Breiðfirðingur - 01.04.2009, Blaðsíða 56
54
BREIÐFIRÐINGUR
Hann er fulltrúi hreppsins í sýslunefndinni strax árið 1883 og
síðan í mörg ár.
Séra Árni Þórarinsson getur Lárusar í ævisögu sinni. Þeir
sátu marga sýslufundi saman. Séra Árni segir að Lárus hafi
talað oft og vel á sýslufundum og komið með ýmsar þarfar
uppástungur og að tillögur hans hafi verið samþykktar.
Ein af þessum tilögum Lárusar var tillaga hans á sýslufundi
vorið 1891 um að nefndin beitti sér fyrir stofnun sparisjóðs.
Eftir fundarslit reis Lárus Skúlason, sýslunefndarmaður Nes-
hrepps utan Ennis úr sæti sínu og reifaði og bar fram þetta
málefni er fékk mjög góðar undirtektir allrar sýslunefndarinnar.
Þessi háttur að rísa úr sæti eftir slit sýslufundar, hefur trúlega
verið undirbúinn, leyfi sýslumanns og yfirlýstur stuðningur
hans við málefnið hefur sjálfsagt verið fyrir hendi.
Sýslumaðurinn sem var Sigurður Jónsson, boðaði svo til
aukafundar í nefndinni 9. október um haustið, og var stofnun
sparisjóðs eina málið. Á fundinum var samþykkt að stofna
Sparisjóð í Stykkishólmi og samþykktar greinargóðar sam-
þykktir. Ákveðið var að sparisjóðurinnskylditaka til starfa 1.
janúar 1892. Það er sérstaklega fram tekið í fundargerð sýslu-
nefndarinnar að Láms Skúlason, sýslunefndarmaður úr Nes-
hreppi utan Ennis, hafi á þeim tíma sem fundur þessi var
haldinn, verið að vinna að stofnun sparisjóðs í Olafsvík og því
ekki getað mætt á fundinn. Fyrstu fundargerðir Sparisjóðs
Ólafsvíkur munu vera glataðar. Frekari upplýsingar um þátt
Lámsar í stofnum þess sparisjóðs liggja því ekki fyrir. Líklegt
er þó að sá maður sem tók að sér að gera tillögu um stofnun
sparisjóðs í Stykkishólmi hafi líka haft fomstu í slíku máli
nærri heimabyggð sinni. Lárus var ábyrgðarmaður Sparisjóðs
Stykkishólms frá stofnun sjóðsins til ársins 1918.
Árið 1888, 5. september var Ingjaldshólskirkja afhent
söfnuði kirkjunnar til fjárhalds og umsjónar, samkvæmt
tilskpun þar um. Rekstur og umsjón kirkjunnar hafði til þess