Breiðfirðingur - 01.04.1964, Page 41
BREIÐFIRÐINGUR
39
ur, svo að kunnugt væri. Þess vegna voru allar ófarir Jóns
fcýslumanns og snjóflóðið talið vottur um reiði álfa og
landvætta, sem áttu að hafa tekið þátt í gleðinni. Og það
sögðu þeir, sem skyggnir voru, að ekki hefðu færri ósýni-
legir en sýnilegir tekið í henni sinn þátt, og þeim var svo
kennt um alla óhamingjuna.
Önnur ölclin.
Gleðifólk gistir ekki lengur að Jörfa. Tími vikivakanna
er liðinn með allri sinni jólagleði. Jörfagleði tuttugustu
aldarinnar ber annan svip en skemmtanir horfinna kyn-
slóða.
En enn dregur að jólum, og enn látum við hugann reika
í skammdeginu. Eg veit ekki, livers vegna mér varð hugs-
að vestur í Dali fremur en austur í land. En það er seið-
ur í orðinu Jörfagleði. Við það eru tengdir tregablandn-
ir og glettnir örlagaþræðir, sem ekki verða lengur raktir
á réttan hátt af því að þeir, sem þeir spunnust um, eru
löngu horfnir undir græna torfu. En íorvitnin lifir góðu
lífi og kyndir undir ímyndunaraflinu og hvað bezt, ef
við vitum, að gátan verður aldrei ráðin.
Hjörtur Pálsson.