Ný Dögun - 01.11.1991, Síða 7

Ný Dögun - 01.11.1991, Síða 7
/s]ý Dögurv Líkrannsókn Hefðinni samkvæmt hafa líkrannsóknir (krufningar) fylgt og verið hluti af meina- fræði. Hér á landi, og reyndar víðast, má skipta líkrannsóknum í tvennt: annars vegar þær sem framkvæmdar eru við svonefnd voveifleg mannslát, þ.e.a.s. þau dauðsföll, sem verða utan sjúkrastofnana. Þessi mál nefnast réttarrannsóknir. Hinn flokkurinn eru þeir, sem deyja á sjúkrahúsum, svo- nefndar sjúkrahússrannsóknir. Ihvorugu tilvikinu er líkrannsókn gerð, nema að fyrir liggi undirrituð beiðni, annars vegar yfir- valds, þegar um réttarmál er að ræða, og hins vegar læknis þess og sérfræðings, sem annaðist hinn látna í hinztu legu. Réttar- rannsókn eru læknar Rannsóknastofu Há- skólans lögum samkvæmt skyldir að fram- kvæma, fari yfirvald þess á leit. Langoftast er reynt að fá samþykki aðstandenda til líkrannsóknar þegar réttarrannsókn er fyrirhuguð. Það getur hins vegar augljóslega komið fyrir, að framkvæma verði réttar- rannsókn gegn vilja þeirra. Líkrannsókn þess, sem látizt hefur á sjúkrahúsi, er aldrei gerð án samþykkis aðstandenda. Það er á ábyrgð lækna hins látna að fá það samþykki, og skiptir þá verulegu máli hvemig að er staðið. Um þessar mundir er gerð líkrannsókn hjá u.þ.b. fjórðungi þeirra, sem deyja á ís- landi. Þetta hlutfall fer lækkandi. Hvað réttarrannsóknir varðar, þá eru þær sá hluti laga og reglu, sem fyrst er brotið gegn þar, sem einræði og kúgun ríkir. Samvizkusam- lega framkvæmd réttarrannsókn er mikil- væg trygging þess, að lög og réttindi ríki í samfélaginu. verulegt gildi við vísindarannsóknir á orsökum, gangi og meðferð sjúkdóma. Dánarmein Árlega deyja u.þ.b. 1700 íslendingar. Sé miðað við 250.000 íbúa, þá er dánartíðnin tæplega 7 dauðsföll á 100.000 íbúa á ári. Hér fæðast u.þ.b. 4000 lifandi börn árlega, þannig að fæðingartíðnin er u.þ.b. 16 lifandi fæð- ingar á 100.000 íbúa á ári. Hvoru tveggja talan er lág hérlendis. Óhætt er að draga af þessum tölum þrjár ályktanir: íjyrsta lagi er fólksfjölgun hæg, í öðru lagi eru Islendingar langlífir og í priðja lagi, og það sem kannski hefur mestu þýðingu fyrir afkomendur okkar í framtíðinni, þá hækkar meðalaldur þjóðarinnar hægt ogsígandi. Hlutfall þegna á eftirlaunum hækkar og þeim fækkar samtímis tiltölulega, sem sjá fyrir eftirlaun- um hinna. Þannig er hugsanlegt að langlífi, sú gjöf sem hver einstaklingur leggur flest í sölurnar fyrir, sé hagfræðingum og fram- sýnum stjórnmálamönnum nokkurt áhyggjuefni. Tæpur helmingur (eða rúm 47%) þeirra sem létust árið 1985, létust úr sjúkdómum í æðakerfi Hér vegur langþyngst bráð kransæðastífla, með40% þessara dauðsfalla. Næst stærsti flokkurinn eru illkynja æxli, krabbamein, með tæplega fjórðung dauðs- falla. Þriðji stærsti hópurinn eru sjúkdómar í öndunarfærum, fyrst og fremst lungna- bólga, sem ollu tæplega 13% dauðsfalla þetta ár. I fjórða sæti eru áverkar, þ.e. slys af öllum toga, u.þ.b. sex prósent dauðsfalla. Saman- lagt valda þessir fjórir flokkar níu af hverjum tíu dauðsföllum. Sjúkrahússrannsóknir eru í fyrsta lagi hinzta læknisverkið fyrir hinn látna og aðstandendur hans, sú rannsókn þar sem (Heimild: Heilbrigðisskýrslur Land- kannað er eðli og útbreiðsla þess sjúkdóms læknisembættisins 1984-1985, útg. 1989). eða sjúkdóma, sem leiddu til dauða hans; sömuleiðis þegar tildrög dauðans eru óljós. í öðru lagi er líkrannsókn bezta aðferð til gæðaeftirlits í læknismeðferð, sem enn er kostur á. I þriðja lagi hafa líkrannsóknir 7

x

Ný Dögun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.