stefánsson (form.), Freysteinn Sigmunds-
son og Kristín Vogfjörð. Sigurðarmedalía – Frey-
steinn Sigmundsson (form.), Andri Stefánsson og
Olgeir Sigmarsson. Orðanefnd – Haukur Jóhann-
esson (form.), Freysteinn Sigurðsson og Sigurður
Sveinn Jónsson. Siðanefnd – Steinunn Hauksdóttir
(form.), Helgi Torfason, Kristján Ágústsson og Þor-
valdur Þórðarson. IUGS (nefnd skipuð af umhverfis-
ráðherra) – Andri Stefánsson fyrir hönd Jarðfræðafél-
ags Íslands.
Andri Stefánsson
90 JÖKULL No. 57