Breiðfirðingur - 01.04.2009, Blaðsíða 90
88
BREIÐFIRÐTNGUR
af hendi þannig að skipulagning þeirra viðburða sem eru á veg-
um stjómar hefur ekki lent á einni hendi.
Gefin voru út sex fréttabréf til félagsmanna. Þar sem sam-
komur og önnur starfsemi félagsins var kynnt.
Fyrsta september síðastliðinn var síðan hleypt af stokkunum
heimasíðu fyrir félagið á Internetinu www.bf.is og er þar að
finna dagskrá félagsins og allt annað sem á döfinni er hjá fé-
laginu og deildum þess. Stefnan er einnig sú að sagt verði frá
þeim viðburðum sem fram hafa farið og sýndar myndir af þeim.
Þannig að þeir félagsmenn og velunnarar sem ekki hafa tök á
því að sækja atburðina geti engu að síður fengið fréttir af því
sem fram fór. Dagskráin þetta starfsárið hefur verið í nokkuð
föstum farvegi, þ.e.
Vetrarfagnaður í upphafi vetrar, jólaball fyrir börn á öllum
aldri, árshátíð á Þorra, Góugleði verður í mars og sumarfagn-
aður í byrjun sumars.
Aðsókn að almennum dansleikjum félagsins mætti vera
meiri en verið hefur sl. ár. Arshátíðin var vel sótt eins og und-
anfarin ár en þar var fréttamaðurinn Gísli Einarsson veislu-
stjóri og Hljómsveitin Miðaldamenn lék fyrir dansi.
Félagsvist er að vanda spiluð annan hvern sunnudag og var
aðsóknin góð í haust, en fyrst eftir jólin dalaði hún heldur.
Skemmtinefnd stóð fyrir námskeiði í línudönsum í haust og
gekk það svo vel að haldið var áfram með kennslu í línudöns-
um eftir jólin en einnig er námskeið í samkvæmis dönsum nú á
vorönn.
í afmælisvikunni var hagyrðingakvöld undir stjórn Ragnars
Inga Aðalsteinssonar. Þar mættu til leiks bæði eldri og yngri
hagyrðingar, en þetta voru Dofri Hermannsson, Hlér Guðjóns-
son, Hlíf Kristjánsdóttir, Kristján Jóhann Jónsson, Þórður
Helgason og Sveinn Kristinsson.
í afmælisvikunni var einnig farið í gönguferð um Öskjuhlíð-
ina og leiddi Ingibjörg Guðmundsdóttir, fyrrverandi formaður,
gönguhópinn og endaði hún með hann í kaffi heima hjá sér í