Jökull - 01.01.2009, Page 138
Magnús T. Guðmundsson
Ritstjóri fréttabréfs var Valgerður Jóhannsdóttir.
Alexander Ingimarsson var umsjónarmaður félaga-
skrár auk þess að sjá um húsnæðið í Mörkinni 6.
Björn Oddsson sá um erlenda áskrift Jökuls.
FÉLAGATAL
Skráðir félagar er nú 521. Heiðursfélagar er 11, al-
mennir félagar 436, fjölskyldufélagar 7, fyrirtæki og
stofnanir 43 og námsmenn 26. Einnig eru um 50
bréfafélagar auk þess sem Jökull er sendur 7 fjölmiðl-
um og erlendir áskrifendur eru rúmlega 60.
Jón Sveinsson, heiðursfélagi JÖRFÍ lést á árinu Á
aðalfundi var Sveinbjörn Björnsson einróma kjörinn
heiðursfélagi JÖRFÍ. Á haustfundinum í október var
honum afhent skrautritað skjal því til staðfestingar, en
á fundinum flutti hann erindi um jarðhitann á Íslandi.
RANNSÓKNIR
Þótt sporðamælingar og vorferð á Vatnajökul séu
hornsteinar rannsóknastarfs félagsins, vex fjölbreytni
verkefna heldur með árunum. Á árinu 2007 stóð fé-
lagið fyrir afkomumælingaferð á Mýrdalsjökul, síð-
sumarsferð í Grímsvötn og stuðlaði beint eða óbeint
að ýmsum verkefnum.
Afkomumælingar á Mýrdalsjökli
Farin var ferð til afkomumælinga á Mýrdalsjökli
fyrstu helgina í maí. Ferðin var í umsjá yngri deildar-
innar sem er fólk um eða undir þrítugu. Ferðin tókst
mjög vel og náðist mæling á þremur stöðum, eins og í
ágætri ferð félagsins vorið 2001. Komið var fyrir stik-
um, þeirra vitjað síðastliðið haust og sumarafkoman
metin. Niðurstöður falla að fyrra mati, að Mýrdals-
jökull sunnanverður sé álíka úrkomusamur og Öræfa-
jökull, og að þetta séu þeir staðir þar sem úrkoma er
mest á landinu. Vonast er til þess að þessar mæling-
ar verði fastur liður í starfi félagsins enda er jökullinn
utan þess svæðis þar sem orkufyrirtæki hafa kostað
afkomumælingar.
Vorferðin
Vorferð var farin 2.–11. júní. Þátttakendur voru 24,
fimm til viðbótar voru fyrri helgina og að auki var sex
manna hópur við rannsóknir í Eystri Skaftárkatli eins
og vikið verður að hér á eftir. Snjóbíll HSSR sá um
þungaflutninga en önnur farartæki voru Ford JÖRFÍ,
nokkrir jeppar og vélsleðar. Vorferðin nýtur stuðnings
Landsvirkjunar og Vegagerðarinnar en einnig er mik-
ils vert framlag sjálfboðaliða JÖRFÍ sem leggja gjörva
hönd á plóg í öllum verkefnum ferðarinnar.
Í tilefni af 50 ára afmæli Grímsvatnaskála var
ákveðið að efna til stuttrar afmælisferðar í lok vorferð-
ar. Í ferðinni tóku þátt nokkrir þeirra sem byggðu hús-
ið og voru í forystu í ferðum félagsins á 6. áratugnum
og lengi síðan. Þessi ferð tóks með afbrigðum vel en
nánar er frá henni er greint í pistli um vorferð 2007 í
Jökli.
Borun í Eystri Skaftárketil
Einn þáttur vorferðar sem hér er sérstaklega tekinn
fyrir, voru boranir með heitavatnsbor í gegnum jök-
ulinn í Eystri Skaftárkatli. Borhópurinn var sá sami
og árið 2006 boraði niður í Vestari ketilinn. Vinnan
þá gekk heldur brösulega en nú gekk allt að óskum
og tókst þeim bormönnum að fara í gegnum ísinn á
þremur stöðum, safna miklu af vatns- og efnasýnum
og gera ýtarlegar mælingar á vatnshita. Þrýstiskynjari
var skilinn eftir í katlinum og eftir því sem ég best veit
gengur hann enn og skráir hækkandi vatnshæð ketils-
ins. Mælingar þessar munu auka mjög skilning á jarð-
hitasvæðunum undir kötlunum og eðli jökulhlaupa frá
þeim. Hópurinn er undir forystu Þorsteins Þorsteins-
sonar og Tómasar Jóhannessonar en fleiri koma að
verkefninu, m.a. sérfræðingar frá Bandaríkjunum.
Rannsóknir á Grímsvatnagosinu 2004
Seinni hluta júlímánuðar var lítill hópur jarðfræðinga
frá Háskólanum í Edinborg og Háskóla Íslands við
kortlagningu og greiningu gjóskulagasniða frá gos-
inu 2004. Verkefnið er samvinna fjögurra háskóla í
jafnmörgumlöndum en JarðvísindastofnunHáskólans
leiðir það. Nokkrir sjálfboðaliðar JÖRFÍ tóku þátt í
ferðinni seinni vikuna af tveimur og báru á öll hús á
fjallinu. Ferðin var því öðrum þræðin skálavinnuferð.
Er það mjög æskilegt þegar hægt er að sameinast um
ferðir eins og þessar.
Sporðamælingar
Sporðamælingar eru í blóma enda áhugi á vibrögðum
jökla við hlýnandi veðurfari mikill nú á tímum gróður-
húsaáhrifa og loftslagsbreytinga. Í febrúar höfðuOddi
borist skýrslur um stöðuna á 47 mælistöðvum. Hop
138 JÖKULL No. 59, 2009