Breiðfirðingur - 01.04.1985, Side 32
30
BREIÐFIRÐINGUR
Við fluttum hingað í Grundarfjörð árið 1948 en ég var búinn
að vinna hér áður á þremur vertíðum, eða frá 1945. Við
fluttum frá Látravík hingað í þorpið.
Mér verður oft hugsað til þeirra gífurlegu breytinga, er
orðið hafa hér í Grundarfirði frá því ég man fyrst eftir
staðnum. Það mun hafa verið nokkru fyrir síðustu aldamót,
eða um 1897, sem löggilti verslunarstaðurinn, er verið hafði á
Grundarkampi, var fluttur í Grafarnes, er svo var nefnt þá.
Útgerð hefur verið hérna frá staðnum að kalla má alla þessa
öld. Jóhannes Jónsson byrjar að byggja svonefnd Neshús
1906. Byggði hann einnig svokallaðan „Skans1’ í fjörunni til að
auðvelda fisklöndun. Ýmsir stóðu að útgerð héðan um þetta
leyti. svo sem áðurnefndur Jóhannes Jónsson, Jónas Ólafsson
og fleiri aðilar.
Á árunum 1928-1933 eru byggð hér nokkur hús, s. s. Götu-
hús. Fagurhóll, Sólvellir og Lengja. Árið 1931-32 er stórt
timburhús flutt frá Kvíabryggju í Grafarnes. Áður hafði það
verið á Grundarkampi. Hús þetta var nefnt hér áður Svarti-
skáli eða Svartiskóli. Fyrir löngu síðan hafði þetta hús verið
fluttfrá Revkjavík. Þarhafði þaðm. a. gegnt því veglega hlut-
verki að vera dómshús Jörundar hundadagakonungs. Petta
sögufræga hús brann til grunna 1952. Upp úr 1940 hefst mikil
þéttbýlismyndun í Grundarfirði. - Með byggingu hafnar
mannvirkjanna fyrstu í kringum 1940 og stofnun hraðtrysti-
hússins var grundvöllur lagður að verulegri fólksfjölgun í
þorpinu. - Á Kvíabryggju hafði veriö nokkurt þéttbýli á fyrri
hluta aldarinnar. Á fáum misserum mun hafa flust um 30-40
manns frá Kvíabryggju hingað í þorpið auk þess, sem fólk
flutti hingað annars staðar frá úr sveitinni.
Fyrstu húsin voru aðallega byggð við tvær götur, þ. e.
Grundargötu og Nesveg. - Húsið Sólvellir, byggt um 1931,
mun hafa verið fyrsta steinhusið hér. Þar bjuggu hjon frá
Hnífsdal. Maðurinn hét Sigurður Forsteinsson og setti hann
upp verslun um skeið. Flesta íbúa mun svonefnt Flateyjarhús
hafa haft, eða um 16 manns. Par bjuggu hjón, sem komu
vestan úr Flatey og dró húsið nafn af þeim hjónum.