Jökull - 01.12.2007, Blaðsíða 114
Magnús T. Guðmundsson
Endurskoðendur félagsins voru Elías B. Elíasson og
Árni Kjartansson.
Alexander Ingimarsson sá um félagaskrá og var að
auki umsjónarmaður húsnæðis í Mörkinni 6. Steinunn
Jakobsdóttir sá um erlenda áskrift Jökuls.
FÉLAGATAL
Skráðir félagar er nú 512. Heiðursfélagar eru 13, al-
mennir félagar 520, fjölskyldufélagar 10, fyrirtæki og
stofnanir 42 og námsmenn 20. Bréfafélagar eru um
50 auk þess sem Jökull er sendur sjö fjölmiðlum og
erlendir áskrifendur eru rúmlega 60. Nokkur fjölg-
un hefur orðið á árinu. Á aðalfundi var Sveinbjörn
Björnsson einróma kjörinn heiðursfélagi JÖRFÍ. Á
haustfundinum í október var honum afhent skrautritað
skjal og jöklastjarna.
FJÁRMÁL
Fjárhagur félagsins er viðunandi og fjárhagsstaðan
traust. Allan vara þarf þó að hafa í fjármálum og gæta
þess að kostnaði sé haldið í skefjum. Galdkeri mun
kynna reikninga ársins hér á eftir.
RANNSÓKNIR
Rannsóknir sem félagið kom að fóru einkum fram í
vorferð á Vatnajökul, síðsumarferð í Grímsvötn og í
sporðamælingum félagsmanna. Að auki studdi félag-
ið beint og óbeint við fleiri verkefni.
Vorferðin
Vorferðin er eitt viðamesta verkefni félagsins og
er ásamt sporðamælingunum stærsta beina framlag
JÖRFÍ til vísindarannsókna á Íslandi. Ferðin nú var sú
54. í röðinni. Mælingaverkefni ferðarinnar gengu flest
vel en skálaviðhald síður þar sem varla náði á þorna
nægilega til að hægt væri að bera á húsin hina nauð-
synlegu fúavörn (Ath: Hér er sleppt upptalningu verk-
efna enda eru þau rakin í sérstakri skýrslu um vorferð
2006 í Jökli).
Þátttakendur í þessari vorferð voru 24 en til við-
bótar var tvennt með fyrri helgina og þrjú urðu sam-
ferða Skaftárkatlaförum úr Reykjavík og bættust í
hópinn á miðvikudeginum. Auk snjóbíls HSSR voru
Ford bíll JÖRFÍ og fleiri bílar með í för auk véls-
leða. Fararstjóri var Magnús Tumi Guðmundsson en
Sjöfn Sigsteinsdóttir sá um matarbirgðir. Þessi nöfn
eru gömul og kunnugleg en sem betur fer var nú meira
af ungu og kraftmiklu fólki en oft áður og heldur sú
þróun vonandi áfram á næstu árum.
Eins og verið hefur um langan aldur lagði Lands-
virkjun fram mikilvægan skerf til þessarar ferðar með
því að leggja til farartæki til þungaflutninga. Einnig
studdi Vegagerðin ferðina með styrk til eldsneytis-
kaupa.
Borun í Vestari Skaftárketil
Vorferðin flutti búnað upp í Vestari Skaftárketil en þar
vann síðan hópur undir forystu Þorsteins Þorsteins-
sonar og Tómasar Jóhannessonar við að bora í gegn-
um ísinn niður í lónið undir katlinum. Verkið gekk
brösuglega framan af en borhópurinn dvaldi við ketil-
inn í heila viku. Undir lokin tókst að bora gegnum
jökulinn, taka sýni úr vatninu og koma þar fyrir ýms-
um síritandi mælitækjum. Tækin mældu hita og þrýst-
ing allt sumarið og fengust merk gögn um ástand í
lóni af þessu tagi. Þessar mælingar munu varpa nýju
ljósi á hegðun Skaftárhlaupa og jarðhitasvæðið undir
kötlunum. Sami hópur mun taka þátt í næstu vorferð
og reyna að vinna samskonar verk í Eysti katlinum.
Bergur Einarsson, framhaldsnemi í jarðeðlisfræði við
Háskóla Íslands vinnur aðMS-verkefni um rannsókn-
irnar í Skaftárkötlum.
Rannsóknir á Grímsvatnagosinu 2004
Auk vinnu í vorferðinni fór flokkur í Grímsvötn seint
í júlí til rannsókna á gjóskunni úr Grímsvatnagosinu
2004. Nákvæm snið af gjóskunni næst gígnum voru
mæld og sýni tekin til margvíslegra rannsókna á til-
raunastofu. Verkefnið er samvinna fjögurra háskóla
í jafnmörgum löndum en Jarðvísindastofnun Háskól-
ans leiðir það. Hópurinn var í Grímsvötnum í tæpar
tvær vikur. Halldór Ólafsson yngri tók þátt í verkefn-
inu sem sjálfboðaliði á vegum félagsins og félagar úr
skálanefnd fóru snögga ferð uppeftir, unnu að viðhaldi
og tókst einnig að bera fúavörn á öll húsin.
Sporðamælingar
Sporðamælingar voru með líku sniði og undanfarin
ár. Oddur hafði fengið skýrslur um legu jökulsporða
á 46 stöðum nú seinni hluta febrúar. Þessi misserin
hopa flestir jöklar. Mest hefur hopið verið í Gígjökli
112 JÖKULL No. 57