Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 3

Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 3
AJámstefna Þann 6. apríl stóðu Samtök um sorg og sorgarviðbrögð í Reykjavík fyrir námstefnu um málefni syrgjenda í Safnaðarheimili Bústaðakirkju. Efni námstefnunnar var byggt á óskum syrgjenda um málefni, sem þeim þóttu mikil væg í sínum aðstæðum. Dagskrá námstefnunnar var sem hér segir: Kl. 9:30 Húsið opnað. Skráning. Kaffi. 10:00 Setning námstefnunnar. Kynning. 10:15 „Dánarorsakir". Fyrirlesari: Jóhannes Björnsson, læknir. 10:45 „Tilkynning andláts". Fyrirlesarar: Gylfi Jónsson, lögreglufulltrúi, sr. Birgir Ásgeirsson. 11:30 „Stuðningur við fólk, sem missir við skyndidauða". Fyrirlesari: sr. Sigfinnur Þorleifsson. 12:00 Matarhlé. 13:15 Jazz: Guðmundur Ingólfsson og félagar. 13:30 „Stuðningur við deyjandi fólk og aðstandendur þeirra". Fyrirlesari: Valgerður Sigurðardóttir, læknir. 14:00 „Afallahjálp og stuðningur við hjálparaðila". Fyrirlesarar: Svanlaug Skúladóttir, hjúkrunarstjóri Slysa- og sjúkravakt Borgarspítalans. Rudolf Adolfsson, geðhjúkrunarfræðingur. 14:45 „Lagaleg staða ekkna og ekkla". Fyrirlesari: Hlöðver Kjartansson, héraðsdómslögmaður. 15:15 Jazz: Guðmundur Ingólfsson og félagar. Kaffi. 16:00 „Sorg barna". Fyrirlesari: sr. Bragi Skúlason. 16:30 „Vinur í sorgarhúsi". Fyrirlesari: Olöf Helga Þór, námsráðgjafi. 17:00 Álmennar umræður. 18:00 Námstefnu slitið. Á milli fyrirlestra komu syrgjendur með innlegg, sem byggð voru á eigin reynslu. Fjöldi þátttakenda var 118 manns. Námstefnustjóri var sr. Bemharður Guðmundsson. Sr. Bragi Skúlason, formaður fræðslunefndar Nýrrar Dögunar samtaka um sorg og sorgarviðbrögð í Reykjavík.

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.