Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 28
AJý TJógun
sér góðan tíma. Eiginlega þann tíma sem
þarf!!!
Mikil vægt er að hafa í huga, að hér er um
losun á ákveðnum tilfinningum að ræða, en
ekki meðferð, sem krefst meiri tíma og
fagþekkingar. Þær tilfinningar og viðbrögð,
sem hér er átt við teljast vera eðlileg viðbrögð
í „ýktu" formi, og eru venjulega ekki talin
sjúkleg. Mikilvægt er, að viðmót og málfar
hjálparaðila undirstriki þetta.
Þessari andlegu skyndihjálp má skipta í
þrjú stig. Þau taka mið af því að hjálpa
viðkomandi til að:
1) Segja frá því sem gerðist.
2) Koma orðum að tilfinningum sínum
og líðan.
3) Sýna tilfinningar sínar og líðan.
Hér er ekki verið að meta eða gagnrýna
það hjálparstarf, sem innt hefur verið af
hendi. Markmiðið er að gefa hverjum og
einum tækifæri til að tjá sig um eigin upp-
lifanir, hugsanir og viðbrögð, sem tengjast
atburðinum. Best er að þetta sé gert í hópi 10
-14 einstaklinga undir ábyrgri stjóm. Tíma-
lengdin er háð kringumstæðum og stærð
hópsins, gjarna 1-2 klukkustundir.
Umgjörðin gæti í grófum dráttum verið
þessi:
1) Upplýsingar um markmið
úrvinnslunnar.
2) Kynning á hópmeðlimum.
3) Hvert var hlutverk hvers einstaks?.
4) Hvaða hugsanir bærðust innra með
hverjum og einum?
5) Hvaða tilfinningar bar hver og einn
innra með sér?
6) Hver voru viðbrögð hans?
7) Hvað tekur við að úrvinnslu lokinni?
8) Samantekt og lok.
Hér gegna stjórnendur hjálparstarfs
mikilvægu hlutverki. Oft þurfa hjálpar-
aðilar, jafnvel óharðnaðir einstaklingar með
takmarkaða reynslu, að mæta óvæntum,
streituvaldandi kringumstæðum. Góð
þjálfun og undirbúningur eru grundvallar-
atriði, en jafnframt er nauðsynlegt að eftir á
gefist tækifæri til að veita útrás hugsunum
og tilfinningum, sem leita á einstaklinginn.
Það er mér ánægjuefni að geta sagt frá því,
að eftir námsstef nuna í september barst stjóm
Slysavarnafélags íslands tillaga frá tveim
fulltrúum þess á námsstefnunni þess efnis
að þjálfaður yrði maður/menn á vegum
félagsins, sem veitt gæti andlega skyndihjálp
og stuðning innan þess. Félagið vildi sjálft
annast þessa þjónustu með stuðningi og
leiðsögn reyndra aðila í byrjun. Fræðslu-
nefnd SVFI mun hafa samþykkt tillöguna,
og ber að hrósa henni fyrir skjót viðbrögð og
framsýni.
Hér hefur verið stiklað á stóru um viða-
mikið efni. En orð eru til alls fyrst og er það
von okkar sem stóðum að námstefnunni í
september '90 að ekki verði látið sitja við
orðin tóm!
s< org er eðiilegi viðb^ögá við missi
Eftir missi fc hvernig við irum syrgjt við í gegnu im er mjög m sorgaríerli, þar sem skiptast á skin og skúr ^ersónubundið. ir. Það,
28