Jökull


Jökull - 01.12.2007, Page 106

Jökull - 01.12.2007, Page 106
Snjórinn var mjúkur og við skildum mannbroddana eftir í tjaldinu, óforsjálni sem okkur iðraði síðar, því að ofar í fellinu var snjórinn svo harður að við urðum að höggva þrep og þá sáum við eftir broddunum. Bún- aður okkar var léttari en um kvöldið áður, því að við höfum skilið allt sem við gátum við okkur losað eftir í tjaldinu. Við fikruðum okkur smám saman ofar og of- ar og skiptumst á að ganga fremstir. Sá fremsti hafði broddstaf góðan og langan. Svartamyrkur hlýtur að hafa verið þegar við lögðum upp frá tjaldinu, þótt eg muni ekkert eftir því, en myrkrið hefur smám saman látið undan síga eftir því sem við komum ofar í fjallið og á morguninn leið. Og þá gerðist það atvik – eða öllu heldur gerðist ekki – sem varð Ólafi efni í hugleiðingu sem birtist í jólablaði Dags á Akureyri nokkrum árum síðar. Eg man ekki hvort hann kallaði frásögnina „Skammt er milli lífs og dauða“ eða eitthvað annað, en þetta hefði verið réttnefni.1 Þegar þetta gerðist – eða öllu heldur gerðist ekki – var Ólafur fremstur með stafinn góða, en eg næstur honum. Ögn var farið að birta, komin þessi svikabirta í snjónum, þar sem manni virðist maður sjá heilmikið frá sér þegar augun eru orðin vön henni, og gerir það á vissan hátt, en sú sjón er ákaflega svikul, meðal ann- ars getur verið erfitt að greina milli þess sem er nálægt og hins sem er fær. Við fikrum okkur áfram og Ólafur beitir stafnum í sífellu til að þreifa fyrir sér. En allt í einu hrekkur hann við: hann þykist horfa á snjóinn fyrir framan sig, en stafurinn grípur í tómt. Við snarstönsum og við nánari athugun kemur í ljós að við erum komnir fram á brún hengiflugs, höfum verið að smánálgast hana og komið skáhallt að henni án þess að verða þess varir. Þetta var þröngur og djúpur dalur í fellið og snjórinn í hlíðunum handan hans féll svo vel saman við þann snjó sem við vorum að troða að okkur virtist þetta væri allt samfelld snjóbreiða í svikabirtunni. Hefði Ólafur stigið feti framar var ekki að sökum að spyrja, eggin var hvöss og snarbrött hinum megin, og langt niður. Þegar upp var komið blasti við okkur stórfeng- legt útsýni til allra átta. Eg man best eftir Herðubreið sem blasti við hnarreist lítið eitt sunnan við austur og Kverkfjöllin sem voru hærri en eg átti von á. Mér er tvennt minnisstæðast frá dvölinni uppi á fellinu: ann- ars vegar norðangjólan, hins vegar hásléttan. Eins og eg er víst búinn að skrifa, hafði veðrið lægt og við höfðum nokkurn veginn logn á uppleið- inni. Fellið er nokkuð slétt að ofan, og þegar upp var komið lentum við í næðingi sem kom að norðan, ekki mjög hvass en jökulkaldur, eg man enn hvernig hann nísti merg og bein. Hitt var það að þegar upp var komið sást landið af öðrum sjónarhóli en venjulega. Eg man svo vel eftir því enn, að þegar horft var til norðausturs, norðurs eða norðvesturs, sást að fjöllin eru yfirleitt jafnhá, þótt það sjáist ekki þegar horft er á þau af láglendi. Greinilega sást að landið er þarna mikil háslétta sem vatn og ís hafa sorfið ótal dali í. Enn hef eg ekkert minnst á tilgang ferðarinnar: leitina að eldstöð. Við höfðum allanga viðdvöl uppi á fellinu, borðuðum nestið okkar í skjóli við vörðu, gengumvíða um og skimuðummikið, einkum til aust- urs og suðausturs. Skýjafar var allmikið, en útsýni þó gott og við sáum nógu vel, austur og um allt og suð- ur til Vatnajökuls, til þess að fullvissa okkur um að hvergi var eldur laus á þessu mikla svæði. Við töldum því líklegast að Mývetningar hefðu villst á eldingum og eldgosi, eða fundum a.m.k. enga sennilegri skýr- ingu.2 Ferðin niður gekk tíðindalaust og við komum á áfangastað niðri í dalnum á undan bílnum frá Akur- eyri. Ef eg man rétt, fór að snjóa daginn eftir og kyngdi niður svo miklum snjó að naumast var fært milli húsa á Akureyri um jólin. Á leiðinni suður Eyjafjörð í bílnum höfðum við verið að gamna okkur við að setja saman vísnahelm- inga handa Ólafi til að botna. En Ólafur var snjall hagyrðingur, svo snjall að honum veittist létt að hafa undan okkur báðum. Milli jóla og nýjárs sátum við svo jólaboð hjá Ólafi suður á Gróðrarstöð, og þangað var Gunnbirni 1Athugasemdir ritstjóra: Frásögn Ólafs birtist einnig í minningabókinni Á tveim jafnfljótum sem Leiftur gaf út 1972. 2Dagana 14.–24. desember 1938 sáust ýmis leiftur og fyrirbæri sem líktust gosmekki úr Mývatnssveit og Bárðardal. Ólafur Jónsson (1945) telur að gos hafi orðið í Kverkfjöllum um þetta leyti, sbr. bls. 318 í bók hans Ódáðahraun II. Engin örugg merki um gos þar eða annars staðar, á þessum tíma, hafa þó fundist. 104 JÖKULL No. 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.