Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 23

Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 23
Döguf'v Svav\\aug Skúladó++i»*y kjúkrunars+jón Slysa- og sjúk»*avak+ &orgarsp(+a\av\s mun verða, hvaða sjúklingar koma inn og í hvernig ásigkomulagi þeir eru. Við reynum alltaf að vera búinn undir það versta. Þeir þættir sem aðallega valda streituhjá starfsfólki erutengdirþessum óvissuþáttum. Kemur einhver mikið slasaður eða mikið veikur sjúklingur inn á vaktinni. Óvissan um eigin hæfni og getu spilar inn í, sérstaklega hjá starfs- fólki sem er nýbyrjað. Það spyr sig spurninga eins og: Hvernig mun ég bregðast við? Mun ég frjósa? Mun ég standa mig eins vel og þörf er á? Allar kringumstæður þegar mikið slasaðir eða veikir sjúklingar koma inn eru streituvaldandi, þetta er ekkert sem maður venst (kannski sem betur fer.) í okkar litla þjóðfélagi eru einnig tals- verðar líkur á því að við þekkjum eitt- hvað til þess sjúklings sem kemur. Það sem ég mun ræða um, er stuðningur við starfsfólk á slysa-og sjúkravakt. Ég mun byrja á að ræða mikilvægi þess að starfsfólk deildarinnar fái skipulagðan stuðning, og síðan mun ég reifa mínar hugmyndir um hvernig æskilegt væri að þessi skipulagði stuðningur færi fram. Á deild eins og slysa- og sjúkravakt Borgarspítalans gerast margir sorglegir atburðir. Starfsfólkið veit aldrei fyrirfram þegar það kemur á vaktina hvernig vaktin 23

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.