Jökull - 01.12.2007, Page 116
Magnús T. Guðmundsson
Úr haustferðinni, á leið yfir Hófsvað 23. september 2006. Bílarnir eru í nyrstu kvíslinni en hún er grunn lengst
af en dýpkar við norðurbakkann. – Crossing the river Tungnaá at the old ford, Hófsvað, during the autumn trip.
mundsson myndir af ummerkjum um hamfarahlaup
í Markarfljóti. Á haustfundi 17. október flutti okk-
ar nýi heiðursfélagi Sveinbjörn Björnsson erindi um
eðli jarðhitans. Snævarr Guðmundsson átti heiðurinn
að myndasýningunni sem á eftir fylgdi en þar sýndi
hann myndir frá flugi yfir Vatnajökli í ágústmánuði
síðastliðnum. Um 50 manns komu á aðalfund, um 80
á vorfund og 70 á haustfundinn.
ÚTGÁFA JÖKULS
Fimmtugasti og sjötti árgangur Jökuls barst skilvísum
félögum í byrjun þessa mánaðar. Ritið er 104 bls. með
fjórum ritrýndum fræðigreinum og 25 bls. af félags-
efni og öðrum greinum. Jökli barst góður liðsauki á
árinu þar sem er Snævarr Guðmundsson, nýr ritstjóri
íslensks efnis. Fagritstjórarnir Bryndís Brandsdóttir
og Áslaug Geirsdóttir báru sem fyrr hitann og þung-
ann af fræðilega efninu eins og áður, en ritnefndar-
menn eru þeim til ráðuneytis og aðstoðar.
FRÉTTABRÉF OG VEFSÍÐA
Fimm fréttabréf komu út á árinu, nr. 101–105. Stór
hluti félagsmanna fær tilkynningu um bréfið í tölvu-
pósti og getur síðan lesið það á vefsíðunni. Enn er þó
allstór hópur sem fær fjölritaða útgáfu senda í pósti.
Vefútgáfan er nokkuð veglegri, því þar er hægt að hafa
ljósmyndir og gröf ef vill. Eins og fram kom áðan
tók Valgerður Jóhannsdóttir við fréttabréfinu af Sverri
Elefsen sem ritstýrði því af myndarskap í nokkur ár.
Vefsíðan líður nokkuð fyrir það að ekki hefur fengist
til hennar umsjónarmaður. Á síðunni er þó margvís-
legur fróðleikur, öll fréttabréf síðustu 6 ára og margt
fleira.
SKEMMTIFERÐIR
Farnar voru tvær vel heppnaðar skemmtiferðir á árinu.
Fyrri ferðin var 1.–2. júlí. Þá var haldið um Fljóts-
hlíð inn meðMarkarfljóti og skoðuð ummerki um þau
miklu hamfarahlaup sem þar flæddu yfir og mótuðu
114 JÖKULL No. 57