Breiðfirðingur - 01.04.1995, Page 101
BENEDIKT GABRÍEL
99
Anna í Vigur, sem Benedikt var sóttur til, var kona Sigmundar Erlings-
sonar er þar bjó, en hún var dóttir Ebenezers Þorsteinssonar sýslu-
manns. Systir hennar var Ingibjörg kona Kristjáns Skúlasonar Magnu-
sens kammeráðs á Skarði á Skarðsströnd. Gunnlaugur Blöndal sem hér
er nejhdur var sýslumaður Barðstrendinga til 1879. Hann var sonur
Björns Blöndals sýslumanns Húnvetninga. Systur Benedikts eru sam-
kvœmt fyrrnefndu niðjatali Ragnhildur Ingibjörg Jónsdóttir gift Jóni
Sigurðssyni söðlasmið á Isafirði. Hin systir Benedikts var Guðrún og var
þegar þetta var gift seinni manni sínum Jóni Sœmundssyni og bjuggu
þau líklega þegar hér var komið líka á Isafirði.
Felli í Tálknaf. 26. Okt. 1877
Elskuleg dóttir góð!
Eg þakka þér hjartanlega fyrir síðast. Ennþá hef eg ekkert bréf
frá þér fengið en til þess frétti eg hér um daginn þegar eg var á
ísafirði. Eg var nefnilega núna fyrir 3ur vikum sóktur aptur til
Önnu í Vigur, sem liggur mjög þungt; þá fann eg allar systur
mínar heilar á húfi, og er eg nýkominn þaðan. Eg gat í sumar
ekki farið með Díönu, enda þorði naumast að leggja það upp
með eins mikið brothætt dót og eg varð að hafa með; bjó eg
mig því út að sunnan til vetursetu hér með hægð og spekt, og
fór 1. sept. frá Ormsstöðum sjóveg yfir Breiðafjörð og vestur
á Hjarðames til Gunnl(augs) Bl(öndals) og þaðan landveg
híngað. Hér hefir mér liðið ágætlega síðan híngað kom og
kann vel við mig. Eg bið hjartanlega að heilsa móður þinni og
stjúpa og segðu honum að eg muni reyna allt hvað eg get til
að enda orð mín og senda honum 100 krónur hið fyrsta eg
geti.
Sumarið hefir, eins og þér að nokkru leyti er kunnugt, gengið
í kostnaðarsöm ferðalög, en nú vona eg heldur að geta dregið
saman nokkra skildínga í vetur, með því að sitja heima og kosta
minna til nema meðulonum sem eg varð að borga í haust með
200 kr. sem fast var gengið eptir, er því nú afgangurinn hjá mér
einsog þú getur nærri harla lítill undan sumri.
Það gleður mig að heyra að mamma þín sé nú búin að
eignast hús, kann ske að eg eignist hús líka áður lángt um líð-